06 - Félagsstarf
Íþróttir og áhugamál
Æfingar, kórar, tónlistarnám, útivistarhópar, félagsstarf og námskeið á Austurlandi, fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Fyrir fullorðna
Útivist
Morgunhlaup í hóp frá líkamsræktinni Austur; allir velkomnir og hópurinn er á Facebook.
Austur heilsurækt – Hlaupahópur Austur · Egilsstaðir
Frá Austur, Lyngási 12
Mið 06:15
Allir aldrar
Útivist
Léttar gönguferðir um Hérað undir leiðsögn heimafólks; sameinast er í bíla við hús félagsins. Allir velkomnir og ekki þarf að vera félagi. Félagið býður líka dagsferðir og fjölskylduferðir á sumrin.
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs · Egilsstaðir
Brottför frá húsi félagsins, Tjarnarási 8
Annan hvern sunnudag, oftast kl. 10:00
Allt árið
13–18 ára
Útivist
Björgunarsveitin Hérað heldur úti unglingastarfi innan Slysavarnafélagsins Landsbjargar: skyndihjálp, rötun, fjallamennska og ferðir með reyndu björgunarsveitarfólki. Hafðu samband við sveitina eða skrifstofu Landsbjargar (570 5900) um fundartíma.
Björgunarsveitin Hérað – unglingadeildin Héraðsstubbar · Egilsstaðir
Miðási 1
Vetrarstarf, nýliðar teknir inn á haustin