06 - Félagsstarf

Íþróttir og áhugamál

Æfingar, kórar, tónlistarnám, útivistarhópar, félagsstarf og námskeið á Austurlandi, fyrir börn, unglinga og fullorðna.

Fyrir fullorðna Samfélag

Ásheimar – geðræktarmiðstöð

Opið úrræði fyrir fullorðna sem glíma við geðrænar áskoranir eða vilja bæta líðan sína: samvera, jafningjastuðningur og dagskrá sem mótuð er með þátttakendum. Engin krafa um mætingu.

Ásheimar mann- og geðræktarmiðstöð · Egilsstaðir Húsnæði StarfA, Miðvangi 1, Egilsstöðum Mán, þri, fim og fös 13:00-16:00 September–maí Ókeypis
60 ára og eldri Samfélag

Félag eldri borgara á Fljótsdalshéraði

Félag fyrir 60 ára og eldri sem stendur fyrir ferðum, haustfagnaði, þorrablóti, bingói og pálínuboðum, auk göngu á Vilhjálmsvelli. Hádegismatur er í Hlymsdölum og skráning í mataráskrift fer fram á Mínum síðum Múlaþings.

Félag eldri borgara á Fljótsdalshéraði · Egilsstaðir Hlymsdalir, Miðvangi 6 Hlymsdalir opnir virka daga 9:00-16:00
10–15 ára Samfélag

Félagsmiðstöðin Nýung

Félagsmiðstöð fyrir 5.–10. bekk með billjarð, bíósal, leikjatölvu, borðtennis og spilum. Opnunartímar eru birtir á Instagram og Facebook Nýungar.

Múlaþing – félagsmiðstöðvar · Egilsstaðir Tjarnarlöndum 11 Sérstakar opnanir fyrir yngri og eldri deild Ágúst–maí
Allt að 3 ára Samfélag

Foreldramorgnar

Foreldrar með ung börn hittast, spjalla og eiga notalega stund; hentar vel foreldrum í fæðingarorlofi. Heitt á könnunni.

Egilsstaðakirkja · Egilsstaðir Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4 Fim 10:00-12:00
Fyrir fullorðna Samfélag

Lionsklúbburinn Múli

Lionsklúbbur sem vinnur að líknar- og samfélagsverkefnum í heimabyggð og hittist reglulega yfir vetrartímann. Fundartímar fást hjá klúbbnum eða skrifstofu Lions.

Lionsklúbburinn Múli · Egilsstaðir Hótel Hérað
Fyrir fullorðna Samfélag

Rótarýklúbbur Héraðsbúa – vikulegir fundir

Þjónustuklúbbur sem hittist vikulega og vinnur að samfélagsverkefnum á Héraði, m.a. með viðurkenningum úr þjóðhátíðarsjóði klúbbsins. Áhugasamir geta haft samband í gegnum vef klúbbsins.

Rótarýklúbbur Héraðsbúa · Egilsstaðir Miðvangi 5–7 Þri 18:00-19:30
Fyrir fullorðna Samfélag

Samveru- og bænastund

Prestar Egilsstaðaprestakalls leiða stutta samveru- og bænastund. Opið öllum, ekki þarf að vera félagi í Félagi eldri borgara.

Egilsstaðaprestakall / Hlymsdalir · Egilsstaðir Félagsmiðstöðin Hlymsdalir 1. og 3. þri í mánuði 13:00-14:00 September–maí
Fyrir fullorðna Samfélag

Spil: bridge, félagsvist og spilastund

Spilað er bridge, vist, lomber, kani og fleira; haustið 2026 er boðið upp á bridgekennslu í spilastundinni á þriðjudögum. Skák og spil eru líka á staðnum alla daga.

Félagsmiðstöðin Hlymsdalir / Félag eldri borgara á Fljótsdalshéraði · Egilsstaðir Félagsmiðstöðin Hlymsdalir, Miðvangi 6 Bridge mán 13:00; spilastund þri 13:00; félagsvist fim 13:00; Fellabridge fös 19:30 September–maí
Allt að 10 ára Samfélag

Sunnudagaskólinn

Söngur, biblíusögur, brúðurnar Rebbi og Mýsla, hressing og litastund. Öll börn og vinir þeirra velkomin, foreldrar líka.

Egilsstaðakirkja · Egilsstaðir Egilsstaðakirkja Sun 10:30-11:30 Frá 6. september
Fyrir fullorðna Samfélag

Sögustund og spjall

Vikuleg stund þar sem sagðar eru sögur og spjallað um gamla tíma og líðandi stund. Opið öllum, ekki þarf að vera félagi í Félagi eldri borgara.

Félagsmiðstöðin Hlymsdalir · Egilsstaðir Félagsmiðstöðin Hlymsdalir Mið 13:00 September–maí
Allir aldrar Samfélag

Sögustundir við varðeld

Fjölskyldusamvera utandyra þar sem lesið er upp úr bókum tengdum náttúrunni við varðeld, í samstarfi við Náttúruskólann. Stundirnar eru auglýstar á Facebook-síðu bókasafnsins.

Bókasafn Múlaþings · Egilsstaðir Utandyra, auglýst hverju sinni Veturinn 2026–2027 (þrjár stundir eftir á Egilsstöðum)
10–12 ára Samfélag

TTT – kirkjustarf 10–12 ára

Kristilegt frístundastarf fyrir 10–12 ára með leikjum, föndri og helgistund; hressing í upphafi hvers fundar. Starfið er ókeypis.

Egilsstaðakirkja · Egilsstaðir Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4 Mánudaga (vorönn 2026) Ókeypis
Sýna fleiri