01 - Fréttir

Allt úr fjórðungnum

Fréttir úr byggðunum á Austurlandi og af öllu sem varðar fjórðunginn. Uppfært daglega.

48 fréttir
Samgöngur 28. okt. Austurland Austurfrétt

SSA krefst þess að stjórnvöld falli frá breytingum á Loftbrúnni

Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) krefst þess að stjórnvöld falli frá fyrirhuguðum breytingum á afsláttarkjörum Loftbrúarinnar og tryggi þess í stað nægilegt fjármagn til að efla stuðning við það kerfi.

Lesa greinina →
Samgöngur 28. okt. Austurland Austurfrétt

Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina

Loftbrúin var sett á laggirnar árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu og efla byggðir.

Samgöngur 27. okt. Austurland mbl.is

Vilja hærri afslátt í stað fastrar upphæðar

Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og krefst þess að stjórnvöld falli frá áformum um að skipta núverandi hlutfallslegri niðurgreiðslu flugfargjalda út fyrir fasta krónutölu.

Samgöngur 27. okt. Austurland mbl.is

Skriða féll inn á veg á Njarðvíkurskriðum

Aukin hætta er á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu á Austfjörðum og hefur Vegagerðin tilkynnt um skriðu sem féll inn á veg á Njarðvíkurskriðum.

Samgöngur 27. okt. Austurland Austurfrétt

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Tilkynnt var á vef Stjórnarráðsins 23. október að frá og með 1. janúar 2027 yrði afsláttur Loftbrúar föst krónutala, 7.000 krónur á hvern fluglegg, í stað 40% af fargjaldi. Samkvæmt þessu lækkar meðalniðurgreiðsla á hvern fluglegg um tæpan fjórðung og heildarniðurgreiðslur ríkisins til verkefnisins lækka úr um 740 milljónum í um 560 milljónir.

Samgöngur 27. okt. Austurland mbl.is

Segja vegið að búsetuskilyrðum

Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og skorar á stjórnvöld að falla frá áformunum. Bæjarráðið segir skerðingu niðurgreiðslna á flugfargjöldum óásættanlega aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.

Samgöngur 27. okt. Austurland Austurfrétt

Fjarðabyggð hættir rekstri eigin rafhleðslustöðva

Þær rafhleðslustöðvar sem sveitarfélagið Fjarðabyggð setti upp á sínum tíma og hefur rekið síðan verða aflagðar samkvæmt ákvörðun skipulags- og framkvæmdanefndar. Búnaður þeirra stöðva orðinn úreltur og þær að mestu hættar að virka og skila tekjum.

Samgöngur 26. okt. Austurland Vísir

„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segir Loftbrú snúast um að jafna stöðuna milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Áhyggjuefni sé að ákvörðunum sé slengt fram án aðkomu sveitarfélaganna og landsbyggðarinnar. Hún vilji sjá innviðaráðherra „bakka með þessa ákvörðun“ um krónutölu í stað prósentuhlutfalls.

Samgöngur 26. okt. Austurland Austurfrétt

Skerðing á Loftbrú „aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni“

Boðuð skerðing á Loftbrúnni er óásættanleg aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni að mati bæjarráðs Fjarðabyggðar. Skorað er á stjórnvöld að falla frá áformunum þegar í stað og efla þess í stað stuðning við flugfarþega sem neyðast til að sækja nauðsynlega þjónustu í höfuðborgina.

Samgöngur 26. okt. Austurland Austurfrétt

Íhugar að hækka flugafslátt landsbyggðarfólks úr sjö í níu þúsund

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur gefið til kynna að fyrirhuguð lækkun á niðurgreiðslu flugfargjalda til landsbyggðarfólks niður í sjö þúsund krónur per fluglegg verði endurskoðuð og hækki hugsanlega í níu þúsund krónur. Þung gagnrýni á þessar hugmyndir ráðherrans hafa heyrst víða en hækkun um tvö þúsund krónur frá fyrri hugmynd þykir mörgum ekki merkilegt útspil.

Samgöngur 26. okt. Austurland mbl.is

„Hugnast mér alls ekki“

Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings, fagnar því að til standi að auka fjárveitingar til Loftbrúar en segir fyrirhugaðar breytingar á niðurgreiðslukerfinu ekki hugnast henni. Hún telur núverandi fyrirkomulag, þar sem ríkið niðurgreiðir 40% af flugfargjöldum, mun skynsamlegra en fasta krónutölu.

Samgöngur 26. okt. Austurland mbl.is

Vanhugsaðar breytingar fyrir lága upphæð

„Mér finnst þetta bara mjög sorglegt mál og ég hvet innviðaráðherra til að draga þessar hugmyndir til baka,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, um fyrirhugaðar breytingar Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra á Loftbrú.

Samgöngur 26. okt. Austurland RÚV

Ekki hissa á viðbrögðum ráðherra við gagnrýninni

Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður flokksins í Norðausturkjördæmi, segir að það hafi ekki komið sér á óvart að innviðaráðherra sé strax byrjaður að íhuga endurskoðun á breyttum reglum um Loftbrú.

Samgöngur 26. okt. Austurland Austurfrétt

Enn ein aðför ríkisstjórnarinnar að landsbyggðinni

Það er með ólíkindum að fylgjast með því hvernig ríkisstjórnin virðist ganga markvisst fram í því að gera fólki erfiðara og dýrara að búa á landsbyggðinni. Nú á að skerða Loftbrúna og láta íbúa landsbyggðarinnar sitja uppi með fastan afslátt upp á 7.000 krónur fyrir hvern fluglegg í stað 40% afsláttar. Þetta kallar ríkisstjórnin breytingu á fyrirkomulagi. Við hin köllum þetta einfaldlega það sem…

Samgöngur 26. okt. Austurland mbl.is

„Galin vegferð“ innviðaráðherra

„Þetta breytir engu. Ég fagna því auðvitað að hann sé að endurskoða þessa ákvörðun en áfram er þetta skerðing á Loftbrúnni og okkur finnst þetta bara galin vegferð hjá honum að vera í samhliða hækkun á kílómetragjaldinu. Hlutfallslega verða Austfirðingar langverst úti í þessu og þarna er bara gríðarleg afturför.“

Samgöngur 24. okt. Austurland mbl.is

Svik Eyjólfs: Íbúar reiðir og vonsviknir

Mikil reiði ríkir á Austurlandi vegna fyrirhugaðra breytinga á Loftbrú, sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti í gær.

Samgöngur 24. okt. Austurland Vísir

„Ég er bara svolítið sár“

Sveitarstjóri Múlaþings segist vonsvikin og sár vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Hún gagnrýnir skort á samráði og segir þetta enn eitt áfallið fyrir landsbyggðina.

Samgöngur 24. okt. Austurland Vísir

„Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal

Sveitarstjóri Múlaþings segist vonsvikin og sár vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Hún gagnrýnir skort á samráði og segir þetta enn eitt áfallið fyrir landsbyggðina.

Samgöngur 24. okt. Austurland RÚV

Ingvar mótfallinn breytingum á Loftbrú

Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, er mótfallinn breytingu ríkisstjórnarinnar á fyrirkomulagi Loftbrúar eins og hún var kynnt í gær. Mbl.is greinir frá .

Samgöngur 23. okt. Austurland Austurfrétt

Loftbrúin má ekki missa flugið

Fyrir okkur sem búum fjarri höfuðborginni skiptir máli að við getum greiðlega sótt þangað þjónustu án þess að slíkar ferðir valdi óþarfa fjárhagsáhyggjum. Það er grundvallaratriði að búseta ráði ekki möguleikum fólks til að nýta þá þjónustu sem byggð hefur verið upp fyrir alla landsmenn í höfuðborginni. Þar spilar innanlandsflugið lykilhlutverk. Boðaðar breytingar innviðaráðherra í tengslum við…

Samgöngur 22. okt. Austurland Austurfrétt

Krónutala í stað prósentu í Loftbrúnni

Breytingar verða á Loftbrú frá næstu áramótum þegar tekinn verður upp fastur afsláttur af flugfargjaldi í krónum í stað prósenta eins og til þessa. Innviðaráðherra segist vilja tryggja fyrirsjáanleika og halda verkefninu innan fjárheimilda.

Samgöngur 21. okt. Austurland Austurfrétt

Auglýsa þarf skólaakstur í Fjarðabyggð að nýju frá áramótum vegna mistaka

Náðst hefur samkomulag á milli Fjarðabyggðar og fyrirtækisins Tanni ferðaþjónusta að rifta samningi þessara aðila um að Tanni sinni akstri skólabarna sveitarfélagsins út þetta skólaár. Ástæðan að Fjarðabyggð framlengdi samning sinn við Tanna í góðri trú þegar í raun hefði reglum samkvæmt þurft að fara fram útboð á skólaakstrinum yfirstandandi skólaár.

Samgöngur 21. okt. Seyðisfjörður Vísir

Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands

Til skoðunar er að hefja ferjusiglingar milli Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarstjóri Múlaþings segir þó langt í að hugmyndin verði að veruleika gangi allt eftir.

Samgöngur 19. okt. Austurland Austurfrétt

Miðar vel í vegagerð á Jökuldal

Rúmir tveir mánuðir eru síðan starfsmenn Héraðsverks hófu vinnu við næsta áfanga í vegagerð inn að Stuðlagili. Veðuraðstæður hafa verið góðar og því gengur verkið vel.

Sjá fleiri fréttir