06 - Félagsstarf
Íþróttir og áhugamál
Æfingar, kórar, tónlistarnám, útivistarhópar, félagsstarf og námskeið á Austurlandi, fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Allir aldrar
Íþróttir
Brettafélagið sér um brettabraut og leigubretti í Oddsskarði og heldur opna æfingu einu sinni í mánuði fyrir brettafólk á öllum aldri. Félagið sendir líka keppendur á bikarmót á snjóbrettum.
Brettafélag Fjarðabyggðar (BFF) · Austurland
Skíðamiðstöðin í Oddsskarði
Ein opin æfing í mánuði yfir veturinn
Vetur, þegar snjór leyfir
Allir aldrar
Útivist
Fjallgöngur, bæjarrölt, kvennaganga, hjólaferðir og bakpokaferðir víðs vegar um Fjarðabyggð, auk gönguvikunnar „Á fætur í Fjarðabyggð“ í júní. Hver ferð er auglýst sem viðburður á Facebook og þar koma líka styttri „Stökktu af stað“ ferðir.
Ferðafélag Fjarðamanna · Austurland
Ýmsir upphafsstaðir í Fjarðabyggð
Samkvæmt ferðaáætlun, oftast laugardaga
Apríl–september