06 - Félagsstarf

Íþróttir og áhugamál

Æfingar, kórar, tónlistarnám, útivistarhópar, félagsstarf og námskeið á Austurlandi, fyrir börn, unglinga og fullorðna.

Allir aldrar Útivist

Sunnudagsgöngur

Léttar gönguferðir um Hérað undir leiðsögn heimafólks; sameinast er í bíla við hús félagsins. Allir velkomnir og ekki þarf að vera félagi. Félagið býður líka dagsferðir og fjölskylduferðir á sumrin.

Ferðafélag Fljótsdalshéraðs · Egilsstaðir Brottför frá húsi félagsins, Tjarnarási 8 Annan hvern sunnudag, oftast kl. 10:00 Allt árið
13–18 ára Útivist

Unglingadeildin Héraðsstubbar (björgunarsveit)

Björgunarsveitin Hérað heldur úti unglingastarfi innan Slysavarnafélagsins Landsbjargar: skyndihjálp, rötun, fjallamennska og ferðir með reyndu björgunarsveitarfólki. Hafðu samband við sveitina eða skrifstofu Landsbjargar (570 5900) um fundartíma.

Björgunarsveitin Hérað – unglingadeildin Héraðsstubbar · Egilsstaðir Miðási 1 Vetrarstarf, nýliðar teknir inn á haustin