06 - Félagsstarf

Íþróttir og áhugamál

Æfingar, kórar, tónlistarnám, útivistarhópar, félagsstarf og námskeið á Austurlandi, fyrir börn, unglinga og fullorðna.

6–15 ára Íþróttir

Skíðaæfingar barna og unglinga (alpagreinar)

Skíðafélagið þjálfar krakka úr öllum bæjum Fjarðabyggðar í Oddsskarði og sendir keppendur á mót undir merkjum UÍA. Börn 0–10 ára fá frítt í lyftur í Oddsskarði; fréttir af æfingum birtast á Facebook-síðu félagsins.

Skíðafélag Fjarðabyggðar (SFF) · Austurland Skíðamiðstöðin í Oddsskarði Vetur, þegar snjór leyfir
Allir aldrar Íþróttir

Snjóbretti – opnar æfingar

Brettafélagið sér um brettabraut og leigubretti í Oddsskarði og heldur opna æfingu einu sinni í mánuði fyrir brettafólk á öllum aldri. Félagið sendir líka keppendur á bikarmót á snjóbrettum.

Brettafélag Fjarðabyggðar (BFF) · Austurland Skíðamiðstöðin í Oddsskarði Ein opin æfing í mánuði yfir veturinn Vetur, þegar snjór leyfir
Allir aldrar Útivist

Gönguferðir Ferðafélags Fjarðamanna

Fjallgöngur, bæjarrölt, kvennaganga, hjólaferðir og bakpokaferðir víðs vegar um Fjarðabyggð, auk gönguvikunnar „Á fætur í Fjarðabyggð“ í júní. Hver ferð er auglýst sem viðburður á Facebook og þar koma líka styttri „Stökktu af stað“ ferðir.

Ferðafélag Fjarðamanna · Austurland Ýmsir upphafsstaðir í Fjarðabyggð Samkvæmt ferðaáætlun, oftast laugardaga Apríl–september
6–12 ára Útivist

Útivistarnámskeið fyrir börn

Námskeið þar sem börn kynnast útivist í víðum skilningi, útileikjum og hjólreiðum og byggja upp seiglu úti í náttúrunni; félagið hlaut Hermannsbikar UÍA fyrir verkefnið. Dagsetningar eru auglýstar á Facebook og skráning er í Abler.

Ungmennafélagið Þristur · Austurland Á Fljótsdalshéraði (Skriðdalur, Vellir, Fljótsdalur, Selskógur)
8–13 ára Listir og handverk

Listasmiðjur fyrir börn (sumar)

Fjölbreyttar vikulangar smiðjur hjá listafólki, t.d. myndlist, leiklist, tónlist og Fab Lab, í mismunandi bæjum Fjarðabyggðar. Takmarkaður fjöldi, skráning í íbúagátt að vori.

Menningarstofa Fjarðabyggðar · Austurland Neskaupstaður, Reyðarfjörður, Eskifjörður og Fáskrúðsfjörður Vikunámskeið, eftir hádegi Júní (árlega) 15.000 kr. á námskeið (2025), afsláttur fyrir systkini