01 - Fréttir
Allt úr fjórðungnum
Fréttir úr byggðunum á Austurlandi og af öllu sem varðar fjórðunginn. Uppfært daglega.
Samfélag
28. okt.
Eskifjörður
mbl.is
Fjórir strákar og allar stúlkurnar sóttu matreiðslunámskeið í Eskifjarðarskóla haustið 1953. Þorsteinn Skúlason hlaut verðlaun fyrir uppskriftabókina sína og verðlaunagripurinn prýðir enn borðstofuborð hans.
Samfélag
27. okt.
Austurland
RÚV
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna aukinnar hættu á skriðum og grjóthruni á Austfjörðum, Austurlandi að Glettingi og á Tröllaskaga. Viðvörunin er í gildi til hádegis á morgun.
Samfélag
27. okt.
Austurland
Bændablaðið
Þann 6. febrúar 2024 gekk óveður yfir Austfirði og urðu bændurnir á Vattarnesi sérstaklega illa úti, en á litlum bletti magnaðist vindurinn upp og olli stórtjóni á íbúðarhúsi og fjárhúsum. Þak útihúsanna fauk af í heilu lagi og splundraðist svo í annarri ...
Samfélag
27. okt.
Austurland
mbl.is
Það hvessir um klukkan 19 í kvöld úr norðvestri á Austfjörðum og geta vindhviður náð allt að 35 m/s í vindstrengjum við fjöll, t.d. í Hamarfirði.
Samfélag
27. okt.
Austurland
Austurfrétt
Starfsfólk Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) hefur um hríð unnið að því að áætla eignamörk jarða í landinu þar sem hnitsett afmörkun liggur ekki fyrir. Nú hefur stofnunin birt drög að eignamörkum alls 1.160 jarða á Norðaustur- og Austurlandi.
Samfélag
26. okt.
Egilsstaðir
Austurfrétt
Tveir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa í leikskólann Tjarnarskóg á Egilsstöðum en mikil mannekla þar í byrjun skólaársins takmarkaði verulega hve mörg börn komust þar að. Það lítur nú allt til betri vegar þó áfram þurfi að auglýsa eftir starfsfólki.
Samfélag
26. okt.
Austurland
Vísir
Sveitarstjóri Múlaþings segir að viðbót við Loftbrú, sem innviðaráðherra greindi frá í gær, sé ekki það sem verið sé að kalla eftir. Ekki geti allir búið í Reykjavík og jafna verði aðgengi íbúa landsbyggðar að þjónustu.
Samfélag
26. okt.
Austurland
Vísir
Við sem búum á Austurlandi tökum þátt í að fjármagna sameiginlega þjónustu landsmanna rétt eins og aðrir. Stór hluti þeirrar þjónustu og starfsemi er á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru margar helstu stofnanir ríkisins og þangað liggur leið okkar til að sækja fjölbreytta þjónustu, menningarviðburði og íþróttastarf. Sambærileg staða blasir við íbúum annarra landshluta sem búa fjarri Reykjavík.
Samfélag
26. okt.
Austurland
Austurfrétt
Bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, Jóna Árný Þórðardóttir, var á föstudaginn kjörin nýr formaður Hafnarsambands Íslands. Tekur hún við embættinu af Lúðvík Geirssyni og er allra fyrsta konan til að gegna þessu embætti.
Samfélag
23. okt.
Austurland
mbl.is
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur lokið við að áætla eignarmörk um 1.150 jarða á Norðausturlandi og Austurlandi. Jarðirnar ná yfir um 20 þúsund ferkílómetra og með nýju gögnunum hafa eignarmörk verið áætluð á svæðum sem samsvara um 83% af flatarmáli Íslands.
Samfélag
23. okt.
Austurland
mbl.is
Jóna Árný Þórðardóttir, bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, er fyrsta konan til að gegna embætti formanns Hafnarsambands Íslands. Hún var kjörin formaður á ársþingi sambandsins sem lauk í dag.
Samfélag
23. okt.
Austurland
Vísir
Jóna Árný Þórðardóttir, bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, var kjörin formaður Hafnarsambands Íslands á ársþingi sambandsins sem lauk í dag. Hún er jafnframt fyrsta konan til að gegna embætti formanns Hafnarsambandsins.
Samfélag
23. okt.
Djúpivogur
Austurfrétt
Hollvinasamtök Gömlu kirkjunnar á Djúpavogi munu næstu fimm árin fá 500 þúsund króna árlegan styrk frá Múlaþingi til reksturs og áframhaldandi uppbyggingar kirkjunnar gömlu.
Samfélag
23. okt.
Stöðvarfjörður
Bændablaðið
Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arnardóttur, eiganda jarðarinnar Óseyrar í Stöðvarfirði, um viðurkenningu á skaðabótaábyrgð sveitarfélagsins vegna ágangs búfjár á jörðina. Málskostnaður féll niður. Hrefna krafði ...
Samfélag
22. okt.
Austurland
RÚV
Lítið hefur breyst í mönnun dýralækna á suðausturhorni landsins. Ekki hefur tekist að manna vaktir frá því 16. ágúst allt frá Kirkjubæjarklaustri að Breiðdalsvík. Stjórnvöld hafa ekkert gert, segir formaður dýralæknafélagsins.
Samfélag
22. okt.
Austurland
RÚV
Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun í öllum landshlutum. Veiðar eru leyfðar frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum í tæpan mánuð eða allt til jóla þar sem tímabilið er lengst. Á Suðurlandi og Norðvesturlandi má veiða til 17. nóvember, á Vestfjörðum viku lengur, til 1. desember á Vesturlandi og Norðvesturlandi og til 22. desember á Austurlandi. Þar þykir rjúpnastofninn sterkastur. Veiðar…
Samfélag
22. okt.
Austurland
Austurfrétt
Fylgi Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi tekur kipp í nýrri skoðanakönnun. Fylgi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur bætt við sig í sumar gengur til baka. Fjórir flokkar mælast með þingmenn í kjördæminu.
Samfélag
22. okt.
Austurland
Austurfrétt
Áform um að sameina lögregluembættin á Austurlandi, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum vekja alvarlegar spurningar um öryggi íbúa og stjórnun löggæslu. Áður en lengra er haldið verður ríkisstjórnin að sýna fram á hvernig breytingarnar eiga að bæta þjónustuna hér fyrir austan. Stærra umdæmi er engin trygging fyrir öflugri löggæslu.
Samfélag
21. okt.
Seyðisfjörður
Austurfrétt
Einstaklingurinn sem ákærður er fyrir smygl á tæplega 43 kílóum kókaíns sem fannst í bíl hans við komu til Seyðisfjarðar í marsmánuði sagðist við aðalmeðferð málsins í dag vera engu nær um efnin sem fundust. Gat hann engar skýringar gefið á hvernig svo mikið magn var kyrfilega falið í sendibíl hans. Þetta var á þessum tíma langmesta magn kókaíns sem hald hefur verið lagt á hérlendis en styrkleiki…
Samfélag
21. okt.
Reyðarfjörður
Vísir
Gunnar Lárus Karlsson, sem sló Íslandsmetið í Bakgarðshlaupum með stæl, fékk höfðinglegar móttökur er hann kom heim til sín á Reyðarfjörð í morgun.
Samfélag
21. okt.
Stöðvarfjörður
Vísir
Eigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð segir allt ógirt land á Íslandi virðast hafa verið tekið einhvers konar eignarnámi með dómi í máli hans gegn Fjarðabyggð. Dómstóll taldi sveitarfélagið ekki hafa skyldu til að smala ágangsfé af jörðinni því féð hefði komið úr sameiginlegum bithaga.
Samfélag
20. okt.
Egilsstaðir
Austurfrétt
Krabbameinsfélag Austurlands stendur fyrir bleikum viðburði á Egilsstöðum annað kvöld í tilefni af árvekniátaki Krabbameinsfélags Íslands. Krabbameinsfélag Austurlands hefur fengið góð viðbrögð við átakinu.
Samfélag
20. okt.
Stöðvarfjörður
Austurfrétt
Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu skógarbónda í Stöðvarfirði sem taldi sveitarfélaginu skylt að smala fé sem gekk í ógirtu landi hans. Eitt af lykilatriðunum í málinu er hvaðan féð kom í land skógarbóndans.
Samfélag
20. okt.
Austurland
Austurfrétt
Stjórn Kennarasambands Austurlands gagnrýnir breytingar á einkunnakerfi grunnskólanna sem snúast um að tölustafir eru teknir upp í stað bókstafa. Fræðslunefndir á Austurlandi lýsa áhyggjum af því hversu hratt umskiptin eiga að verða.
Samfélag
20. okt.
Austurland
RÚV
Útsendingar Rásar 1 og Rásar 2 um loftnet falla niður á hluta Austurlands og Austfjarða um stund upp úr klukkan ellefu. Það gerðist meðan Rarik skiptir út mæli á Gagnheiði. Skiptin hafa áhrif á 14 endurvarpa.
Samfélag
19. okt.
Stöðvarfjörður
Vísir
Sveitarfélaginu Fjarðabyggð bar ekki lagaskylda til þess að smala fé sem gekk í einkaland og olli tjóni á skógrækt í Stöðvarfirði. Héraðsdómur Austurlands sýknaði sveitarfélagið af kröfu landeiganda um að skaðabótaskylda þess yrði viðurkennd.
Samfélag
19. okt.
Austurland
Vísir
Mikil umræða kviknaði á Facebook um helgina um ítök og áhrif breska auðjöfursins Jims Ratcliffe sem hefur keypt tugi jarða á Norðausturlandi á síðustu áratugum. Sló í brýnu milli veiði- og tónlistarmannanna Bubba Morthens og Pálma Gunnarssonar sem voru ósammála um Ratcliffe og áætlanir hans.
Samfélag
18. okt.
Austurland
RÚV
Samvinna björgunarsveitarmanna og sérsveitar lögreglu varð til þess að leit að manni sem féll í Stuðlagil í ágúst bar árangur. Maðurinn fannst á botni árinnar með aðstoð myndavélar. Björgunarsveitarmaður sem sérhæfir sig í straumvatnsbjörgun segir skipta máli að fólk finnist, hvort sem það er lífs eða liðið.
Samfélag
16. okt.
Vopnafjörður
Austurfrétt
Í tengslum við ráðstefnuna Björgun 2026 sem nú fer fram í Hörpu í Reykjavík hafa margar björgunarsveitir landsins mætt sérstaklega með sína elstu bíla á staðinn. Einn þeirra sem sérstaka athygli hefur vakið er elsti bíll Björgunarsveitarinnar Vopna á Vopnafirði. Sá hefur verið í notkun hjá sveitinni í heil 42 ár.
Samfélag
16. okt.
Austurland
Austurfrétt
Veðurstofan hefur gefið út viðvörun vegna lægðar sem gengur hratt yfir landið á sunnudag. Henni fylgir mikið hvassviðri. Á Austurlandi gæti þó hvesst strax á morgun.
Samfélag
16. okt.
Austurland
Austurfrétt
KPMG hefur tekið upp nýja styrktarstefnu sem miðar að því að efla stuðning þess við samfélagsverkefni á landsbyggðinni. Umsóknarferlinu hefur verið breytt og er nú opið fyrir umsóknir.
Samfélag
15. okt.
Vopnafjörður
Austurfrétt
Á sunnudaginn var hófst sérstök Vinavika Vopnafjarðarbæjar en það er fyrsta Vinavikan í samfélaginu þar um fjögurra ára skeið. Ungmennin í þorpinu skipulögðu sjálf dagskrána frá A til Ö og þátttaka heimafólks verið frábær.
Samfélag
15. okt.
Egilsstaðir
Austurfrétt
Austurglugginn birtir í dag fréttaskýringu um fjárhagsstöðu Menntaskólans á Egilsstöðum. Hún á sér breiðari skírskotun því skólinn er einn af tíu sem hefur verið gert að rétta af uppsafnaðan hallarekstur á næstu árum og miðað við fjármálaáætlun virðist full ástæða til að hafa áhyggjur af framhaldsskólunum. Staða ME er hins vegar verst því rétta á við, eða endurgreiða, 300 milljóna halla á fjórum…
Samfélag
15. okt.
Vopnafjörður
mbl.is
Marta María Winkel veltir því fyrir sér hvernig stemningin sé heima hjá þeim fimm þingmönnum akkúrat núna sem fóru í leyfisleysi í sund á Vopnafirði.
Samfélag
15. okt.
Vopnafjörður
mbl.is
Skemmtanahald fimm þingmanna fór aðeins úr böndunum þegar hópurinn fór í leyfisleysi í sund að kvöldi til. Atvikið átti sér stað í Selárlaug á Vopnafirði í síðustu viku. Nú hefur sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps staðfest í fjölmiðlum að…
Samfélag
14. okt.
Austurland
Austurfrétt
Almannavarnir á Austurlandi hvetja eigendur báta og skipa á Austfjörðum til að huga að fleyjum sínum vegna hárrar sjávarstöðu og spár um hvassviðri. Úrhellisrigning var á Austfjörðum í morgun.
Samfélag
14. okt.
Austurland
mbl.is
Talsverð úrkoma hefur verið á Austurlandi í dag en heldur hefur dregið úr henni í bili.
Samfélag
13. okt.
Austurland
Austurfrétt
Veðurstofan hefur gefið út viðvaranir vegna aukinnar skriðuhættu á Austfjörðum og hárrar sjávarstöðu á morgun. Hvasst verður á svæðinu og talsverð úrkoma. Þá er varað við hríð á fimmtudag.
Samfélag
13. okt.
Neskaupstaður
Austurfrétt
Væntanleg verslun undir merkjum SPAR í Neskaupstað verður fyrsta búðin á vegum keðjunnar í landinu með sjálfsafgreiðslukerfi sem gerir viðskiptavinum kleift að komast í hana allan sólarhringinn, allan ársins hring. Viðskiptavinir geta búist við lægra vöruverði þegar verslunin tekur við af Kjörbúðinni í næsta mánuði.
Samfélag
13. okt.
Vopnafjörður
Austurfrétt
Sveitarfélögin Fjarðabyggð, Múlaþing og Vopnafjarðarhreppur hafa þegar samþykkt eða lagt fram tillögur sem miða að því að gjaldskrár hækki ekki meira en 2,5% um næstu áramót til að halda aftur af verðbólgu.
Samfélag
12. okt.
Neskaupstaður
Austurfrétt
Verslunarfélagið Drangar opnar í næsta mánuði SPAR-verslun í Neskaupstað, þá fyrstu á landsbyggðinni. Í byrjun næsta árs verður hægt að stunda viðskipti þar allan sólarhringinn. SÚN hefur stutt við breytingarnar.
Samfélag
12. okt.
Vopnafjörður
Vísir
Þingmennirnir sem laumuðust í sund í Selárlaug í Vopnafirði í kjördæmaviku frömdu húsbrot að mati Ásthildar Lóu Þórisdóttur þingmanns Flokks fólksins. Hún hafnar því staðfastlega að slík framkoma eigi við um þingmenn almennt. Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar, segir ekkert fréttnæmt við sundferðina.
Samfélag
12. okt.
Austurland
Austurfrétt
Sú ákvörðun fjölskylduráðs Múlaþings í síðustu viku að veita starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) ekki forgang að leikskólaplássum hefur þegar haft þau áhrif að sumt starfsfólkið hefur þurft að fresta endurkomu til starfa eftir fæðingarorlof.
Samfélag
12. okt.
Neskaupstaður
Viðskiptablaðið
SPAR mun opna verslun í Neskaupstað í nóvember og verður það fyrsta verslun keðjunnar á landsbyggðinni.
Samfélag
12. okt.
Seyðisfjörður
Vísir
Rúmlega þrettán þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til stjórnvalda um verndun Seyðisfjarðar og verða undirskriftalistar afhentir Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í dag klukkan ellefu.
Samfélag
10. okt.
Austurland
Austurfrétt
Áður en sjálf hamfarasviðsmyndin er rakin þarf að sjá staðinn fyrir sér sem eina heild. Selstaðavík er ekki auður blettur á korti og kvíabólið verður ekki sett niður í tómarúm. Hér mætast gamalt byggðarlandslag, háar fjallshlíðar, flóðaleiðir, strönd, sjávarbotn og aldagömul tengsl fólksins við sjóinn.
Samfélag
9. okt.
Vopnafjörður
Vísir
Þingmenn Norðausturkjördæmis fóru í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun í kjördæmaviku. Sveitarstjórnarfulltrúi er sagður hafa gefið leyfi fyrir þessu og leiðbeint þeim.
Samfélag
9. okt.
Austurland
Austurfrétt
Það er farið að verða erfitt fyrir Seyðfirðinga að verjast þeirri tilfinningu að nýjasta þjóðaríþrótt íslenskra stjórnvalda sé að níðast á þeim. Lífshagsmunir samfélagsins virðast hvað eftir annað mega víkja, vilji heimamanna er hafður að engu og þegar eitt höggið er afstaðið virðist stutt í það næsta. Marghöggvið er í sama knérunn.