01 - Fréttir

Allt úr fjórðungnum

Fréttir úr byggðunum á Austurlandi og af öllu sem varðar fjórðunginn. Uppfært daglega.

72 fréttir
Samfélag 28. okt. Eskifjörður mbl.is

Matreiðslunámskeið í Eskifjarðarskóla 1953

Fjórir strákar og allar stúlkurnar sóttu matreiðslunámskeið í Eskifjarðarskóla haustið 1953. Þorsteinn Skúlason hlaut verðlaun fyrir uppskriftabókina sína og verðlaunagripurinn prýðir enn borðstofuborð hans.

Lesa greinina →
Samfélag 27. okt. Austurland RÚV

Aukin hætta á skriðum og grjóthruni vegna úrkomu

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna aukinnar hættu á skriðum og grjóthruni á Austfjörðum, Austurlandi að Glettingi og á Tröllaskaga. Viðvörunin er í gildi til hádegis á morgun.

Samfélag 27. okt. Austurland Bændablaðið

Breyttust í byggingastjóra á einni nóttu

Þann 6. febrúar 2024 gekk óveður yfir Austfirði og urðu bændurnir á Vattarnesi sérstaklega illa úti, en á litlum bletti magnaðist vindurinn upp og olli stórtjóni á íbúðarhúsi og fjárhúsum. Þak útihúsanna fauk af í heilu lagi og splundraðist svo í annarri ...

Samfélag 27. okt. Austurland mbl.is

Varað við hvassviðri á Austfjörðum í kvöld

Það hvessir um klukkan 19 í kvöld úr norðvestri á Austfjörðum og geta vindhviður náð allt að 35 m/s í vindstrengjum við fjöll, t.d. í Hamarfirði.

Samfélag 26. okt. Egilsstaðir Austurfrétt

Birtir til í leikskólamálum í Múlaþingi

Tveir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa í leikskólann Tjarnarskóg á Egilsstöðum en mikil mannekla þar í byrjun skólaársins takmarkaði verulega hve mörg börn komust þar að. Það lítur nú allt til betri vegar þó áfram þurfi að auglýsa eftir starfsfólki.

Samfélag 26. okt. Austurland Vísir

„Við getum ekki öll búið í Reykjavík“

Sveitarstjóri Múlaþings segir að viðbót við Loftbrú, sem innviðaráðherra greindi frá í gær, sé ekki það sem verið sé að kalla eftir. Ekki geti allir búið í Reykjavík og jafna verði aðgengi íbúa landsbyggðar að þjónustu.

Samfélag 26. okt. Austurland Vísir

Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum

Við sem búum á Austurlandi tökum þátt í að fjármagna sameiginlega þjónustu landsmanna rétt eins og aðrir. Stór hluti þeirrar þjónustu og starfsemi er á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru margar helstu stofnanir ríkisins og þangað liggur leið okkar til að sækja fjölbreytta þjónustu, menningarviðburði og íþróttastarf. Sambærileg staða blasir við íbúum annarra landshluta sem búa fjarri Reykjavík.

Samfélag 26. okt. Austurland Austurfrétt

Jóna Árný nýr formaður Hafnarsambands Íslands

Bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, Jóna Árný Þórðardóttir, var á föstudaginn kjörin nýr formaður Hafnarsambands Íslands. Tekur hún við embættinu af Lúðvík Geirssyni og er allra fyrsta konan til að gegna þessu embætti.

Sjá fleiri fréttir