06 - Félagsstarf
Íþróttir og áhugamál
Æfingar, kórar, tónlistarnám, útivistarhópar, félagsstarf og námskeið á Austurlandi, fyrir börn, unglinga og fullorðna.
6–7 ára
Íþróttir
Börn í 1.–2. bekk prófa fjórar greinar á einu gjaldi: fimleika, frjálsar, körfubolta og taekwondo. Starfsfólk fylgir nemendum Egilsstaðaskóla á æfingar og strætó ekur frá Fellaskóla; tómstundaframlag Múlaþings gildir.
Höttur · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
Eftir skóla: frjálsar og körfubolti kl. 14:15-15:30, fimleikar mán (stelpur) eða lau (strákar), taekwondo fös 17:00-18:00
Haustönn 2026 (skráning til 11. sept.); aftur skráð um áramót
30.000 kr. á önn
Skráning →
8 ára
Íþróttir
Hópfimleikar fyrir stúlkur og drengi fædda 2018, næsta skref eftir Allir með.
Höttur – fimleikadeild · Egilsstaðir
Fimleikahúsið, Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum
Mið 16:00-17:30, fös 14:15-15:40, sun 15:15-16:45
Haustönn 2026
Skráning →
10–15 ára
Íþróttir
Fyrir börn fædd 2011–2016 sem vilja æfa fimleika án keppni; hægt að velja eina eða tvær æfingar á viku og byrjendur eru velkomnir.
Höttur – fimleikadeild · Egilsstaðir
Fimleikahúsið, Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum
Stúlkur mið 17:30-19:00 og fim 16:00-17:30; drengir þri og mið 16:00-17:30
Haustönn 2026
Skráning →
12–15 ára
Íþróttir
Eldri flokkar æfa á Fellavelli og í íþróttahúsinu, þar á meðal á morgnana fyrir skóla; 3. flokkur á einnig samæfingar á Reyðarfirði.
Höttur – knattspyrnudeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum og Fellavöllur (gervigras) í Fellabæ
4 æfingar á viku, m.a. morgunæfingar kl. 7:00-8:00 og samæfingar; sjá tímatöflu
Vetur 2026–2027
130.000 kr. árgjald (gildir til loka ágúst 2027)
Skráning →
8–11 ára
Íþróttir
Strákar og stelpur æfa í sitt hvorum flokki, m.a. á gervigrasinu á Fellavelli og á laugardögum inni. Tímar hvers flokks eru í tímatöflunni.
Höttur – knattspyrnudeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum og Fellavöllur (gervigras) í Fellabæ
3 æfingar á viku, á Fellavelli og í íþróttahúsinu; sjá tímatöflu
Vetur 2026–2027
Skráning →
6–7 ára
Íþróttir
Þrjár æfingar á viku inni í íþróttahúsi yfir veturinn og á Vilhjálmsvelli á sumrin; sér hópar fyrir stráka og stelpur.
Höttur – knattspyrnudeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
Strákar þri 16:30-17:30, fim 14:15-15:15, lau 11:00-12:00; stelpur þri og fim 15:30-16:30, lau 11:00-12:00
Vetur 2026–2027
Skráning →
8–17 ára
Íþróttir
Hlaup, stökk og köst; vetraræfingar inni í íþróttahúsinu og sumaræfingar á Vilhjálmsvelli. Tímatafla og aldursflokkar eru birt á Facebook-síðu deildarinnar; yngstu börnin æfa í Allir með.
Höttur – frjálsíþróttadeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum (vetur) og Vilhjálmsvöllur (sumar)
Allt árið
9 ára og eldri
Íþróttir
Keppnishópar í hópfimleikum og stökkfimi fyrir iðkendur fædda 2017 og fyrr; liðin keppa á mótum Fimleikasambandsins. Nákvæmir tímar hvers flokks eru í tímatöflunni.
Höttur – fimleikadeild · Egilsstaðir
Fimleikahúsið, Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum
3–4 æfingar á viku eftir flokki (4.–1. flokkur, drengir yngri/eldri, meistaraflokkur)
Haustönn 2026
Skráning →
11 ára og eldri
Íþróttir
Námskerfi Háskólans á Hólum í reiðmennsku sem lýkur með prófi á hverju stigi; fyrir börn fædd 2015 eða fyrr og fullorðna.
Hestamannafélagið Freyfaxi · Egilsstaðir
Reiðhöllin á Iðavöllum
Nóvember–apríl (skráning í október)
Veturinn 2025–26: 90.000 kr. (12 skipti, lánshestur) eða 60.000 kr. með eigin hest
8–13 ára
Íþróttir
Þrír drengjahópar eftir aldri, þrjár til fjórar æfingar á viku. Skráning í Abler og tómstundaframlag Múlaþings gildir.
Höttur – körfuknattleiksdeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
3.–4. b.: þri 17:30-18:30, fim 16:30-17:30, sun 12:30-13:30; 5.–6. b.: mið 19:30-20:30, fös 16:30-17:30, sun 11:00-12:30; 7.–8. b.: mán 19:00-20:30, fim 17:30-19:00, fös 15:30-17:00, sun 13:30-15:00
Frá ágúst 2026, veturinn 2026–2027
Skráning →
8–13 ára
Íþróttir
Tveir stúlknahópar eftir aldri, þrjár til fjórar æfingar á viku. Skráning í Abler og tómstundaframlag Múlaþings gildir.
Höttur – körfuknattleiksdeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
3.–5. b.: mán og mið 14:30-15:30, lau 13:00-14:00; 6.–8. b.: þri 20:00-21:00, mið 19:30-21:00, fös 19:00-20:30, lau 13:00-14:30
Frá ágúst 2026, veturinn 2026–2027
Skráning →
6–17 ára
Íþróttir
Krökkunum er skipt í þrjá hópa eftir getu og stærð hjóla og fá leiðsögn í akstri og öryggisbúnaði; áhugasamir mega kíkja á svæðið.
Akstursíþróttafélagið Start · Egilsstaðir
Motocrossbrautin í Ylsgrús
Vikulegar æfingar
Skráning →
4–18 ára
Íþróttir
Kennt í litlum hópum (2–4 börn) eftir reynslu: pollar og byrjendur frá 4 ára, börn með smá reynslu og vanir knapar 10–18 ára. Lánshestar í boði og frístundastyrkur Múlaþings gildir.
Hestamannafélagið Freyfaxi · Egilsstaðir
Reiðhöllin á Iðavöllum eða Gíslastöðum
Um tvisvar í mánuði, 90–120 mín. í senn, um helgar og stundum virka daga
Nóvember–apríl (skráning í október)
Veturinn 2025–26: 70.000 kr. (10 skipti, lánshestur) eða 55.000 kr. með eigin hest
Allir aldrar
Útivist
Léttar gönguferðir um Hérað undir leiðsögn heimafólks; sameinast er í bíla við hús félagsins. Allir velkomnir og ekki þarf að vera félagi. Félagið býður líka dagsferðir og fjölskylduferðir á sumrin.
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs · Egilsstaðir
Brottför frá húsi félagsins, Tjarnarási 8
Annan hvern sunnudag, oftast kl. 10:00
Allt árið
5–12 ára
Tónlist
Barnakór fyrir krakka frá 5 ára aldri þar sem áhersla er á að syngja, hafa gaman og öðlast öryggi í að koma fram. Kórinn syngur m.a. við fjölskyldumessur og á páskastund barnanna.
Egilsstaðakirkja · Egilsstaðir
Egilsstaðakirkja
Mán 16:30-17:15
Yfir veturinn
6–7 ára
Tónlist
Tveggja vetra hóptímar fyrir börn í 1. og 2. bekk: söngur, einföld hljóðfæri, hreyfing og taktur. Börn sem ljúka forskóla ganga fyrir þegar raðað er í hljóðfæranám.
Tónlistarskólinn á Egilsstöðum · Egilsstaðir
Egilsstaðaskóli, Tjarnarlöndum 11
Einu sinni í viku, 30 mín. í hóp
31. ágúst 2026 – 4. júní 2027
40.440 kr. á ári
Skráning →
8 ára og eldri
Tónlist
Grunn-, mið- og framhaldsnám á blásturs-, strengja-, hljómborðs- og ásláttarhljóðfæri og í söng (klassískt og rytmískt), auk tónfræði. Skólinn rekur líka strengjasveitir fyrir nemendur; árgjaldinu má skipta í allt að sex greiðslur.
Tónlistarskólinn á Egilsstöðum · Egilsstaðir
Egilsstaðaskóli, Tjarnarlöndum 11
31. ágúst 2026 – 4. júní 2027
68.477 kr. (hálft) / 93.863 kr. (fullt) á ári, 20 ára og yngri; 119.834 / 153.340 kr. fyrir 21 árs og eldri
Skráning →
6–15 ára
Tónlist
Lítill tónlistarskóli í Brúarásskóla, norðan Egilsstaða, sem kennir á trommur, píanó, hljómborð, ukulele, gítar og bassa og í söng. Mikil áhersla á samspil og að koma fram.
Tónlistarskóli Norður-Héraðs · Egilsstaðir
Brúarásskóli, Jökulsárhlíð
25.539 kr. (hálft) / 34.054 kr. (fullt) á önn
6 ára og eldri
Listir og handverk
Sextugt áhugaleikfélag sem setur upp sýningar fyrir fullorðna og börn, haustið 2026 farandsýninguna Blakkát. Félagið leggur rækt við barna- og unglingastarf og tók rúmlega 20 börn inn í Óvita haustið 2025.
Leikfélag Fljótsdalshéraðs · Egilsstaðir
Sláturhúsið og fleiri staðir
10–15 ára
Samfélag
Félagsmiðstöð fyrir 5.–10. bekk með billjarð, bíósal, leikjatölvu, borðtennis og spilum. Opnunartímar eru birtir á Instagram og Facebook Nýungar.
Múlaþing – félagsmiðstöðvar · Egilsstaðir
Tjarnarlöndum 11
Sérstakar opnanir fyrir yngri og eldri deild
Ágúst–maí
Allt að 10 ára
Samfélag
Söngur, biblíusögur, brúðurnar Rebbi og Mýsla, hressing og litastund. Öll börn og vinir þeirra velkomin, foreldrar líka.
Egilsstaðakirkja · Egilsstaðir
Egilsstaðakirkja
Sun 10:30-11:30
Frá 6. september
Allir aldrar
Samfélag
Fjölskyldusamvera utandyra þar sem lesið er upp úr bókum tengdum náttúrunni við varðeld, í samstarfi við Náttúruskólann. Stundirnar eru auglýstar á Facebook-síðu bókasafnsins.
Bókasafn Múlaþings · Egilsstaðir
Utandyra, auglýst hverju sinni
Veturinn 2026–2027 (þrjár stundir eftir á Egilsstöðum)
10–12 ára
Samfélag
Kristilegt frístundastarf fyrir 10–12 ára með leikjum, föndri og helgistund; hressing í upphafi hvers fundar. Starfið er ókeypis.
Egilsstaðakirkja · Egilsstaðir
Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4
Mánudaga (vorönn 2026)
Ókeypis