01 - Fréttir

Allt úr fjórðungnum

Fréttir úr byggðunum á Austurlandi og af öllu sem varðar fjórðunginn. Uppfært daglega.

72 fréttir
Samfélag 28. okt. Eskifjörður mbl.is

Matreiðslunámskeið í Eskifjarðarskóla 1953

Fjórir strákar og allar stúlkurnar sóttu matreiðslunámskeið í Eskifjarðarskóla haustið 1953. Þorsteinn Skúlason hlaut verðlaun fyrir uppskriftabókina sína og verðlaunagripurinn prýðir enn borðstofuborð hans.

Lesa greinina →
Samfélag 27. okt. Austurland RÚV

Aukin hætta á skriðum og grjóthruni vegna úrkomu

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna aukinnar hættu á skriðum og grjóthruni á Austfjörðum, Austurlandi að Glettingi og á Tröllaskaga. Viðvörunin er í gildi til hádegis á morgun.

Samfélag 27. okt. Austurland Bændablaðið

Breyttust í byggingastjóra á einni nóttu

Þann 6. febrúar 2024 gekk óveður yfir Austfirði og urðu bændurnir á Vattarnesi sérstaklega illa úti, en á litlum bletti magnaðist vindurinn upp og olli stórtjóni á íbúðarhúsi og fjárhúsum. Þak útihúsanna fauk af í heilu lagi og splundraðist svo í annarri ...

Samfélag 27. okt. Austurland mbl.is

Varað við hvassviðri á Austfjörðum í kvöld

Það hvessir um klukkan 19 í kvöld úr norðvestri á Austfjörðum og geta vindhviður náð allt að 35 m/s í vindstrengjum við fjöll, t.d. í Hamarfirði.

Samfélag 26. okt. Egilsstaðir Austurfrétt

Birtir til í leikskólamálum í Múlaþingi

Tveir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa í leikskólann Tjarnarskóg á Egilsstöðum en mikil mannekla þar í byrjun skólaársins takmarkaði verulega hve mörg börn komust þar að. Það lítur nú allt til betri vegar þó áfram þurfi að auglýsa eftir starfsfólki.

Samfélag 26. okt. Austurland Vísir

„Við getum ekki öll búið í Reykjavík“

Sveitarstjóri Múlaþings segir að viðbót við Loftbrú, sem innviðaráðherra greindi frá í gær, sé ekki það sem verið sé að kalla eftir. Ekki geti allir búið í Reykjavík og jafna verði aðgengi íbúa landsbyggðar að þjónustu.

Samfélag 26. okt. Austurland Vísir

Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum

Við sem búum á Austurlandi tökum þátt í að fjármagna sameiginlega þjónustu landsmanna rétt eins og aðrir. Stór hluti þeirrar þjónustu og starfsemi er á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru margar helstu stofnanir ríkisins og þangað liggur leið okkar til að sækja fjölbreytta þjónustu, menningarviðburði og íþróttastarf. Sambærileg staða blasir við íbúum annarra landshluta sem búa fjarri Reykjavík.

Samfélag 26. okt. Austurland Austurfrétt

Jóna Árný nýr formaður Hafnarsambands Íslands

Bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, Jóna Árný Þórðardóttir, var á föstudaginn kjörin nýr formaður Hafnarsambands Íslands. Tekur hún við embættinu af Lúðvík Geirssyni og er allra fyrsta konan til að gegna þessu embætti.

Samfélag 23. okt. Austurland mbl.is

Eignarmörk kortlögð á yfir 80% landsins

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur lokið við að áætla eignarmörk um 1.150 jarða á Norðausturlandi og Austurlandi. Jarðirnar ná yfir um 20 þúsund ferkílómetra og með nýju gögnunum hafa eignarmörk verið áætluð á svæðum sem samsvara um 83% af flatarmáli Íslands.

Samfélag 23. okt. Austurland mbl.is

Fyrsta konan í embætti formanns

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, er fyrsta konan til að gegna embætti formanns Hafnarsambands Íslands. Hún var kjörin formaður á ársþingi sambandsins sem lauk í dag.

Samfélag 23. okt. Austurland Vísir

Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, var kjörin formaður Hafnarsambands Íslands á ársþingi sambandsins sem lauk í dag. Hún er jafnframt fyrsta konan til að gegna embætti formanns Hafnarsambandsins.

Samfélag 23. okt. Stöðvarfjörður Bændablaðið

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arnardóttur, eiganda jarðarinnar Óseyrar í Stöðvarfirði, um viðurkenningu á skaðabótaábyrgð sveitarfélagsins vegna ágangs búfjár á jörðina. Málskostnaður féll niður. Hrefna krafði ...

Samfélag 22. okt. Austurland RÚV

Áfram engir dýralæknar á stóru svæði

Lítið hefur breyst í mönnun dýralækna á suðausturhorni landsins. Ekki hefur tekist að manna vaktir frá því 16. ágúst allt frá Kirkjubæjarklaustri að Breiðdalsvík. Stjórnvöld hafa ekkert gert, segir formaður dýralæknafélagsins.

Samfélag 22. okt. Austurland RÚV

Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun

Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun í öllum landshlutum. Veiðar eru leyfðar frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum í tæpan mánuð eða allt til jóla þar sem tímabilið er lengst. Á Suðurlandi og Norðvesturlandi má veiða til 17. nóvember, á Vestfjörðum viku lengur, til 1. desember á Vesturlandi og Norðvesturlandi og til 22. desember á Austurlandi. Þar þykir rjúpnastofninn sterkastur. Veiðar…

Samfélag 22. okt. Austurland Austurfrétt

Risastökk Samfylkingarinnar á milli mánaða

Fylgi Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi tekur kipp í nýrri skoðanakönnun. Fylgi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur bætt við sig í sumar gengur til baka. Fjórir flokkar mælast með þingmenn í kjördæminu.

Samfélag 22. okt. Austurland Austurfrétt

Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki

Áform um að sameina lögregluembættin á Austurlandi, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum vekja alvarlegar spurningar um öryggi íbúa og stjórnun löggæslu. Áður en lengra er haldið verður ríkisstjórnin að sýna fram á hvernig breytingarnar eiga að bæta þjónustuna hér fyrir austan. Stærra umdæmi er engin trygging fyrir öflugri löggæslu.

Samfélag 21. okt. Seyðisfjörður Austurfrétt

Kom af fjöllum um þau 43 kíló kókaíns sem fundust í bíl hans

Einstaklingurinn sem ákærður er fyrir smygl á tæplega 43 kílóum kókaíns sem fannst í bíl hans við komu til Seyðisfjarðar í marsmánuði sagðist við aðalmeðferð málsins í dag vera engu nær um efnin sem fundust. Gat hann engar skýringar gefið á hvernig svo mikið magn var kyrfilega falið í sendibíl hans. Þetta var á þessum tíma langmesta magn kókaíns sem hald hefur verið lagt á hérlendis en styrkleiki…

Samfélag 21. okt. Stöðvarfjörður Vísir

Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi

Eigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð segir allt ógirt land á Íslandi virðast hafa verið tekið einhvers konar eignarnámi með dómi í máli hans gegn Fjarðabyggð. Dómstóll taldi sveitarfélagið ekki hafa skyldu til að smala ágangsfé af jörðinni því féð hefði komið úr sameiginlegum bithaga.

Samfélag 20. okt. Egilsstaðir Austurfrétt

Hvetja fólk til að hlusta á eigin líkama í Bleikum október

Krabbameinsfélag Austurlands stendur fyrir bleikum viðburði á Egilsstöðum annað kvöld í tilefni af árvekniátaki Krabbameinsfélags Íslands. Krabbameinsfélag Austurlands hefur fengið góð viðbrögð við átakinu.

Samfélag 20. okt. Stöðvarfjörður Austurfrétt

Fjarðabyggð sýkn af kröfu um að smala fé af skógarjörð

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu skógarbónda í Stöðvarfirði sem taldi sveitarfélaginu skylt að smala fé sem gekk í ógirtu landi hans. Eitt af lykilatriðunum í málinu er hvaðan féð kom í land skógarbóndans.

Samfélag 20. okt. Austurland Austurfrétt

Austfirskir kennarar ósáttir við breytingar á einkunnagjöf

Stjórn Kennarasambands Austurlands gagnrýnir breytingar á einkunnakerfi grunnskólanna sem snúast um að tölustafir eru teknir upp í stað bókstafa. Fræðslunefndir á Austurlandi lýsa áhyggjum af því hversu hratt umskiptin eiga að verða.

Samfélag 20. okt. Austurland RÚV

Útsendingar eystra hljóðna um stund

Útsendingar Rásar 1 og Rásar 2 um loftnet falla niður á hluta Austurlands og Austfjarða um stund upp úr klukkan ellefu. Það gerðist meðan Rarik skiptir út mæli á Gagnheiði. Skiptin hafa áhrif á 14 endurvarpa.

Samfélag 19. okt. Stöðvarfjörður Vísir

Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi

Sveitarfélaginu Fjarðabyggð bar ekki lagaskylda til þess að smala fé sem gekk í einkaland og olli tjóni á skógrækt í Stöðvarfirði. Héraðsdómur Austurlands sýknaði sveitarfélagið af kröfu landeiganda um að skaðabótaskylda þess yrði viðurkennd.

Samfélag 19. okt. Austurland Vísir

Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe

Mikil umræða kviknaði á Facebook um helgina um ítök og áhrif breska auðjöfursins Jims Ratcliffe sem hefur keypt tugi jarða á Norðausturlandi á síðustu áratugum. Sló í brýnu milli veiði- og tónlistarmannanna Bubba Morthens og Pálma Gunnarssonar sem voru ósammála um Ratcliffe og áætlanir hans.

Samfélag 18. okt. Austurland RÚV

Tólf banaslys í ám eða vötnum á tíu árum

Samvinna björgunarsveitarmanna og sérsveitar lögreglu varð til þess að leit að manni sem féll í Stuðlagil í ágúst bar árangur. Maðurinn fannst á botni árinnar með aðstoð myndavélar. Björgunarsveitarmaður sem sérhæfir sig í straumvatnsbjörgun segir skipta máli að fólk finnist, hvort sem það er lífs eða liðið.

Samfélag 16. okt. Vopnafjörður Austurfrétt

Stendur fyllilega fyrir sínu þrátt fyrir 42 ára notkun

Í tengslum við ráðstefnuna Björgun 2026 sem nú fer fram í Hörpu í Reykjavík hafa margar björgunarsveitir landsins mætt sérstaklega með sína elstu bíla á staðinn. Einn þeirra sem sérstaka athygli hefur vakið er elsti bíll Björgunarsveitarinnar Vopna á Vopnafirði. Sá hefur verið í notkun hjá sveitinni í heil 42 ár.

Samfélag 16. okt. Austurland Austurfrétt

Varað við stormi á sunnudag

Veðurstofan hefur gefið út viðvörun vegna lægðar sem gengur hratt yfir landið á sunnudag. Henni fylgir mikið hvassviðri. Á Austurlandi gæti þó hvesst strax á morgun.

Samfélag 16. okt. Austurland Austurfrétt

KPMG opnar fyrir samfélagsstyrki á landsbyggðinni

KPMG hefur tekið upp nýja styrktarstefnu sem miðar að því að efla stuðning þess við samfélagsverkefni á landsbyggðinni. Umsóknarferlinu hefur verið breytt og er nú opið fyrir umsóknir.

Samfélag 15. okt. Vopnafjörður Austurfrétt

Efla samkennd, vináttu og kærleik í Vinavikunni á Vopnafirði

Á sunnudaginn var hófst sérstök Vinavika Vopnafjarðarbæjar en það er fyrsta Vinavikan í samfélaginu þar um fjögurra ára skeið. Ungmennin í þorpinu skipulögðu sjálf dagskrána frá A til Ö og þátttaka heimafólks verið frábær.

Samfélag 15. okt. Egilsstaðir Austurfrétt

Gjaldþrota framhaldsskólar?

Austurglugginn birtir í dag fréttaskýringu um fjárhagsstöðu Menntaskólans á Egilsstöðum. Hún á sér breiðari skírskotun því skólinn er einn af tíu sem hefur verið gert að rétta af uppsafnaðan hallarekstur á næstu árum og miðað við fjármálaáætlun virðist full ástæða til að hafa áhyggjur af framhaldsskólunum. Staða ME er hins vegar verst því rétta á við, eða endurgreiða, 300 milljóna halla á fjórum…

Sjá fleiri fréttir