Allir aldrar
Útivist
Gönguferðir Ferðafélags Fjarðamanna
Fjallgöngur, bæjarrölt, kvennaganga, hjólaferðir og bakpokaferðir víðs vegar um Fjarðabyggð, auk gönguvikunnar „Á fætur í Fjarðabyggð“ í júní. Hver ferð er auglýst sem viðburður á Facebook og þar koma líka styttri „Stökktu af stað“ ferðir.
Ferðafélag Fjarðamanna · Austurland
Ýmsir upphafsstaðir í Fjarðabyggð
Samkvæmt ferðaáætlun, oftast laugardaga
Apríl–september