01 - Fréttir
Allt úr fjórðungnum
Fréttir úr byggðunum á Austurlandi og af öllu sem varðar fjórðunginn. Uppfært daglega.
Samgöngur
28. okt.
Austurland
Austurfrétt
Loftbrúin var sett á laggirnar árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu og efla byggðir.
Samgöngur
27. okt.
Austurland
Vísir
Samband sveitarfélaga á Austurlandi mótmælir fyrirhugaðri breytingu á fyrirkomulagi Loftbrúarinnar. Skerðingin sé aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.
Samgöngur
27. okt.
Austurland
mbl.is
Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og krefst þess að stjórnvöld falli frá áformum um að skipta núverandi hlutfallslegri niðurgreiðslu flugfargjalda út fyrir fasta krónutölu.
Samgöngur
27. okt.
Austurland
mbl.is
Aukin hætta er á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu á Austfjörðum og hefur Vegagerðin tilkynnt um skriðu sem féll inn á veg á Njarðvíkurskriðum.
Samgöngur
27. okt.
Austurland
Austurfrétt
Tilkynnt var á vef Stjórnarráðsins 23. október að frá og með 1. janúar 2027 yrði afsláttur Loftbrúar föst krónutala, 7.000 krónur á hvern fluglegg, í stað 40% af fargjaldi. Samkvæmt þessu lækkar meðalniðurgreiðsla á hvern fluglegg um tæpan fjórðung og heildarniðurgreiðslur ríkisins til verkefnisins lækka úr um 740 milljónum í um 560 milljónir.
Samgöngur
27. okt.
Austurland
mbl.is
Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og skorar á stjórnvöld að falla frá áformunum. Bæjarráðið segir skerðingu niðurgreiðslna á flugfargjöldum óásættanlega aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.
Samgöngur
27. okt.
Austurland
Austurfrétt
Þær rafhleðslustöðvar sem sveitarfélagið Fjarðabyggð setti upp á sínum tíma og hefur rekið síðan verða aflagðar samkvæmt ákvörðun skipulags- og framkvæmdanefndar. Búnaður þeirra stöðva orðinn úreltur og þær að mestu hættar að virka og skila tekjum.
Samgöngur
26. okt.
Austurland
Vísir
Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segir Loftbrú snúast um að jafna stöðuna milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Áhyggjuefni sé að ákvörðunum sé slengt fram án aðkomu sveitarfélaganna og landsbyggðarinnar. Hún vilji sjá innviðaráðherra „bakka með þessa ákvörðun“ um krónutölu í stað prósentuhlutfalls.
Samgöngur
26. okt.
Austurland
Austurfrétt
Boðuð skerðing á Loftbrúnni er óásættanleg aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni að mati bæjarráðs Fjarðabyggðar. Skorað er á stjórnvöld að falla frá áformunum þegar í stað og efla þess í stað stuðning við flugfarþega sem neyðast til að sækja nauðsynlega þjónustu í höfuðborgina.
Samgöngur
26. okt.
Austurland
Austurfrétt
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur gefið til kynna að fyrirhuguð lækkun á niðurgreiðslu flugfargjalda til landsbyggðarfólks niður í sjö þúsund krónur per fluglegg verði endurskoðuð og hækki hugsanlega í níu þúsund krónur. Þung gagnrýni á þessar hugmyndir ráðherrans hafa heyrst víða en hækkun um tvö þúsund krónur frá fyrri hugmynd þykir mörgum ekki merkilegt útspil.
Samgöngur
26. okt.
Austurland
mbl.is
Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings, fagnar því að til standi að auka fjárveitingar til Loftbrúar en segir fyrirhugaðar breytingar á niðurgreiðslukerfinu ekki hugnast henni. Hún telur núverandi fyrirkomulag, þar sem ríkið niðurgreiðir 40% af flugfargjöldum, mun skynsamlegra en fasta krónutölu.
Samgöngur
26. okt.
Austurland
mbl.is
„Mér finnst þetta bara mjög sorglegt mál og ég hvet innviðaráðherra til að draga þessar hugmyndir til baka,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, um fyrirhugaðar breytingar Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra á Loftbrú.
Samgöngur
26. okt.
Austurland
RÚV
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður flokksins í Norðausturkjördæmi, segir að það hafi ekki komið sér á óvart að innviðaráðherra sé strax byrjaður að íhuga endurskoðun á breyttum reglum um Loftbrú.
Samgöngur
26. okt.
Austurland
Austurfrétt
Það er með ólíkindum að fylgjast með því hvernig ríkisstjórnin virðist ganga markvisst fram í því að gera fólki erfiðara og dýrara að búa á landsbyggðinni. Nú á að skerða Loftbrúna og láta íbúa landsbyggðarinnar sitja uppi með fastan afslátt upp á 7.000 krónur fyrir hvern fluglegg í stað 40% afsláttar. Þetta kallar ríkisstjórnin breytingu á fyrirkomulagi. Við hin köllum þetta einfaldlega það sem…
Samgöngur
26. okt.
Austurland
mbl.is
„Þetta breytir engu. Ég fagna því auðvitað að hann sé að endurskoða þessa ákvörðun en áfram er þetta skerðing á Loftbrúnni og okkur finnst þetta bara galin vegferð hjá honum að vera í samhliða hækkun á kílómetragjaldinu. Hlutfallslega verða Austfirðingar langverst úti í þessu og þarna er bara gríðarleg afturför.“
Samgöngur
24. okt.
Austurland
mbl.is
Mikil reiði ríkir á Austurlandi vegna fyrirhugaðra breytinga á Loftbrú, sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti í gær.
Samgöngur
24. okt.
Austurland
RÚV
Innviðaráðherra, tilkynnti í gær breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar sem taka gildi frá og með áramótum. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi segir breytingarnar kaldar kveðjur til íbúa á landsbyggðinni.
Samgöngur
24. okt.
Austurland
Vísir
Sveitarstjóri Múlaþings segist vonsvikin og sár vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Hún gagnrýnir skort á samráði og segir þetta enn eitt áfallið fyrir landsbyggðina.
Samgöngur
24. okt.
Austurland
Vísir
Sveitarstjóri Múlaþings segist vonsvikin og sár vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Hún gagnrýnir skort á samráði og segir þetta enn eitt áfallið fyrir landsbyggðina.
Samgöngur
24. okt.
Austurland
RÚV
Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, er mótfallinn breytingu ríkisstjórnarinnar á fyrirkomulagi Loftbrúar eins og hún var kynnt í gær. Mbl.is greinir frá .
Samgöngur
23. okt.
Austurland
mbl.is
Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, er mótfallinn breytingu ríkisstjórnarinnar á fyrirkomulagi Loftbrúar.
Samgöngur
23. okt.
Austurland
mbl.is
„Þetta er enn eitt höggið á landsbyggðina,“ segir Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings.
Samgöngur
23. okt.
Austurland
Austurfrétt
Fyrir okkur sem búum fjarri höfuðborginni skiptir máli að við getum greiðlega sótt þangað þjónustu án þess að slíkar ferðir valdi óþarfa fjárhagsáhyggjum. Það er grundvallaratriði að búseta ráði ekki möguleikum fólks til að nýta þá þjónustu sem byggð hefur verið upp fyrir alla landsmenn í höfuðborginni. Þar spilar innanlandsflugið lykilhlutverk. Boðaðar breytingar innviðaráðherra í tengslum við…
Samgöngur
23. okt.
Austurland
Austurfrétt
Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) segir breytingu á niðurgreiðslum Loftbrúar úr prósentu í krónutölu vera skerðingu á lífsgæðum á landsbyggðinni. Hann segir málflutning innviðaráðherra vera úr takti við raunveruleika fólks.
Samgöngur
22. okt.
Austurland
Austurfrétt
Breytingar verða á Loftbrú frá næstu áramótum þegar tekinn verður upp fastur afsláttur af flugfargjaldi í krónum í stað prósenta eins og til þessa. Innviðaráðherra segist vilja tryggja fyrirsjáanleika og halda verkefninu innan fjárheimilda.
Samgöngur
21. okt.
Austurland
Austurfrétt
Náðst hefur samkomulag á milli Fjarðabyggðar og fyrirtækisins Tanni ferðaþjónusta að rifta samningi þessara aðila um að Tanni sinni akstri skólabarna sveitarfélagsins út þetta skólaár. Ástæðan að Fjarðabyggð framlengdi samning sinn við Tanna í góðri trú þegar í raun hefði reglum samkvæmt þurft að fara fram útboð á skólaakstrinum yfirstandandi skólaár.
Samgöngur
21. okt.
Seyðisfjörður
Austurfrétt
Þingmenn og hafnaryfirvöld í Aberdeen í Skotlandi lýsa yfir áhuga á mögulegum ferjusiglingum á milli borgarinnar og Seyðisfjarðar. Þeir binda þó vonir við að ferjan geti haft viðkomu á fleiri stöðum.
Samgöngur
21. okt.
Seyðisfjörður
Vísir
Til skoðunar er að hefja ferjusiglingar milli Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarstjóri Múlaþings segir þó langt í að hugmyndin verði að veruleika gangi allt eftir.
Samgöngur
21. okt.
Seyðisfjörður
RÚV
Til skoðunar er að koma á siglingum á milli borgarinnar Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarfélagið á í viðræðum við hafnaryfirvöld þar í landi.
Samgöngur
19. okt.
Austurland
Austurfrétt
Rúmir tveir mánuðir eru síðan starfsmenn Héraðsverks hófu vinnu við næsta áfanga í vegagerð inn að Stuðlagili. Veðuraðstæður hafa verið góðar og því gengur verkið vel.
Samgöngur
19. okt.
Djúpivogur
Austurfrétt
Ákveðið var að loka veginum á milli Djúpavogs og Hafnar í Hornafirði með öllu eftir að bíll skemmdist í grjótfoki þar um miðjan dag í gær. Eitt útkall barst austfirskri björgunarsveit þegar kröpp lægð gekk yfir landið í gær.
Samgöngur
18. okt.
Djúpivogur
RÚV
Hringveginum hefur verið lokað milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs vegna hvassviðris og sandroks. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is .
Samgöngur
18. okt.
Djúpivogur
mbl.is
Hringveginum hefur verið lokað á milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs vegna hvassviðris og sandroks. Lokunin gildir þar til veður gengur niður og aðstæður á veginum batna.
Samgöngur
18. okt.
Austurland
Vísir
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að sérlega varasamar aðstæður verði í kvöld milli Hafnar og Djúpavogs vegna hvassviðris. Leiðin sé þekkt fyrir algenga og skeinuhætta sviptivinda.
Samgöngur
18. okt.
Austurland
DV
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar í Facebook-færslu eindregið við því að fólk verði á ferðinni á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs í kvöld.Einar skrifar:
Samgöngur
18. okt.
Austurland
Vísir
Í dag er spáð sunnan og suðvestan stormi og eru líkur á mikilli ölduhæð nærri ströndum sunnan og vestan til á landinu. Gular viðvaranir eru ýmist í gildi eða taka gildi síðar í dag. Varað er við vegalokunum eftir hádegi á milli Hafnar og Reyðarfjarðar.
Samgöngur
16. okt.
Austurland
Austurfrétt
Um mánaðarmótin lækka styrkir sem íslensk stjórnvöld hafa veitt þeim sem keypt hafa rafbíl síðastliðin ár en þeim styrkjum ætlað að flýta þróun úr bensín- eða dísilbílum í rafbíla. Bílasalar á Austurlandi segja flesta meðvitaða um að styrkirnir lækka þann 1. nóvember.
Samgöngur
15. okt.
Austurland
Vísir
Gular viðvaranir eru enn í gildi á Ströndum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi. Veðurfræðingur segir veðrið að mestu leyti hafa gengið eftir en verið verra á sumum stöðum en spár gerðu ráð fyrir.
Samgöngur
15. okt.
Austurland
mbl.is
Gular viðvaranir eru enn í gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi en þar er hvasst í veðri og snjókoma með slæmu skyggni.
Samgöngur
14. okt.
Seyðisfjörður
Austurfrétt
Sveitarfélagið Múlaþing á í samtölum við bæði hafnaryfirvöld í Aberdeen í Skotlandi og einkaaðila um möguleikann á ferjusiglingum á milli borgarinnar og Seyðisfjarðar. Sveitarstjóri Múlaþings segir jákvætt að aðilar tali saman en viðbúið sé að það taki einhver ár að koma siglingunum á koppinn.
Samgöngur
8. okt.
Breiðdalsvík
Austurfrétt
Foreldrar og börn úr Breiðdalsvíkur- og Stöðvarfjarðarskóla lokuðu veginum um Kambaskriður í klukkutíma síðasta föstudag til að mótmæla því að öflugri hrunvörnum sé ekki komið upp í skriðunum. Dæmi eru um að foreldrar haldi börnum sínum heima þegar hætta er á hruni á svæðinu.
Samgöngur
6. okt.
Fellabær
Austurfrétt
Þjónustustöð Vegagerðarinnar í Fellabæ var opnuð formlega eftir gagngerar endurbætur síðasta fimmtudag. Til stendur að nýta reynsluna til að taka fleiri þjónustustöðvar Vegagerðarinnar í gegn.
Samgöngur
5. okt.
Austurland
Austurfrétt
Vitað er um að minnsta kosti tíu aurskriður sem féllu á Austfjörðum í mikilli úrkomu á miðvikudag og fimmtudag. Vegurinn yfir Þórudalsheiði er talinn illa farinn.
Samgöngur
3. okt.
Egilsstaðir
Austurfrétt
Staðfest er að alvarleg slys urðu í fjögurra bifreiða árekstri við Háreksstaðakvísl á Jökuldalsheiðinni en þar varð umferðarslys laust fyrir hádegi í dag. Alls átta einstaklingar voru í bifreiðunum sem um ræðir og var veginum lokað vegna aðgerða á vettvangi. Í viðbót við þyrlur Landhelgisgæslunnar eru tvær sjúkraflugvélar lentar á Egilsstaðaflugvelli sérstaklega vegna slyssins.
Samgöngur
1. okt.
Austurland
Austurfrétt
Ófært er um veginn yfir Breiðdalsheiðina að sinni þar sem vegurinn fór í sundur vegna vatnavaxta skammt frá bænum Þorgrímsstöðum í hádeginu. Skemmdirnar ekki alvarlegar en ekki verður unnt að hefja viðgerðir fyrr en ákafri rigningunni á þessum slóðum linnir.
Samgöngur
1. okt.
Reyðarfjörður
Austurfrétt
Dalsá í Fáskrúðsfirði hefur brotið sér leið yfir varnargarð sem reistur var í síðustu viku. Fylgst er með stöðu mála við Sléttuá í Reyðarfirði. Vegir hafa þegar skemmst á nokkrum stöðum á Austurlandi eftir mikla úrkomu í gær og í nótt.
Samgöngur
1. okt.
Vopnafjörður
Austurfrétt
Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps skorar á ríkið að tryggja óbreytt framboð í flugþjónustu til Vopnafjarðar. Til stendur að fækka ferðum úr fimm á viku í þrjár.