01 - Fréttir

Allt úr fjórðungnum

Fréttir úr byggðunum á Austurlandi og af öllu sem varðar fjórðunginn. Uppfært daglega.

8 fréttir
Húsnæði 22. okt. Neskaupstaður Austurfrétt

Óánægja með úthlutun lóðar við Kvíabólsfjöru til nýs aðila

Óánægja ríkir hjá mörgum vegna þeirrar ákvörðunar skipulags- og framkvæmdanefndar Fjarðabyggðar að úthluta lóð við Kvíabólsfjöru í Neskaupstað til nýs aðila eftir að hópurinn Bærinn okkar hafði töluvert áður fengið vilyrði fyrir þeirri sömu lóð og eytt verulegum tíma til að hanna þar fallega baðstofu og skapa góðar aðstæður fyrir alla sem stunda sjósport af einhverju tagi.

Lesa greinina →
Húsnæði 20. okt. Austurland Austurfrétt

Viljayfirlýsing um byggingu nýrra íbúða fyrir eldri borgara í Fjarðabyggð

Sex til átta hentugar, smærri íbúðir ætlaðar 60 ára og eldri munu að öllum líkindum rísa miðsvæðis bæði á Eskifirði og Fáskrúðsfirði á næstu misserum. Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt drög að viljayfirlýsingu bæjarfélagsins um slíka íbúðauppbyggingu við fyrirtækið R101 og verður formlega skrifað undir það plaggið í dag.

Húsnæði 20. okt. Austurland Austurfrétt

Nýtt svæðisráð um strandsvæðisskipulag Austfjarða skipað

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, staðfesti í gær skipan nýs svæðisráðs um strandsvæðisskipulags Austfjarða. Guðjón Bragason, fyrrum lögfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga, er formaður ráðsins.

Húsnæði 16. okt. Egilsstaðir Austurfrétt

Hótelhluti Valaskjálfar of lítill fyrir skrifstofur Múlaþings

Þótt Múlaþing keypti Valaskjálf til að vernda samkomusal hússins og breytti hótelálmunni í skrifstofur myndi það ekki duga til að leysa húsnæðisþörf sveitarfélagsins. Sveitarfélagið hefði bolmagn til kaupanna og yrði innan marka samkvæmt reglum um fjármál sveitarfélaga, en reksturinn yrði í járnum.

Húsnæði 14. okt. Seyðisfjörður Austurfrétt

HMS þarf í þriðja sinn að meta hvort veita eigi eigendum sjávarjarða aðild að byggingarleyfisumsókn

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (ÚUA) hefur fellt úr gildi ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) um neita eigendum sex jarða í Seyðisfirði aðild að umsókn Kaldvíkur um byggingarleyfi fyrir fiskeldiskvíum í firðinum. HMS þarf þar með að taka ósk landeigendanna um aðild til skoðunar í þriðja sinn.

Húsnæði 13. okt. Fáskrúðsfjörður Austurfrétt

Nestak færir út kvíar til Fáskrúðsfjarðar

Byggingaverktakafyrirtækið Nestak í Neskaupstað hefur fest kaup á iðnaðarhúsnæði á Fáskrúðsfirði en fyrirtækið hefur verið að sinna sífellt fleiri verkefnum á Suðurfjörðum Austurlands. Húsnæðiskaupin liður í að auka og bæta þjónustuna þar enn frekar.

Húsnæði 12. okt. Austurland Austurfrétt

Verknámshús VA ekki á dagskrá ráðuneytisins að sinni

Ekki stendur til að greina húsnæðisþörf Verkmenntaskóla Austurlands fyrr en búið er að koma þeim verkefnum sem nú eru í undirbúningi vel á rekspöl. Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir vonbrigðum yfir að ekkert hafi gerst þrátt fyrir undirritun viljayfirlýsingar fyrir rúmum fjórum árum.

Húsnæði 6. okt. Egilsstaðir Austurfrétt

Byggðaráð Múlaþings vill ekki kaupa Valaskjálf

Byggðaráð Múlaþings samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu til sveitarstjórnar þar sem mælt er gegn því að sveitarfélagið kaupi samkomusal Valaskjálfar á Egilsstöðum. Greining leiddi í ljós að húsnæðið hentaði ekki sem ráðhús og kostnaður færi yfir tvo milljarða króna.