06 - Félagsstarf

Íþróttir og áhugamál

Æfingar, kórar, tónlistarnám, útivistarhópar, félagsstarf og námskeið á Austurlandi, fyrir börn, unglinga og fullorðna.

10–15 ára Samfélag

Félagsmiðstöðin Nýung

Félagsmiðstöð fyrir 5.–10. bekk með billjarð, bíósal, leikjatölvu, borðtennis og spilum. Opnunartímar eru birtir á Instagram og Facebook Nýungar.

Múlaþing – félagsmiðstöðvar · Egilsstaðir Tjarnarlöndum 11 Sérstakar opnanir fyrir yngri og eldri deild Ágúst–maí
Allt að 10 ára Samfélag

Sunnudagaskólinn

Söngur, biblíusögur, brúðurnar Rebbi og Mýsla, hressing og litastund. Öll börn og vinir þeirra velkomin, foreldrar líka.

Egilsstaðakirkja · Egilsstaðir Egilsstaðakirkja Sun 10:30-11:30 Frá 6. september
Allir aldrar Samfélag

Sögustundir við varðeld

Fjölskyldusamvera utandyra þar sem lesið er upp úr bókum tengdum náttúrunni við varðeld, í samstarfi við Náttúruskólann. Stundirnar eru auglýstar á Facebook-síðu bókasafnsins.

Bókasafn Múlaþings · Egilsstaðir Utandyra, auglýst hverju sinni Veturinn 2026–2027 (þrjár stundir eftir á Egilsstöðum)
10–12 ára Samfélag

TTT – kirkjustarf 10–12 ára

Kristilegt frístundastarf fyrir 10–12 ára með leikjum, föndri og helgistund; hressing í upphafi hvers fundar. Starfið er ókeypis.

Egilsstaðakirkja · Egilsstaðir Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4 Mánudaga (vorönn 2026) Ókeypis