01 - Fréttir
Allt úr fjórðungnum
Fréttir úr byggðunum á Austurlandi og af öllu sem varðar fjórðunginn. Uppfært daglega.
Menning
26. okt.
Austurland
Austurfrétt
Menningarstofa Fjarðabyggðar og nýstofnuð Þjóðaróperan hafa undirritað viljayfirlýsingu til þriggja ára um áframhaldandi samstarf um óperusýningar, fræðslu og þróun tónlistarstarfs á Austurlandi. Með því megi auka aðgengi íbúa að óperulist og skapa fleiri tækifæri fyrir tónlistarfólk á svæðinu.
Menning
23. okt.
Eskifjörður
Austurfrétt
Það gengur mikið á í dag, á morgun og á sunnudag í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði en þar er starfsfólk nýrrar Þjóðaróperu Íslendinga að setja upp sinn opnunarviðburð, verkið Undir sömu stjörnu, sem sýna skal klukkan 15 á sunnudaginn kemur. Vel yfir hundrað manns koma að viðamikilli uppsetningunni með einum eða öðrum hætti.
Menning
22. okt.
Neskaupstaður
Austurfrétt
Mikið líf hefur verið í starfi Norðfjarðarkirkju síðustu daga og vikur og þar verður ekkert lát á því í kvöld hefst nýr viðburður sem sóknarpresturinn kallar Guð á Hvíta tjaldinu - áhrifasögur biblíunnar. Allra fyrsta kvikmyndin sem sjá skal og ræða er hin vinsæla en umdeilda Monty Python´s Life of Brian.
Menning
22. okt.
Austurland
RÚV
Hljómsveitin Nýdönsk lenti í því óheppilega atviki að taka bíl í misgripum á Egilsstaðaflugvelli fyrr í mánuðinum. Sveitin var komin austur til að halda tónleika á Breiðdalsvík og taka upp lög.
Menning
15. okt.
Austurland
Austurfrétt
Pólsk kvikmyndahátíð verður haldin í Fjarðabyggð um helgina í sjötta sinn. Örar breytingar í pólsku samfélagi eru rauði þráðurinn í dagskrá hátíðarinnar. Stjórnandi hátíðarinnar segir þemað eiga mikið erindi við bæði Íslendinga og Pólverja búsetta hérlendis.
Menning
15. okt.
Seyðisfjörður
Austurfrétt
Hönnun og útlit útsýnispallsins Baugs Bjólfs yfir Seyðisfirði heldur áfram að vekja mikla athygli langt út fyrir landsteinanna. Nú hefur hönnunin í annað sinn á skömmum tíma komist á lista yfir framúrskarandi arkitektúr í virtri samkeppni.
Menning
14. okt.
Neskaupstaður
Austurfrétt
Áríðandi bráðabrigða lagfæringar á Safnahúsinu í Neskaupstað sem mælt var með af hálfu byggingafræðings eftir úttekt þar fyrir nokkru hafa þegar verið gerðar af hálfu Fjarðabyggðar. Áhyggjur byggingafræðingsins snérust um að þak hússins hefur sigið töluvert, útveggir spyrnst út og súlur höfðu brotnað niður gegnum gólfklæðningu á nokkrum stöðum.
Menning
12. okt.
Egilsstaðir
Austurfrétt
Tvö ár eru í október síðan hópur fólks í fjarvinnu á Egilsstöðum opnaði Setrið vinnustofu. Bæði bókunum og vinnustundum þar hefur fjölgað verulega á milli ára og var nýliðinn september stærsti mánuðurinn í sögu Setursins.
Menning
10. okt.
Austurland
Austurfrétt
Það er ekki á hverjum degi sem okkur Borgfirðingum (eða íbúum Austurlands almennt) býðst að fara í leikhús, hvað þá í heimabyggð, en í gærkvöldi frumsýndi Leikfélag Fljótsdalshéraðs farsann Blakkát eftir Björk Jakobsdóttur við góðar undirtektir gesta í Fjarðarborg. Hrafndís Bára Einarsdóttir leikstýrir.
Menning
9. okt.
Stöðvarfjörður
Austurfrétt
Ein af vinsælustu og langlífustu hljómsveitum Íslandssögunnar, Nýdönsk, er stödd á Austfjörðum þessa dagana við upptökur í Stúdíó Síló á Stöðvarfirði og til að halda tónleika á Breiðdalsvík. Ferðin austur byrjaði þó með lögbroti af gáleysi.
Menning
9. okt.
Borgarfjörður eystri
Austurfrétt
Ásgrímur Ingi Arngrímsson er ekki bara skólastjóri Brúarásskóla heldur líka veitingamaður og viðburðahaldari í félagsheimilinu Fjarðarborg á Borgarfirði eystra. Hann á líka að baki störf bæði á sjó og í fréttamennsku á einu mesta breytingaskeiði Austurlands. Ofan á þetta allt er hann höfundur vinsælla dægurlagatexta.
Menning
8. okt.
Austurland
Austurfrétt
Fjórar dagar lifa nú af BRASinu svokallaða sem er menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi en allt skipulag hátíðarinnar nú var, ólíkt því sem verið hefur áður, í höndum fagfólks hjá Múlaþingi og Fjarðabyggð. Allt hefur tekist eins og best verður á kosið að sögn eins skipuleggjenda.
Menning
7. okt.
Austurland
Austurfrétt
Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir á föstudagskvöld gamanleikinn Blakkát. Leikverkið, sem er meðal annars sett upp í tilefni 60 ára afmælis félagsins, verður sýnt á sex stöðum á Austurlandi.
Menning
7. okt.
Austurland
Austurfrétt
Sögustundir við varðeld er röð viðburða sem Bókasafn Múlaþings í samvinnu við Náttúruskólann mun halda á öllum sínum starfsstöðvum í vetur. Þegar hafa tvær slíkar stundir verið haldnar og vakið mikla ánægju.
Menning
5. okt.
Vopnafjörður
Austurfrétt
Samtökin Barnaheill og Geðhjálp hófu sameiginlegt átak sitt á Austurlandi fyrr í dag þegar teymi frá báðum samtökum auk tónlistarmannsins Unnsteins Manúel eyddu lunga dagsins með ungmennum á Vopnafirði. Hugmyndin að setjast niður með unga fólkinu þar og víðar og hlusta.
Menning
5. okt.
Austurland
Austurfrétt
Í tilefni af sjötugsafmæli Bubba Morthens í sumar sem leið hafa meðlimir hinnar austfirsku hljómsveitar SúEllen tekið sig til og gefið út vel þekkt lag með Bubba en með sínu eigin nefi. Viðtökurnar verið aldeilis fínar.
Menning
2. okt.
Austurland
Austurfrétt
Hljómsveitin Shape sendi í vikunni frá sér sitt fyrsta lag í hartnær aldarfjórðung. Sveitin, sem var stofnuð í Alþýðuskólanum á Eiðum árið 1994, kemur saman á Eyrarrokki á Akureyri í kvöld á sínum fyrstu tónleikum í sjö ár.
Menning
2. okt.
Reyðarfjörður
Austurfrétt
Ungmennin í 9. bekk Grunnskóla Reyðarfjarðar leggja í nokkuð ævintýralega göngu snemma í fyrramálið en ganga skal alla leið frá Karlsskála í norðri að Vattarnesi í suðri eða Reyðarfjörðinn allan. Leiðin sú alls 67 kílómetra löng en þetta gera ungmennin til að safna fyrir góðu skólaferðalagi næsta vor.
Menning
2. okt.
Seyðisfjörður
Austurfrétt
Listunnendur ættu sannarlega að njóta sín á Seyðisfirði á næstunni því hvorki meira né minna en tvær nýjar myndlistarsýningar verða í boði fyrir áhugasama næstu vikurnar. Önnur í glænýju galleríi en hin í menningarmiðstöðinni Skaftfelli.