06 - Félagsstarf

Íþróttir og áhugamál

Æfingar, kórar, tónlistarnám, útivistarhópar, félagsstarf og námskeið á Austurlandi, fyrir börn, unglinga og fullorðna.

Allir aldrar Útivist

Gönguferðir Ferðafélags Fjarðamanna

Fjallgöngur, bæjarrölt, kvennaganga, hjólaferðir og bakpokaferðir víðs vegar um Fjarðabyggð, auk gönguvikunnar „Á fætur í Fjarðabyggð“ í júní. Hver ferð er auglýst sem viðburður á Facebook og þar koma líka styttri „Stökktu af stað“ ferðir.

Ferðafélag Fjarðamanna · Austurland Ýmsir upphafsstaðir í Fjarðabyggð Samkvæmt ferðaáætlun, oftast laugardaga Apríl–september
6–12 ára Útivist

Útivistarnámskeið fyrir börn

Námskeið þar sem börn kynnast útivist í víðum skilningi, útileikjum og hjólreiðum og byggja upp seiglu úti í náttúrunni; félagið hlaut Hermannsbikar UÍA fyrir verkefnið. Dagsetningar eru auglýstar á Facebook og skráning er í Abler.

Ungmennafélagið Þristur · Austurland Á Fljótsdalshéraði (Skriðdalur, Vellir, Fljótsdalur, Selskógur)