01 - Fréttir

Allt úr fjórðungnum

Fréttir úr byggðunum á Austurlandi og af öllu sem varðar fjórðunginn. Uppfært daglega.

57 fréttir
Atvinnulíf 28. okt. Fáskrúðsfjörður Viðskiptablaðið

Hagræði af flakki á íslensku sumargotssíldinni

Allt að sextíu prósent af síld sem berst Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði er nú íslensk sumargotssíld. Magnús Ásgrímsson verksmiðjustjóri segir vinnsluna ganga vel í nýju húsi.

Lesa greinina →
Atvinnulíf 28. okt. Neskaupstaður mbl.is

Fimm þúsund tonn enn óveidd af síld

Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur á yfirstandandi vertíð tekið á móti 23 þúsund tonnum af síld. Fram kemur á vef Síldarvinnslunnar að enn séu fimm þúsund tonn eftir óveidd.

Atvinnulíf 28. okt. Neskaupstaður Austurfrétt

Guðröður og Árni Magnús heiðraðir fyrir framlag til ferðaþjónustu á Austurlandi

Guðröður Hákonarson, gjarnan þekktur sem Gurri, hjá Hildibrand í Neskaupstað, fékk afhent hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Austurlandi, Klettinn, á haustfundi samtakanna í síðustu viku. Það viðurkenning fyrir að hafa verið öflugur drifkraftur í uppbyggingu ferðaþjónustu í Neskaupstað.

Atvinnulíf 28. okt. Austurland Auðlindin

Blængur með afla fyrir 507 milljónir

Blængur NK kom með 620 tonn eftir 26 daga veiðiferð. Aflaverðmætið var 507 milljónir króna þrátt fyrir að haustbrælur trufluðu veiðarnar.

Atvinnulíf 28. okt. Borgarfjörður eystri Austurfrétt

Litlar vísbendingar um að heitt vatn sé að finna á Borgarfirði eystra

Fyrstu boranir í tilraunaskyni eftir heitu vatni á Borgarfirði eystra um 50 ára skeið fóru fram af hálfu HEF-veitna fyrir skömmu en líkt og menn áttu frekar von á fyrirfram eru frumniðurstöður ekki að gefa tilefni til mikillar bjartsýni.

Atvinnulíf 27. okt. Neskaupstaður mbl.is

Hálfs milljarðs verðmæti á 26 dögum

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær eftir 26 daga veiðiferð. Afli skipsins var 620 tonn upp úr sjó. Á vef útgerðarinner er verðmæti aflans sagt vera 507 milljónir króna.

Atvinnulíf 27. okt. Neskaupstaður Austurfrétt

507 milljóna króna aflaverðmæti þrátt fyrir „alvöru haustbrælur“

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær að aflokinni 26 daga veiðiferð og það mestmegnis í brælu lungann af túrnum. Skipið landaði engu að síður 620 tonnum en aflaverðmæti þess afla reiknast vera um 507 milljónir króna.

Atvinnulíf 27. okt. Neskaupstaður Viðskiptablaðið

Blængur NK heim með hálfan milljarð

Veiðiferðin tók 26 daga og afli mest þorskur og ýsa en einnig gullkarfi, ufsi og fleiri tegundir

Atvinnulíf 27. okt. Austurland Auðlindin

Kaldvík fær frest til miðvikudags

Lánveitendur Kaldvíkur hafa framlengt undanþágu frá lánaskilmálum til klukkan 15 miðvikudaginn 28. október. Viðræður um fjármögnun félagsins halda áfram.

Atvinnulíf 27. okt. Austurland Bændablaðið

Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá

Stefán Skafti Steinólfsson. Góðir lesendur. Hernaðurinn gegn Hamarsdal í gamla Djúpavogshreppi, nú Múlaþingi, heldur áfram. Dapurleg var ákvörðun orku- og umhverfisráðherra og Alþingis að færa fyrirhugaðar virkjunarhugmyndir í Hamarsdal úr verndarflokki í ...

Atvinnulíf 26. okt. Austurland mbl.is

Kaldvík fær frestinn framlengdan

Lánveitendur fiskeldisfyrirtækisins Kaldvíkur hafa framlengt tímabundna undanþágu félagsins frá tilteknum lánaskilmálum enn frekar, en til stóð að frestur rynni út í dag.

Atvinnulíf 26. okt. Austurland Vísir

Kaldvík fær enn frekari frest

Lánveitendur sjókvíeldisfyrirtækisins Kaldvíkur framlengdu enn frekar frest tímabundinnar undanþágu félagsins frá lánaskilmálum. Stóð til að frestur rynni út í dag en hefur hann verið framlengdur til miðvikudags.

Atvinnulíf 26. okt. Austurland mbl.is

Sólarhringsfrestur Kaldvíkur senn á enda

Lánveitendur fiskeldisfyrirtækisins Kaldvíkur framlengdu tímabundna undanþágu félagsins frá tilteknum lánaskilmálum til og með dagsins í dag.

Atvinnulíf 26. okt. Austurland Vísir

Staða Kaldvíkur „þung“ og verðmatið komið undir markaðsgengi

Verðmat á fiskeldisfyrirtækinu Kaldvík hefur verið lækkað um liðlega þriðjung í kjölfar erfiðleika í rekstri, versnandi sjóðsstöðu og hækkandi fjármagnskostnaðar. Greinendur telja fjárhagsstöðu félagsins þunga eftir mikil áföll síðustu misseri en gera ráð fyrir að reksturinn fari að rétta úr kútnum á næsta ári.

Atvinnulíf 26. okt. Neskaupstaður Austurfrétt

Allt á helmings afslætti í Kjörbúðinni í Neskaupstað fyrir lokun

Eins og komið hefur fram stendur til að opna nýja SPAR-verslun í húsnæði Kjörbúðarinnar í Neskaupstað um miðjan næsta mánuð. Til að það gangi sem best þarf þó að tæma þann lager sem fyrir er og þess vegna eru nú allar vörur verslunarinnar á 50% afslætti næstu dagana.

Atvinnulíf 24. okt. Reyðarfjörður RÚV

Brenna viðarperlur til að kynda „Klakahöllina“

Skólatorfan á Reyðarfirði, knattspyrnuhöll, íþróttahús og skólamannvirki verða kynt með brennslu á viðarperlum. Framkvæmdir eru langt komnar við nýja kyndistöð Tandraorku.

Atvinnulíf 23. okt. Neskaupstaður mbl.is

Láta ekki smá bræluskít hafa áhrif

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir í Neskaupstað í gær að loknum stuttum veiðiferðum. Bæði skip voru með tæplega 50 tonn eftir að hafa verið rúma tvo sólarhringa að veiðum.

Atvinnulíf 22. okt. Neskaupstaður mbl.is

Síldin sögð brellin um þessar mundir

Beitir NK kom með 800 tonn af síld til Neskaupstaðar í gærkvöldi. Gert er ráð fyrir að vinnslu aflans ljúki í kvöld.

Atvinnulíf 22. okt. Djúpivogur Auðlindin

Sighvatur með 75 tonn eftir fjórar lagnir

Sighvatur GK landaði um 75 tonnum á Djúpavogi eftir veiðiferð í erfiðu veðri. Aflinn fékkst í fjórum lögnum og var mest þorskur.

Atvinnulíf 21. okt. Seyðisfjörður Bændablaðið

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði

Pétur Kristjánsson. Öldum saman hafa íbúar fjarðarins búið við margs konar hættur sem náið sambýli við náttúruna býður upp á. Hætturnar einskorðast þó ekki við þennan fjörð og eru til staðar á heimsvísu. Sagt hefur verið að nóg sé til handa öllum í heimin ...

Atvinnulíf 20. okt. Austurland Viðskiptablaðið

Innan við þriðjungur síldarkvótans óveiddur

Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar hefur tekið á móti 21.200 tonnum af síld á vertíðinni. Um 70 prósent er norsk – íslensk vorgotssíld en um 30 prósent er íslensk sumargotssíld. Níu þúsund tonn eru óveidd.

Atvinnulíf 20. okt. Neskaupstaður mbl.is

Vetrarbragur kominn á brælurnar

Ísfisktogararnir Birtingur, Vestmannaey og Bergey lönduðu allir í Neskaupstað sunnudaginn 18. október. Allir styttu veiðiferðir sínar vegna óhagstæðs veðurs.

Atvinnulíf 20. okt. Neskaupstaður Auðlindin

Bræla stytti veiðiferðir þriggja togara

Birtingur, Vestmannaey og Bergey lönduðu í Neskaupstað á sunnudag eftir að hafa stytt veiðiferðir vegna óhagstæðs veðurs.

Atvinnulíf 19. okt. Austurland mbl.is

Skipar ráð um strandsvæði Austfjarða

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði. Skipunartími er þar til að loknum næstu alþingiskosningum.

Atvinnulíf 18. okt. Seyðisfjörður DV

Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir

Það hafði legið fyrir frá upphafi að klár meirihluti Seyðfirðinga var harðlega á móti því að sjókvíaeldi yrði leyft í Seyðisfirði. Í bænum er mikil gróska á mörgum sviðum, t.d. mikil og vaxandi ferðaþjónusta, og sjókvíaeldi myndi skaða aðra atvinnugreinar í bænum.

Atvinnulíf 16. okt. Seyðisfjörður Austurfrétt

Á lokametrunum að klára bílastæði og göngustíga við Baug Bjólfs

Þó engir séu fólksfjöldamælarnir til staðar við nýjasta aðdráttarafl Austurlands, sem er útsýnispallurinn Baugur Bjólfs hátt yfir Seyðisfirði, leikur enginn vafi á miklu aðdráttarafli þess staðar. Þar verið fjöldi fólks nánast daglega í allt sumar. Nú er verið að vinna lokafrágang á bílstæði og göngustíg upp að útsýnispallinum

Atvinnulíf 16. okt. Seyðisfjörður Austurfrétt

Múlaþing ber ábyrgð

Í grunninn er vandinn sá að hluti sveitarstjórnarfólks á sveitarstjórnarfundi Múlaþings nr. 72 er ekki með málefni sjókvíaeldisins í Seyðisfirði á hreinu og hver skylda þeirra er í sameinuðu sveitarfélagi og heimastjórnum.

Atvinnulíf 15. okt. Seyðisfjörður RÚV

Fiskeldi gæti skapað 10 til 15 störf á Seyðisfirði

Áformum Kaldvíkur um sjókvíaeldi í Seyðisfirði hefur verið mótmælt og samkvæmt skoðanakönnun er meirihluti íbúa þar mótfallinn fiskeldi í firðinum. Líklegt er að ef af áformunum yrði myndu skapast 10 til 15 störf á staðnum.

Atvinnulíf 15. okt. Austurland RÚV

Síldarvinnslan selur Samherja uppsjávarskipið Bjarna Ólafsson

Síldarvinnslan hefur selt Samherja uppsjávarskipið Bjarna Ólafsson. Skipið, sem smíðað var árið 1999, hefur verið verkefnalaust síðan það var sett á sölu í upphafi árs 2024. Frá þessu greina fyrirtækin á vefsíðum sínum.

Atvinnulíf 14. okt. Austurland Austurfrétt

Samherji kaupir Bjarna Ólafsson AK

Samherji hefur keypt uppsjávarveiðiskipið Bjarna Ólafsson AK af Síldarvinnslunni. Nýir eigendur tóku við skipinu í gær og það fór beint til veiða.

Atvinnulíf 14. okt. Vopnafjörður Viðskiptablaðið

Mokveiði í Vopnafjarðardýpi í fyrrinótt

Góð veiði var í Vopnafjarðardýpi í fyrrinótt. Ólafur Gunnar Guðnason, skipstjóri á Beiti NK, segir allt að helming aflans vera íslenska síld. Beitir var á síðasta holi er rætt var við Ólaf og á leið í land undan dýpstu októberlægð í meira en sextíu ár.

Atvinnulíf 13. okt. Austurland Austurfrétt

HEF-veitur hækka gjaldskrár næsta árs eigi meira en um 2,5%

Líkt og nánast öll sveitarfélögin á Austurlandi hafa ákveðið hefur stjórn HEF-veitna líka stokkið á þann vagn að halda öllum almennum gjaldskrárhækkunum í skefjum á næsta ári. Hækkanir á gjaldskrá fyrirtækisins verða ekki meiri en 2,5 prósent á næsta ári.

Atvinnulíf 13. okt. Seyðisfjörður Vísir

„Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“

Atvinnuvegaráðherra segir að ekki hafi verið skoðað að stöðva eða setja hömlur á uppbyggingu sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Ráðherra fær fulltrúa náttúruverndarsamtaka á fund til sín á morgun.

Atvinnulíf 13. okt. Seyðisfjörður Vísir

Laxeldi á Seyðisfirði

Mikil umræða hefur skapast um fyrirhugaða starfsemi Kaldvíkur í Seyðisfirði. Það er eðlilegt enda snertir málið framtíð fjarðarins, atvinnulíf, náttúru og samfélag. Skoðanir eru skiptar og mikilvægt að ólík sjónarmið fái að heyrast.

Atvinnulíf 13. okt. Eskifjörður Bændablaðið

Mikilvægur hlekkur í skógræktinni

„Hugurinn er mun hraðari en það sem vex í vösunum,“ segir Einar Birgir Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tandrabretta og dótturfélagsins Tandraorku, „og klukkutímarnir í sólarhringnum,“ bætir hann við og hlær. Tandrabretti er með höfuðstöðvar á Eskifirði og ...

Atvinnulíf 12. okt. Seyðisfjörður Vísir

Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta

„Þegar 13 þúsund manns skrifa undir svona áskorun þá verða stjórnvöld auðvitað að hlusta.“ Þetta sagði umhverfisráðherra eftir fund með andstæðingum sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Þeir segjast vona að það verði forgangsmál stjórnvalda að koma í veg fyrir að sjókvíaeldið verði að veruleika.

Atvinnulíf 12. okt. Seyðisfjörður Austurfrétt

Í skýjunum með fjölmenn mótmæli gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði

Rúmlega tólf hundruð manns komu saman bæði á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík um miðjan dag í gær til að mótmæla fyrirhuguðu sjókvíaeldi fyrirtækisins Kaldvíkur í Seyðisfirðinum og kölluðu eftir að stjórnvöld hlustuðu á raddir fólksins í landinu.

Atvinnulíf 12. okt. Reyðarfjörður Bændablaðið

Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði

Uppsetning nýrrar kyndistöðvar stendur nú yfir á Reyðarfirði. Henni er ætlað að kynda mannvirki tengd skóla- og íþróttastarfi. Fyrirtækið Tandraorka á Eskifirði sér um framkvæmdina. Uppsetning er nú í fullum gangi og Tandraorka, dótturfyrirtæki Tandrabret ...

Atvinnulíf 12. okt. Egilsstaðir Austurfrétt

Hótel Valaskjálf - vannýtt tækifæri

Fyrir tæpum 30 árum var Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum fyrst selt einkaaðilum og sjálfsagt hefur engum sveitarstjórnarmanni grunað að tæpum 30 árum síðar stæði samfélagið frammi fyrir því að félagsheimilinu yrði kannski lokað endanlega. Ekki er hægt að álasa núverandi eigendum, því hví skyldu þeir reka félagsheimili fyrir íbúa hinu megin á landinu þegar betri kostir eru í boði.

Atvinnulíf 11. okt. Seyðisfjörður Vísir

Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“

Fjöldi fólks kom saman til að mótmæla sjókvíaeldi Kaldavíkur á Seyðisfirði í dag, bæði á Seyðisfirði og í Reykjavík en mótmælin fóru fram samtímis. Breiður hópur náttúruverndarsamtaka stóð fyrir mótmælunum.

Atvinnulíf 11. okt. Seyðisfjörður Vísir

Hafi verið beggja vegna borðsins

Deildarstjóri fiskeldisdeildar Matvælastofnunar segir fyrrverandi starfsmann Fiskeldis Austfjarða ekki hafa komið að áhættumati vegna fyrirhugaðs eldis félagsins í Seyðisfirði. Honum hafi aðeins verið beint tiltekinni spurningu um staðal fyrir eldisbúnað. Katrín Oddsdóttir lögmaður gagnrýnir að leitað hafi verið til hans þrátt fyrir reglu um að hann kæmi ekki að málinu.

Atvinnulíf 11. okt. Seyðisfjörður Vísir

Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum

Mótmæli gegn sjókvíaeldi Kaldavíkur á Seyðisfirði fara samtímis fram þar og á Austurvelli í dag. Lögmaður segir stefna í fjölmenna fundi enda mikið hitamál fyrir austan og telur hún mikla annmarka á leyfisveitingum.

Atvinnulíf 10. okt. Seyðisfjörður Austurfrétt

Hvert fór Kastljósið?

Í Kastljósi í vikunni var fjallað um sjókvíaeldisáform Kaldvíkur í Seyðisfirði. Fjörðurinn skartaði sínu fegursta, fallegar myndir af bænum okkar runnu yfir skjáinn og áhorfendur fengu að kynnast samfélagi þar sem skiptar skoðanir virðast hafa skapað erfiða stöðu.

Atvinnulíf 8. okt. Austurland Austurfrétt

Fjárfestar sýnt áhuga á kaupum á jörðinni Vallanesi auk alls sem henni fylgir

Rúmt ár er liðið síðan að jörðin Vallanes með öllum eignum auk fyrirtækisins Móðir Jörð var sett á sölu. Þó engin sala hafi farið fram hefur verið umtalsverður áhugi margra aðila að sögn eigendanna. Þar á meðal hjá fjárfestum sem sjá fyrir sér að leigja út reksturinn í kjölfarið.

Atvinnulíf 7. okt. Austurland Austurfrétt

Kauptilboð í Bjarna Ólafsson AK

Síldarvinnslan hefur fengið kauptilboð í uppsjávarveiðiskipið Bjarna Ólafsson AK 70. Miðað er við að skipið verði afhent nýjum eigendum í þessum mánuði.

Atvinnulíf 6. okt. Austurland Austurfrétt

Bjart yfir uppsjávarveiðum árið 2027

Alþjóðahafrannsóknaráðið telur óhætt að veiða mun meiri makríl á næsta ári en í ár og leggur líka til nokkra aukningu í veiðum á bæði kolmunna og norsk-íslenskri síld. Enn er óvissa um endanlegan kvóta en forstjóri Síldarvinnslunnar segir ekki annað hægt en að fagna ráðgjöfinni.

Atvinnulíf 5. okt. Austurland Austurfrétt

Fróðlegir fundir í kjördæmaviku

Vikan sem leið var svokölluð kjördæmavika hjá þingmönnum sem nýtt er til ferða þeirra og funda í kjördæmum sínum. Þingmönnum í Norðausturkjördæmi var boðið að sækja um þrjátíu fundi með fulltrúum sveitarstjórna, stofnana og fyrirtækja á svæðinu.

Atvinnulíf 3. okt. Austurland Vísir

„Okkur finnst við vera undanskilin“

Sú staðreynd að Austurland leggi meira til ríkissjóðs en það fær til baka sýnir með skýrum hætti hversu mikilvægt atvinnulíf og verðmætasköpun á svæðinu er. Því þurfi ríkið að fjárfesta í þeim innviðum sem gera fólki og fyrirtækjum kleift að búa og starfa á svæðinu. Þetta segir formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.