Fimleikar, krílahópar (2–5 ára)
Vikulegur tími á laugardögum með leikjum, þrautabrautum og kynningu á fimleikaáhöldum; góður grunnur fyrir allar íþróttir. Gjöld sjást í Abler við skráningu.
Æfingar, kórar, tónlistarnám, útivistarhópar, félagsstarf og námskeið á Austurlandi, fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Vikulegur tími á laugardögum með leikjum, þrautabrautum og kynningu á fimleikaáhöldum; góður grunnur fyrir allar íþróttir. Gjöld sjást í Abler við skráningu.
Fyrstu skrefin í fótbolta fyrir stráka og stelpur á leikskólaaldri, einu sinni í viku inni í íþróttahúsinu.
Stuttur vikulegur körfuboltatími fyrir leikskólabörn með leikjum og boltaæfingum.
Kennt í litlum hópum (2–4 börn) eftir reynslu: pollar og byrjendur frá 4 ára, börn með smá reynslu og vanir knapar 10–18 ára. Lánshestar í boði og frístundastyrkur Múlaþings gildir.
Léttar gönguferðir um Hérað undir leiðsögn heimafólks; sameinast er í bíla við hús félagsins. Allir velkomnir og ekki þarf að vera félagi. Félagið býður líka dagsferðir og fjölskylduferðir á sumrin.
Barnakór fyrir krakka frá 5 ára aldri þar sem áhersla er á að syngja, hafa gaman og öðlast öryggi í að koma fram. Kórinn syngur m.a. við fjölskyldumessur og á páskastund barnanna.
Foreldrar með ung börn hittast, spjalla og eiga notalega stund; hentar vel foreldrum í fæðingarorlofi. Heitt á könnunni.
Söngur, biblíusögur, brúðurnar Rebbi og Mýsla, hressing og litastund. Öll börn og vinir þeirra velkomin, foreldrar líka.
Fjölskyldusamvera utandyra þar sem lesið er upp úr bókum tengdum náttúrunni við varðeld, í samstarfi við Náttúruskólann. Stundirnar eru auglýstar á Facebook-síðu bókasafnsins.