01 - Fréttir

Allt úr fjórðungnum

Fréttir úr byggðunum á Austurlandi og af öllu sem varðar fjórðunginn. Uppfært daglega.

20 fréttir
Menning 28. okt. Austurland Austurfrétt

Tekist á við skammdegið með ljósum, list og lifandi sögum á Dögum myrkurs

Um helgina hófst hátíðin Dagar myrkurs í Fjarðabyggð en sú stendur fram á Hrekkjavökuna á laugardaginn kemur. Yfir þennan tíma er tekið mót skammdeginu með ljósum, listum og lifandi sögum en í heild eru fimmtán viðburðir á dagskránni.

Lesa greinina →
Menning 26. okt. Austurland Austurfrétt

Menningarstofa Fjarðabyggðar og Þjóðaróperan vilja efla óperustarf á Austurlandi

Menningarstofa Fjarðabyggðar og nýstofnuð Þjóðaróperan hafa undirritað viljayfirlýsingu til þriggja ára um áframhaldandi samstarf um óperusýningar, fræðslu og þróun tónlistarstarfs á Austurlandi. Með því megi auka aðgengi íbúa að óperulist og skapa fleiri tækifæri fyrir tónlistarfólk á svæðinu.

Menning 23. okt. Eskifjörður Austurfrétt

Stórviðburður í tónlistarlífi Austurlands með fyrstu sýningu Þjóðaróperunnar

Það gengur mikið á í dag, á morgun og á sunnudag í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði en þar er starfsfólk nýrrar Þjóðaróperu Íslendinga að setja upp sinn opnunarviðburð, verkið Undir sömu stjörnu, sem sýna skal klukkan 15 á sunnudaginn kemur. Vel yfir hundrað manns koma að viðamikilli uppsetningunni með einum eða öðrum hætti.

Menning 22. okt. Neskaupstaður Austurfrétt

Kvikmyndakvöld bætast við fjölbreytta dagskrá Norðfjarðarkirkju

Mikið líf hefur verið í starfi Norðfjarðarkirkju síðustu daga og vikur og þar verður ekkert lát á því í kvöld hefst nýr viðburður sem sóknarpresturinn kallar Guð á Hvíta tjaldinu - áhrifasögur biblíunnar. Allra fyrsta kvikmyndin sem sjá skal og ræða er hin vinsæla en umdeilda Monty Python´s Life of Brian.

Menning 22. okt. Austurland RÚV

Nýdönsk stal bíl fyrir mistök

Hljómsveitin Nýdönsk lenti í því óheppilega atviki að taka bíl í misgripum á Egilsstaðaflugvelli fyrr í mánuðinum. Sveitin var komin austur til að halda tónleika á Breiðdalsvík og taka upp lög.

Menning 15. okt. Austurland Austurfrétt

Pólsk kvikmyndahátíð í Fjarðabyggð sýnir örar samfélagsbreytingar

Pólsk kvikmyndahátíð verður haldin í Fjarðabyggð um helgina í sjötta sinn. Örar breytingar í pólsku samfélagi eru rauði þráðurinn í dagskrá hátíðarinnar. Stjórnandi hátíðarinnar segir þemað eiga mikið erindi við bæði Íslendinga og Pólverja búsetta hérlendis.

Menning 15. okt. Seyðisfjörður Austurfrétt

Enn einn heiðurinn í skaut Baugs Bjólfs

Hönnun og útlit útsýnispallsins Baugs Bjólfs yfir Seyðisfirði heldur áfram að vekja mikla athygli langt út fyrir landsteinanna. Nú hefur hönnunin í annað sinn á skömmum tíma komist á lista yfir framúrskarandi arkitektúr í virtri samkeppni.

Menning 14. okt. Neskaupstaður Austurfrétt

Áríðandi lagfæringar á Safnahúsinu í Neskaupstað farið fram en meira þarf að gera

Áríðandi bráðabrigða lagfæringar á Safnahúsinu í Neskaupstað sem mælt var með af hálfu byggingafræðings eftir úttekt þar fyrir nokkru hafa þegar verið gerðar af hálfu Fjarðabyggðar. Áhyggjur byggingafræðingsins snérust um að þak hússins hefur sigið töluvert, útveggir spyrnst út og súlur höfðu brotnað niður gegnum gólfklæðningu á nokkrum stöðum.

Menning 12. okt. Egilsstaðir Austurfrétt

Tvö ár frá opnun Setursins á Egilsstöðum

Tvö ár eru í október síðan hópur fólks í fjarvinnu á Egilsstöðum opnaði Setrið vinnustofu. Bæði bókunum og vinnustundum þar hefur fjölgað verulega á milli ára og var nýliðinn september stærsti mánuðurinn í sögu Setursins.

Menning 10. okt. Austurland Austurfrétt

Leikhúskvöld: Blakkát

Það er ekki á hverjum degi sem okkur Borgfirðingum (eða íbúum Austurlands almennt) býðst að fara í leikhús, hvað þá í heimabyggð, en í gærkvöldi frumsýndi Leikfélag Fljótsdalshéraðs farsann Blakkát eftir Björk Jakobsdóttur við góðar undirtektir gesta í Fjarðarborg. Hrafndís Bára Einarsdóttir leikstýrir.

Menning 9. okt. Borgarfjörður eystri Austurfrétt

„Móttóið hefur alltaf verið að láta bara pínu vaða“

Ásgrímur Ingi Arngrímsson er ekki bara skólastjóri Brúarásskóla heldur líka veitingamaður og viðburðahaldari í félagsheimilinu Fjarðarborg á Borgarfirði eystra. Hann á líka að baki störf bæði á sjó og í fréttamennsku á einu mesta breytingaskeiði Austurlands. Ofan á þetta allt er hann höfundur vinsælla dægurlagatexta.

Menning 8. okt. Austurland Austurfrétt

Síðustu dagar BRASins sem gengið hefur vonum framar

Fjórar dagar lifa nú af BRASinu svokallaða sem er menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi en allt skipulag hátíðarinnar nú var, ólíkt því sem verið hefur áður, í höndum fagfólks hjá Múlaþingi og Fjarðabyggð. Allt hefur tekist eins og best verður á kosið að sögn eins skipuleggjenda.

Menning 7. okt. Austurland Austurfrétt

Notalegar sögustundir við varðeld víðs vegar í Múlaþingi

Sögustundir við varðeld er röð viðburða sem Bókasafn Múlaþings í samvinnu við Náttúruskólann mun halda á öllum sínum starfsstöðvum í vetur. Þegar hafa tvær slíkar stundir verið haldnar og vakið mikla ánægju.

Menning 5. okt. Vopnafjörður Austurfrétt

Barnaheill og Geðhjálp taka höndum saman á Austurlandi

Samtökin Barnaheill og Geðhjálp hófu sameiginlegt átak sitt á Austurlandi fyrr í dag þegar teymi frá báðum samtökum auk tónlistarmannsins Unnsteins Manúel eyddu lunga dagsins með ungmennum á Vopnafirði. Hugmyndin að setjast niður með unga fólkinu þar og víðar og hlusta.

Sjá fleiri fréttir