06 - Félagsstarf
Íþróttir og áhugamál
Æfingar, kórar, tónlistarnám, útivistarhópar, félagsstarf og námskeið á Austurlandi, fyrir börn, unglinga og fullorðna.
6–15 ára
Íþróttir
Skíðafélagið þjálfar krakka úr öllum bæjum Fjarðabyggðar í Oddsskarði og sendir keppendur á mót undir merkjum UÍA. Börn 0–10 ára fá frítt í lyftur í Oddsskarði; fréttir af æfingum birtast á Facebook-síðu félagsins.
Skíðafélag Fjarðabyggðar (SFF) · Austurland
Skíðamiðstöðin í Oddsskarði
Vetur, þegar snjór leyfir
Allir aldrar
Íþróttir
Brettafélagið sér um brettabraut og leigubretti í Oddsskarði og heldur opna æfingu einu sinni í mánuði fyrir brettafólk á öllum aldri. Félagið sendir líka keppendur á bikarmót á snjóbrettum.
Brettafélag Fjarðabyggðar (BFF) · Austurland
Skíðamiðstöðin í Oddsskarði
Ein opin æfing í mánuði yfir veturinn
Vetur, þegar snjór leyfir
6–15 ára
Íþróttir
Blakæfingar fyrir börn á vegum Hrafnkels Freysgoða. Skráning er á Abler.
UMF Hrafnkell Freysgoði – blak · Breiðdalsvík
Íþróttahúsið í Breiðdal
Haustönn 2026
Skráning →
16 ára og eldri
Íþróttir
Blakæfingar Hrafnkels Freysgoða fyrir eldri iðkendur, samhliða barnablaki félagsins. Skráning er á Abler.
UMF Hrafnkell Freysgoði – blak · Breiðdalsvík
Íþróttahúsið í Breiðdal
Haustönn 2026
Skráning →
Fyrir fullorðna
Íþróttir
Léttur fótbolti fyrir fullorðna þar sem gleðin ræður ferðinni frekar en keppnin. Skráning er á Abler.
UMF Hrafnkell Freysgoði – fótbolti · Breiðdalsvík
Haustönn 2026
Skráning →
6–15 ára
Íþróttir
Fótboltaæfingar á Breiðdalsvík á vegum Hrafnkels Freysgoða. Skráning er á Abler.
UMF Hrafnkell Freysgoði – fótbolti · Breiðdalsvík
Haustönn 2026
Skráning →
6–15 ára
Íþróttir
Karateæfingar fyrir grunnskólabörn á Breiðdalsvík; krakkar frá Stöðvarfirði æfa líka með félaginu, sem hefur sent keppendur á Íslandsmeistaramót barna í kata. Skráning er á Abler; hafðu samband við félagið um æfingatíma.
UMF Hrafnkell Freysgoði · Breiðdalsvík
Íþróttahúsið í Breiðdal
Skráning →
10–15 ára
Íþróttir
Blakæfingar Neista fyrir eldri grunnskólabörn, ein æfing á viku í hvorum hópi.
Ungmennafélagið Neisti · Djúpivogur
Íþróttamiðstöðin á Djúpavogi
5.–7. b.: þri 14:15-16:00; 8.–10. b.: fim 14:15-15:30
9–11 ára
Íþróttir
Fótboltaæfingar Neista fyrir miðstig grunnskólans, fjórum sinnum í viku; þjálfari félagsins er reyndur knattspyrnuþjálfari.
Ungmennafélagið Neisti · Djúpivogur
Íþróttamiðstöðin á Djúpavogi og Neistavöllur
Fjórar æfingar á viku
Haustönn 2026
Skráning →
Fyrir fullorðna
Íþróttir
Fjölbreytt hreyfing undir umsjón forstöðumanns Tryggvabúðar; íþróttahúsið er líka opið fyrir æfingar í fimmtudagstímanum.
Tryggvabúð / Félag eldri borgara á Djúpavogi · Djúpivogur
Sundlaug og íþróttahús Djúpavogs; Tryggvabúð
Mán 10:30 sundleikfimi; mán og fim 13:00 stólaleikfimi; mið 10:30 gönguferð frá Tryggvabúð; fim 10:30 pokavarp í íþróttahúsi
September–maí
6–9 ára
Íþróttir
Hreyfi- og leikjatímar fyrir yngstu grunnskólabörnin, tvisvar í viku; skráning í Abler.
Ungmennafélagið Neisti · Djúpivogur
Íþróttamiðstöðin á Djúpavogi
Tvisvar í viku
Haustönn 2026
Skráning →
6–7 ára
Íþróttir
Börn í 1.–2. bekk prófa fjórar greinar á einu gjaldi: fimleika, frjálsar, körfubolta og taekwondo. Starfsfólk fylgir nemendum Egilsstaðaskóla á æfingar og strætó ekur frá Fellaskóla; tómstundaframlag Múlaþings gildir.
Höttur · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
Eftir skóla: frjálsar og körfubolti kl. 14:15-15:30, fimleikar mán (stelpur) eða lau (strákar), taekwondo fös 17:00-18:00
Haustönn 2026 (skráning til 11. sept.); aftur skráð um áramót
30.000 kr. á önn
Skráning →
Fyrir fullorðna
Íþróttir
Óformlegir badmintontímar fyrir fullorðna sem hafa verið spilaðir á Egilsstöðum í áratugi; ekkert barnastarf.
Höttur – badmintondeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
Fim 20:30-21:30 og sun 10:00-11:00
3.500 kr. á mánuði (kúlur innifaldar)
8 ára
Íþróttir
Hópfimleikar fyrir stúlkur og drengi fædda 2018, næsta skref eftir Allir með.
Höttur – fimleikadeild · Egilsstaðir
Fimleikahúsið, Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum
Mið 16:00-17:30, fös 14:15-15:40, sun 15:15-16:45
Haustönn 2026
Skráning →
10–15 ára
Íþróttir
Fyrir börn fædd 2011–2016 sem vilja æfa fimleika án keppni; hægt að velja eina eða tvær æfingar á viku og byrjendur eru velkomnir.
Höttur – fimleikadeild · Egilsstaðir
Fimleikahúsið, Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum
Stúlkur mið 17:30-19:00 og fim 16:00-17:30; drengir þri og mið 16:00-17:30
Haustönn 2026
Skráning →
2–5 ára
Íþróttir
Vikulegur tími á laugardögum með leikjum, þrautabrautum og kynningu á fimleikaáhöldum; góður grunnur fyrir allar íþróttir. Gjöld sjást í Abler við skráningu.
Höttur – fimleikadeild · Egilsstaðir
Fimleikahúsið, Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum
Lau: 2024-árg. 09:00-09:45, 2023 09:45-10:30, 2022 10:15-11:15, 2021 11:00-12:00
Haustönn 2026
Skráning →
12–15 ára
Íþróttir
Eldri flokkar æfa á Fellavelli og í íþróttahúsinu, þar á meðal á morgnana fyrir skóla; 3. flokkur á einnig samæfingar á Reyðarfirði.
Höttur – knattspyrnudeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum og Fellavöllur (gervigras) í Fellabæ
4 æfingar á viku, m.a. morgunæfingar kl. 7:00-8:00 og samæfingar; sjá tímatöflu
Vetur 2026–2027
130.000 kr. árgjald (gildir til loka ágúst 2027)
Skráning →
8–11 ára
Íþróttir
Strákar og stelpur æfa í sitt hvorum flokki, m.a. á gervigrasinu á Fellavelli og á laugardögum inni. Tímar hvers flokks eru í tímatöflunni.
Höttur – knattspyrnudeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum og Fellavöllur (gervigras) í Fellabæ
3 æfingar á viku, á Fellavelli og í íþróttahúsinu; sjá tímatöflu
Vetur 2026–2027
Skráning →
6–7 ára
Íþróttir
Þrjár æfingar á viku inni í íþróttahúsi yfir veturinn og á Vilhjálmsvelli á sumrin; sér hópar fyrir stráka og stelpur.
Höttur – knattspyrnudeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
Strákar þri 16:30-17:30, fim 14:15-15:15, lau 11:00-12:00; stelpur þri og fim 15:30-16:30, lau 11:00-12:00
Vetur 2026–2027
Skráning →
4–5 ára
Íþróttir
Fyrstu skrefin í fótbolta fyrir stráka og stelpur á leikskólaaldri, einu sinni í viku inni í íþróttahúsinu.
Höttur – knattspyrnudeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
Mið 16:20-17:30
Vetur 2026–2027
Skráning →
8–17 ára
Íþróttir
Hlaup, stökk og köst; vetraræfingar inni í íþróttahúsinu og sumaræfingar á Vilhjálmsvelli. Tímatafla og aldursflokkar eru birt á Facebook-síðu deildarinnar; yngstu börnin æfa í Allir með.
Höttur – frjálsíþróttadeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum (vetur) og Vilhjálmsvöllur (sumar)
Allt árið
9 ára og eldri
Íþróttir
Keppnishópar í hópfimleikum og stökkfimi fyrir iðkendur fædda 2017 og fyrr; liðin keppa á mótum Fimleikasambandsins. Nákvæmir tímar hvers flokks eru í tímatöflunni.
Höttur – fimleikadeild · Egilsstaðir
Fimleikahúsið, Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum
3–4 æfingar á viku eftir flokki (4.–1. flokkur, drengir yngri/eldri, meistaraflokkur)
Haustönn 2026
Skráning →
16 ára og eldri
Íþróttir
Líkamsræktarstöð með daglegum hóptímum og tækjasal sem er opinn allan sólarhringinn; einnig í boði kort eingöngu fyrir salinn og einkaþjálfun.
Austur líkamsrækt · Egilsstaðir
Austur, Lyngási 12, Egilsstöðum
Daglegir hóptímar; tækjasalur opinn allan sólarhringinn
12.490 kr. á mánuði (hóptímar og salur)
Skráning →
11 ára og eldri
Íþróttir
Námskerfi Háskólans á Hólum í reiðmennsku sem lýkur með prófi á hverju stigi; fyrir börn fædd 2015 eða fyrr og fullorðna.
Hestamannafélagið Freyfaxi · Egilsstaðir
Reiðhöllin á Iðavöllum
Nóvember–apríl (skráning í október)
Veturinn 2025–26: 90.000 kr. (12 skipti, lánshestur) eða 60.000 kr. með eigin hest
4–5 ára
Íþróttir
Stuttur vikulegur körfuboltatími fyrir leikskólabörn með leikjum og boltaæfingum.
Höttur – körfuknattleiksdeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
Þri 16:40-17:20
Frá 8. sept. 2026
Skráning →
8–13 ára
Íþróttir
Þrír drengjahópar eftir aldri, þrjár til fjórar æfingar á viku. Skráning í Abler og tómstundaframlag Múlaþings gildir.
Höttur – körfuknattleiksdeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
3.–4. b.: þri 17:30-18:30, fim 16:30-17:30, sun 12:30-13:30; 5.–6. b.: mið 19:30-20:30, fös 16:30-17:30, sun 11:00-12:30; 7.–8. b.: mán 19:00-20:30, fim 17:30-19:00, fös 15:30-17:00, sun 13:30-15:00
Frá ágúst 2026, veturinn 2026–2027
Skráning →
8–13 ára
Íþróttir
Tveir stúlknahópar eftir aldri, þrjár til fjórar æfingar á viku. Skráning í Abler og tómstundaframlag Múlaþings gildir.
Höttur – körfuknattleiksdeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
3.–5. b.: mán og mið 14:30-15:30, lau 13:00-14:00; 6.–8. b.: þri 20:00-21:00, mið 19:30-21:00, fös 19:00-20:30, lau 13:00-14:30
Frá ágúst 2026, veturinn 2026–2027
Skráning →
14–19 ára
Íþróttir
Keppnisflokkar sem æfa nær daglega og spila í Íslandsmóti; styrktarþjálfun eldri flokka bætist við. Tímar hvers flokks eru í tímatöflunni á hottur.is.
Höttur – körfuknattleiksdeild · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
4–5 æfingar á viku eftir flokki (9. b. drengir, 10. b. drengir, 9.–11. fl. stúlkur, 12. fl. drengir)
Frá ágúst 2026, veturinn 2026–2027
Skráning →
60 ára og eldri
Íþróttir
Leikfimi með leiðbeinanda í líkamsræktinni Austur og styttri stólaleikfimi í Hlymsdölum fyrir þá sem vilja rólegri hreyfingu.
Múlaþing – félagsstarf eldri borgara · Egilsstaðir
Austur, Lyngási 12 (leikfimi); Hlymsdalir (stólaleikfimi)
Þri og fim: leikfimi 9:00-10:00, stólaleikfimi 10:45-11:15
September–maí
Fyrir fullorðna
Íþróttir
Línudans í Hlymsdölum, góð hreyfing í skemmtilegum félagsskap; enga reynslu þarf. Opið öllum, ekki þarf að vera félagi í Félagi eldri borgara.
Félag eldri borgara á Fljótsdalshéraði · Egilsstaðir
Félagsmiðstöðin Hlymsdalir
Mán og fim 16:15-17:15
September–maí
6–17 ára
Íþróttir
Krökkunum er skipt í þrjá hópa eftir getu og stærð hjóla og fá leiðsögn í akstri og öryggisbúnaði; áhugasamir mega kíkja á svæðið.
Akstursíþróttafélagið Start · Egilsstaðir
Motocrossbrautin í Ylsgrús
Vikulegar æfingar
Skráning →
Fyrir fullorðna
Íþróttir
Örugg og markviss þjálfun á meðgöngu og eftir fæðingu; börnin mega koma með í tímana.
Austur líkamsrækt · Egilsstaðir
Austur, Lyngási 12, Egilsstöðum
Mán, mið og fös 09:30-10:30
2.–27. nóvember 2026 (4 vikur)
19.000 kr. (50% afsláttur fyrir korthafa)
Skráning →
4–18 ára
Íþróttir
Kennt í litlum hópum (2–4 börn) eftir reynslu: pollar og byrjendur frá 4 ára, börn með smá reynslu og vanir knapar 10–18 ára. Lánshestar í boði og frístundastyrkur Múlaþings gildir.
Hestamannafélagið Freyfaxi · Egilsstaðir
Reiðhöllin á Iðavöllum eða Gíslastöðum
Um tvisvar í mánuði, 90–120 mín. í senn, um helgar og stundum virka daga
Nóvember–apríl (skráning í október)
Veturinn 2025–26: 70.000 kr. (10 skipti, lánshestur) eða 55.000 kr. með eigin hest
Fyrir fullorðna
Íþróttir
Sundleikfimi í sundlauginni á Egilsstöðum. Tímarnir síðdegis eru með leiðbeinanda og greitt er samkvæmt gjaldskrá hans; fyrri tímarnir eru án leiðbeinanda.
Múlaþing – félagsstarf eldri borgara · Egilsstaðir
Íþróttamiðstöðin, Tjarnarbraut 26
Mán og mið 14:30-15:30 (án leiðbeinanda); mán, mið og fös 16:30-17:30 (með leiðbeinanda)
September–maí
5–16 ára
Íþróttir
KFA sér um allan barna- og unglingafótbolta í Fjarðabyggð, frá 8. flokki (5–6 ára) upp í 3. flokk, fyrir stráka og stelpur. Skráning og æfingagjöld fara í gegnum Abler, þar sem frístundastyrkur Fjarðabyggðar nýtist.
Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) · Eskifjörður
Eskjuvöllur
Haustönn 2026
Skráning →
Allir aldrar
Íþróttir
Golfklúbburinn á Eskifirði rekur völlinn í Byggðarholti, þar sem börn upp að 15 ára aldri hafa fengið frían aðgang og haldin hafa verið golfnámskeið fyrir börn. Fréttir birtast á Facebook-síðu klúbbsins.
Golfklúbbur Byggðarholts · Eskifjörður
Byggðarholtsvöllur
Sumar
60 ára og eldri
Íþróttir
Markviss styrktar- og þolþjálfun í litlum hópum fyrir íbúa Fjarðabyggðar 60 ára og eldri, með heilsufarsmælingum haust og vor og fræðsluerindum. Sótt er um á vef Janusar; KFA og Lyftingafélag Reyðarfjarðar sjá um þjálfunina.
Fjarðabyggð – Janus heilsuefling · Eskifjörður
Líkamsræktin í sundlauginni, Eskifirði
Styrktaræfingar 2x og þolæfing 1x í viku með þjálfara
Frá 8.950 kr. á mánuði (niðurgreitt af Fjarðabyggð)
Skráning →
10–17 ára
Íþróttir
Sunddeild Austra heldur úti sundæfingum í sundlauginni á Eskifirði; Hákarlar eru hópur fyrir 5. bekk og eldri. Upplýsingar birtast helst á Facebook-síðu Austra.
Austri Eskifirði – sunddeild · Eskifjörður
Sundlaug Eskifjarðar
Haustönn 2026
Skráning →
6–15 ára
Íþróttir
Blak hefur verið stundað hjá Leikni síðan 1972 og deildin er með æfingar fyrir bæði yngri og eldri grunnskólabörn. Tímar geta breyst milli ára, svo best er að skoða nýjustu æfingatöflu félagsins.
Leiknir Fáskrúðsfirði – blakdeild · Fáskrúðsfjörður
Íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði
1.–4. bekkur: mán 15:30; 5.–10. bekkur: þri 16:30 og fim 18:00 (tafla 2024–25)
Skráning →
Fyrir fullorðna
Íþróttir
Blakæfingar fyrir fullorðna hjá Leikni, þar sem bæði reyndir leikmenn og byrjendur eru velkomnir. Hafðu samband við félagið til að fá staðfesta tíma.
Leiknir Fáskrúðsfirði – blakdeild · Fáskrúðsfjörður
Íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði
Mán 19:30, þri 17:15 og fim 19:00 (tafla 2024–25)
Skráning →
4–15 ára
Íþróttir
Fimleikaæfingar í hópum eftir aldri, frá leikskólakrílum upp í unglinga; iðkendur koma víða að úr Fjarðabyggð. Skráning fer fram í gegnum Abler.
Leiknir Fáskrúðsfirði – fimleikadeild · Fáskrúðsfjörður
Íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði
Kríli (f. 2019–2021): mið 17:00-17:40; 1.–2. bekkur: mið 16:00-17:00 og sun 16:30-18:00; 5. bekkur og eldri: mið 17:45-19:00 og sun 16:30-18:00
Skráning →
5–16 ára
Íþróttir
KFA sér um allan barna- og unglingafótbolta í Fjarðabyggð, frá 8. flokki (5–6 ára) upp í 3. flokk, fyrir stráka og stelpur. Skráning og æfingagjöld fara í gegnum Abler, þar sem frístundastyrkur Fjarðabyggðar nýtist.
Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) · Fáskrúðsfjörður
Knattspyrnuvöllurinn á Búðargrund og íþróttahúsið
Haustönn 2026
Skráning →
Allir aldrar
Íþróttir
Golfhermir í gamla íþróttahúsinu þar sem hægt er að æfa sveifluna og spila velli víða um heim yfir veturinn, fyrir byrjendur jafnt sem vana kylfinga. Fréttir og bókanir fara fram í Facebook-hópi golfhermisins.
Leiknir Fáskrúðsfirði – golf- og píludeild · Fáskrúðsfjörður
Gamla íþróttahúsið (Glaðheimar), Fáskrúðsfirði
Vetur
Stakur tími 3.500 kr.; árgjald 30.000 kr. (hjón 45.000 kr., undir 18 ára 15.000 kr.)
60 ára og eldri
Íþróttir
Markviss styrktar- og þolþjálfun í litlum hópum fyrir íbúa Fjarðabyggðar 60 ára og eldri, með heilsufarsmælingum haust og vor og fræðsluerindum. Sótt er um á vef Janusar; KFA og Lyftingafélag Reyðarfjarðar sjá um þjálfunina.
Fjarðabyggð – Janus heilsuefling · Fáskrúðsfjörður
Íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði
Styrktaræfingar 2x og þolæfing 1x í viku með þjálfara
Frá 8.950 kr. á mánuði (niðurgreitt af Fjarðabyggð)
Skráning →
2–5 ára
Íþróttir
Hreyfing og leikir í íþróttasalnum fyrir leikskólabörn. Tíminn er úr Íþróttaviku Evrópu 2026, svo rétt er að staðfesta hvort hann sé vikulega og hver skráir.
Íþróttaskóli leikskólabarna á Fáskrúðsfirði · Fáskrúðsfjörður
Íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði
Lau 10:00-11:00
Fyrir fullorðna
Íþróttir
Boccia í íþróttahúsinu í Fellabæ, hluti af félagsstarfi eldri borgara á Héraði. Opið öllum, ekki þarf að vera félagi í Félagi eldri borgara.
Félag eldri borgara á Fljótsdalshéraði · Fellabær
Íþróttahúsið í Fellabæ
Mán 14:00-15:00
September–maí
Allir aldrar
Íþróttir
Innanhússæfingar í bogfimi. Byrjendur eru velkomnir á laugardögum og geta fengið boga og búnað að láni; byrjendanámskeið eru auglýst öðru hvoru (15.000 kr., 10.000 kr. fyrir félaga).
Skotfélag Austurlands (Skaust) – bogfimideild · Fellabær
Íþróttahúsið í Fellabæ
Lau 14:00-16:00 og mið 21:30-22:30
4.500 kr. á mánuði
14 ára og eldri
Íþróttir
Glíma og uppgjafartök (BJJ) fyrir unglinga og fullorðna á vegum taekwondodeildar Hattar.
Höttur – taekwondodeild · Fellabær
Íþróttahúsið í Fellabæ
Þri og fim 20:00-21:30
Haustönn 2026
Skráning →