06 - Félagsstarf

Íþróttir og áhugamál

Æfingar, kórar, tónlistarnám, útivistarhópar, félagsstarf og námskeið á Austurlandi, fyrir börn, unglinga og fullorðna.

60 ára og eldri Íþróttir

Hreyfing 60+: styrktaræfingar

Styrktaræfingar með þjálfara í íþróttahúsinu fyrir íbúa 60 ára og eldri; hafðu samband við skrifstofu hreppsins um tímana.

Vopnafjarðarhreppur – félagsstarf eldri borgara · Vopnafjörður Íþróttahúsið á Vopnafirði September–maí
13–18 ára Útivist

Unglingadeildin Vopni (björgunarsveit)

Björgunarsveitin Vopni heldur úti unglingastarfi innan Slysavarnafélagsins Landsbjargar: skyndihjálp, rötun, fjallamennska og ferðir með reyndu björgunarsveitarfólki. Hafðu samband við sveitina eða skrifstofu Landsbjargar (570 5900) um fundartíma.

Björgunarsveitin Vopni – unglingadeildin Vopni · Vopnafjörður Vogabúð Vetrarstarf, nýliðar teknir inn á haustin
Fyrir fullorðna Tónlist

Karlakór Vopnafjarðar

Lítill en metnaðarfullur karlakór, stofnaður 2011, sem hefur sungið víða um land og í Færeyjum.

Karlakór Vopnafjarðar · Vopnafjörður
16 ára og eldri Tónlist

Kirkjukór Hofs- og Vopnafjarðarkirkju

Blandaður kirkjukór sem syngur við athafnir í Hofs- og Vopnafjarðarkirkju og heldur tónleika með Karlakór Vopnafjarðar og barnakórnum.

Hofs- og Vopnafjarðarkirkja · Vopnafjörður Vopnafjarðarkirkja
6 ára og eldri Tónlist

Tónlistarnám: hljóðfæri

Kennt á píanó, blokkflautu, gítar, bassa, ukulele, trommur, saxófón, trompet og klarinett; tímar grunnskólanema eru felldir inn í stundaskrána. Tekið er við umsóknum í upphafi hvorrar annar en líka hægt að byrja á miðri önn; systkinaafsláttur fyrir börn.

Tónlistarskóli Vopnafjarðar · Vopnafjörður Vopnafjarðarskóli (miðhæð) September–maí 40.100 kr. á önn (60 mín./viku), 20.000 kr. (30 mín./viku)
60 ára og eldri Listir og handverk

Handavinnustund í Sambúð

Eldri borgarar hittast með eigin handavinnu og spjalla yfir kaffibolla.

Vopnafjarðarhreppur – félagsstarf eldri borgara · Vopnafjörður Sambúð, félagsmiðstöð eldri borgara Tvisvar í viku September–maí
60 ára og eldri Samfélag

Hittingur 60+

Samvera, spil og spjall yfir kaffibolla fyrir 60 ára og eldri.

Vopnafjarðarhreppur – félagsstarf eldri borgara · Vopnafjörður Félagsheimilið Mikligarður Þri og fös 10:00 September–maí
Fyrir fullorðna Samfélag

Kiwanisklúbburinn Askja – fundir

Þjónustuklúbbur í Vopnafirði sem styður börn og samfélagið, t.d. með páskabingói; vorið 2026 gaf klúbburinn 3 milljónir króna til kaupa á nýju björgunarskipi.

Kiwanisklúbburinn Askja · Vopnafjörður Hótel Tangi 2. og 4. fim í mánuði kl. 19:30
16 ára og eldri Námskeið

Íslenska sem annað mál A1-1 (byrjendur)

Byrjendanámskeið á Vopnafirði fyrir þá sem tala litla eða enga íslensku. Félagar í stéttarfélögum, t.d. AFLi, geta sótt um endurgreiðslu úr starfsmenntasjóði (Landsmennt greiðir allt að 90%).

Austurbrú · Vopnafjörður Kaupvangur, Vopnafirði Þri og fim 16:30-18:30 September–desember 2026 56.000 kr. (40 klst.)