06 - Félagsstarf

Íþróttir og áhugamál

Æfingar, kórar, tónlistarnám, útivistarhópar, félagsstarf og námskeið á Austurlandi, fyrir börn, unglinga og fullorðna.

6–15 ára Íþróttir

Skíðaæfingar barna og unglinga (alpagreinar)

Skíðafélagið þjálfar krakka úr öllum bæjum Fjarðabyggðar í Oddsskarði og sendir keppendur á mót undir merkjum UÍA. Börn 0–10 ára fá frítt í lyftur í Oddsskarði; fréttir af æfingum birtast á Facebook-síðu félagsins.

Skíðafélag Fjarðabyggðar (SFF) · Austurland Skíðamiðstöðin í Oddsskarði Vetur, þegar snjór leyfir
Allir aldrar Íþróttir

Snjóbretti – opnar æfingar

Brettafélagið sér um brettabraut og leigubretti í Oddsskarði og heldur opna æfingu einu sinni í mánuði fyrir brettafólk á öllum aldri. Félagið sendir líka keppendur á bikarmót á snjóbrettum.

Brettafélag Fjarðabyggðar (BFF) · Austurland Skíðamiðstöðin í Oddsskarði Ein opin æfing í mánuði yfir veturinn Vetur, þegar snjór leyfir