03 - Störf

Störf í boði

Laus störf hjá fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum á Austurlandi.

Atvinnulíf

Verkefnastjóri í fasteignum og viðhaldi

Landsnet · Egilsstaðir

Landsnet leitar að verkefnastjóra í eignaumsjón og viðhaldi á tengivirkjum, byggingum og varaaflsvélum um allt land; starfsstöð getur verið í Reykjavík, á Akureyri eða Egilsstöðum. Krafist er iðn- eða háskólamenntunar á sviði bygginga, framkvæmda eða tækni og reynslu af viðhaldi eða verkefnastjórnun.

Starfshlutfall: Fullt starf Umsóknarfrestur: 2. nóv.
Stjórnsýsla

Ráðgjafi á Austurlandi

Vinnumálastofnun · Egilsstaðir

Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða ráðgjafa á þjónustuskrifstofu sína á Austurlandi til að þjónusta atvinnuleitendur og atvinnurekendur. Starfsstöð ráðgjafa er á Egilsstöðum.

Starfshlutfall: 50% Umsóknarfrestur: 5. nóv.
Verslun og þjónusta

N1 Egilsstaðir ræstingar

N1 · Egilsstaðir

N1 óskar eftir starfsfólki í daglega ræstingu á þjónustustöðinni á Egilsstöðum, þ.e. gólf og snyrtiaðstöðu samkvæmt þrifaáætlun. Unnið er sjö daga í senn og sjö daga frí, kl. 21:00–24:00.

Starfshlutfall: Hlutastarf, kl. 21:00–24:00, sjö daga vinna og sjö daga frí Umsóknarfrestur:
Skráðu starf