Dagar myrkurs: Myrkaþrautir í Tjarnargarðinum
Þrautabraut fyrir alla fjölskylduna í umsjón Leikfélags Menntaskólans á Egilsstöðum. Mæting á sviðið; börn yngri en 12 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
Egilsstaðir
19:30 - 20:30
Viðburðir í byggðunum á Austurlandi, allt frá tónleikum og mörkuðum til leikja og gönguferða.
Þrautabraut fyrir alla fjölskylduna í umsjón Leikfélags Menntaskólans á Egilsstöðum. Mæting á sviðið; börn yngri en 12 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
Útskurður á gulrófuljóskerum og myrkrabingó á Minjasafninu, upplestur og föndur fyrir börn á bókasafninu. Börn þurfa að vera í fylgd fullorðinna; takið með ykkur rófur og vasaljós.
Grikk eða gott – börn ganga í hús og safna sælgæti milli kl. 17 og 19.
Lestrarstund á bókasafninu; lesefnið er ætlað börnum á leikskólaaldri en öll eru velkomin.
Fjögurra klukkustunda námskeið í skyndihjálp hjá Rauða krossinum.
Sögustund við varðeld á vegum Bókasafns Múlaþings og Náttúruskólans: hist er á bókasafninu og gengið saman að varðeldinum þar sem lesin er saga og hitað eitthvað gott yfir eldinum. Takið með ykkur bolla og setupúða.
Hittumst við bókasafnið og röltum saman að varðeldinum. Upplestur og heitur drykkur eða snarl við eldinn; takið með ykkur bolla og sessu.