06 - Félagsstarf

Íþróttir og áhugamál

Æfingar, kórar, tónlistarnám, útivistarhópar, félagsstarf og námskeið á Austurlandi, fyrir börn, unglinga og fullorðna.

6–15 ára Íþróttir

Blak barna og unglinga

Blak hefur verið stundað hjá Leikni síðan 1972 og deildin er með æfingar fyrir bæði yngri og eldri grunnskólabörn. Tímar geta breyst milli ára, svo best er að skoða nýjustu æfingatöflu félagsins.

Leiknir Fáskrúðsfirði – blakdeild · Fáskrúðsfjörður Íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði 1.–4. bekkur: mán 15:30; 5.–10. bekkur: þri 16:30 og fim 18:00 (tafla 2024–25)
4–15 ára Íþróttir

Fimleikar barna og unglinga

Fimleikaæfingar í hópum eftir aldri, frá leikskólakrílum upp í unglinga; iðkendur koma víða að úr Fjarðabyggð. Skráning fer fram í gegnum Abler.

Leiknir Fáskrúðsfirði – fimleikadeild · Fáskrúðsfjörður Íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði Kríli (f. 2019–2021): mið 17:00-17:40; 1.–2. bekkur: mið 16:00-17:00 og sun 16:30-18:00; 5. bekkur og eldri: mið 17:45-19:00 og sun 16:30-18:00
5–16 ára Íþróttir

Fótbolti barna og unglinga (8.–3. flokkur)

KFA sér um allan barna- og unglingafótbolta í Fjarðabyggð, frá 8. flokki (5–6 ára) upp í 3. flokk, fyrir stráka og stelpur. Skráning og æfingagjöld fara í gegnum Abler, þar sem frístundastyrkur Fjarðabyggðar nýtist.

Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) · Fáskrúðsfjörður Knattspyrnuvöllurinn á Búðargrund og íþróttahúsið Haustönn 2026
Allir aldrar Íþróttir

Golfhermir Leiknis

Golfhermir í gamla íþróttahúsinu þar sem hægt er að æfa sveifluna og spila velli víða um heim yfir veturinn, fyrir byrjendur jafnt sem vana kylfinga. Fréttir og bókanir fara fram í Facebook-hópi golfhermisins.

Leiknir Fáskrúðsfirði – golf- og píludeild · Fáskrúðsfjörður Gamla íþróttahúsið (Glaðheimar), Fáskrúðsfirði Vetur Stakur tími 3.500 kr.; árgjald 30.000 kr. (hjón 45.000 kr., undir 18 ára 15.000 kr.)
6 ára og eldri Tónlist

Tónlistarnám: hljóðfæri og söngur

Einkatímar og hóptímar á m.a. píanó, gítar, bassa, trommur, blásturshljóðfæri, ukulele og í söng; tímar grunnskólanema eru oft á skólatíma. Sótt er um á netinu hvenær sem er og umsóknir afgreiddar í réttri röð; fullorðnir eru líka velkomnir. Nemendahljómsveitir (rytmískt nám) koma fram á vortónleikum.

Tónlistarskóli Fjarðabyggðar · Fáskrúðsfjörður Skólamiðstöðin á Fáskrúðsfirði 26. ágúst 2026 – 26. maí 2027 23.886–40.026 kr. á önn (20 ára og yngri); 49.220–82.472 kr. (21 árs og eldri)