01 - Fréttir

Allt úr fjórðungnum

Fréttir úr byggðunum á Austurlandi og af öllu sem varðar fjórðunginn. Uppfært daglega.

48 fréttir
Samgöngur 28. okt. Austurland Austurfrétt

SSA krefst þess að stjórnvöld falli frá breytingum á Loftbrúnni

Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) krefst þess að stjórnvöld falli frá fyrirhuguðum breytingum á afsláttarkjörum Loftbrúarinnar og tryggi þess í stað nægilegt fjármagn til að efla stuðning við það kerfi.

Lesa greinina →
Samgöngur 28. okt. Austurland Austurfrétt

Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina

Loftbrúin var sett á laggirnar árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu og efla byggðir.

Samgöngur 27. okt. Austurland mbl.is

Vilja hærri afslátt í stað fastrar upphæðar

Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og krefst þess að stjórnvöld falli frá áformum um að skipta núverandi hlutfallslegri niðurgreiðslu flugfargjalda út fyrir fasta krónutölu.

Samgöngur 27. okt. Austurland mbl.is

Skriða féll inn á veg á Njarðvíkurskriðum

Aukin hætta er á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu á Austfjörðum og hefur Vegagerðin tilkynnt um skriðu sem féll inn á veg á Njarðvíkurskriðum.

Samgöngur 27. okt. Austurland Austurfrétt

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Tilkynnt var á vef Stjórnarráðsins 23. október að frá og með 1. janúar 2027 yrði afsláttur Loftbrúar föst krónutala, 7.000 krónur á hvern fluglegg, í stað 40% af fargjaldi. Samkvæmt þessu lækkar meðalniðurgreiðsla á hvern fluglegg um tæpan fjórðung og heildarniðurgreiðslur ríkisins til verkefnisins lækka úr um 740 milljónum í um 560 milljónir.

Samgöngur 27. okt. Austurland mbl.is

Segja vegið að búsetuskilyrðum

Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og skorar á stjórnvöld að falla frá áformunum. Bæjarráðið segir skerðingu niðurgreiðslna á flugfargjöldum óásættanlega aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.

Samgöngur 27. okt. Austurland Austurfrétt

Fjarðabyggð hættir rekstri eigin rafhleðslustöðva

Þær rafhleðslustöðvar sem sveitarfélagið Fjarðabyggð setti upp á sínum tíma og hefur rekið síðan verða aflagðar samkvæmt ákvörðun skipulags- og framkvæmdanefndar. Búnaður þeirra stöðva orðinn úreltur og þær að mestu hættar að virka og skila tekjum.

Samgöngur 26. okt. Austurland Vísir

„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segir Loftbrú snúast um að jafna stöðuna milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Áhyggjuefni sé að ákvörðunum sé slengt fram án aðkomu sveitarfélaganna og landsbyggðarinnar. Hún vilji sjá innviðaráðherra „bakka með þessa ákvörðun“ um krónutölu í stað prósentuhlutfalls.

Sjá fleiri fréttir