01 - Fréttir

Allt úr fjórðungnum

Fréttir úr byggðunum á Austurlandi og af öllu sem varðar fjórðunginn. Uppfært daglega.

234 fréttir
Menning 28. okt. Austurland RÚV

Lýsa upp skammdegið með list

Hátíðin hefur verið haldin síðan um aldamót. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá á Austurlandi í tengslum við hátíðina.

Lesa greinina →
Samfélag 28. okt. Seyðisfjörður Austurfrétt

Bleik beltagrafa fyrir Bleikan október

Glæný Komatsu grafa af fullkomnustu gerð hefur að undanförnu vakið töluverða athygli á Seyðisfirði. Ekki kannski grafan sjálf per se heldur öllu frekar afar óvenjulegir litir á umræddri gröfu. Það engin tilviljun að vélin var afhent á sjálfum Bleika deginum þann 21. október síðastliðinn en á þeim degi, og reyndar mánuðinn allan, eru landsmenn allir sérstaklega hvattir til að vera í bleiku til að…

Atvinnulíf 28. okt. Fáskrúðsfjörður Viðskiptablaðið

Hagræði af flakki á íslensku sumargotssíldinni

Allt að sextíu prósent af síld sem berst Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði er nú íslensk sumargotssíld. Magnús Ásgrímsson verksmiðjustjóri segir vinnsluna ganga vel í nýju húsi.

Atvinnulíf 28. okt. Neskaupstaður mbl.is

Fimm þúsund tonn enn óveidd af síld

Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur á yfirstandandi vertíð tekið á móti 23 þúsund tonnum af síld. Fram kemur á vef Síldarvinnslunnar að enn séu fimm þúsund tonn eftir óveidd.

Samfélag 28. okt. Eskifjörður mbl.is

Matreiðslunámskeið í Eskifjarðarskóla 1953

Fjórir strákar og allar stúlkurnar sóttu matreiðslunámskeið í Eskifjarðarskóla haustið 1953. Þorsteinn Skúlason hlaut verðlaun fyrir uppskriftabókina sína og verðlaunagripurinn prýðir enn borðstofuborð hans.

Atvinnulíf 28. okt. Neskaupstaður Austurfrétt

Guðröður og Árni Magnús heiðraðir fyrir framlag til ferðaþjónustu á Austurlandi

Guðröður Hákonarson, gjarnan þekktur sem Gurri, hjá Hildibrand í Neskaupstað, fékk afhent hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Austurlandi, Klettinn, á haustfundi samtakanna í síðustu viku. Það viðurkenning fyrir að hafa verið öflugur drifkraftur í uppbyggingu ferðaþjónustu í Neskaupstað.

Atvinnulíf 28. okt. Austurland Auðlindin

Blængur með afla fyrir 507 milljónir

Blængur NK kom með 620 tonn eftir 26 daga veiðiferð. Aflaverðmætið var 507 milljónir króna þrátt fyrir að haustbrælur trufluðu veiðarnar.

Samgöngur 28. okt. Austurland Austurfrétt

SSA krefst þess að stjórnvöld falli frá breytingum á Loftbrúnni

Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) krefst þess að stjórnvöld falli frá fyrirhuguðum breytingum á afsláttarkjörum Loftbrúarinnar og tryggi þess í stað nægilegt fjármagn til að efla stuðning við það kerfi.

Samgöngur 28. okt. Austurland Austurfrétt

Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina

Loftbrúin var sett á laggirnar árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu og efla byggðir.

Atvinnulíf 28. okt. Borgarfjörður eystri Austurfrétt

Litlar vísbendingar um að heitt vatn sé að finna á Borgarfirði eystra

Fyrstu boranir í tilraunaskyni eftir heitu vatni á Borgarfirði eystra um 50 ára skeið fóru fram af hálfu HEF-veitna fyrir skömmu en líkt og menn áttu frekar von á fyrirfram eru frumniðurstöður ekki að gefa tilefni til mikillar bjartsýni.

Samfélag 27. okt. Austurland RÚV

Aukin hætta á skriðum og grjóthruni vegna úrkomu

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna aukinnar hættu á skriðum og grjóthruni á Austfjörðum, Austurlandi að Glettingi og á Tröllaskaga. Viðvörunin er í gildi til hádegis á morgun.

Samgöngur 27. okt. Austurland mbl.is

Vilja hærri afslátt í stað fastrar upphæðar

Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og krefst þess að stjórnvöld falli frá áformum um að skipta núverandi hlutfallslegri niðurgreiðslu flugfargjalda út fyrir fasta krónutölu.

Atvinnulíf 27. okt. Neskaupstaður mbl.is

Hálfs milljarðs verðmæti á 26 dögum

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær eftir 26 daga veiðiferð. Afli skipsins var 620 tonn upp úr sjó. Á vef útgerðarinner er verðmæti aflans sagt vera 507 milljónir króna.

Atvinnulíf 27. okt. Neskaupstaður Austurfrétt

507 milljóna króna aflaverðmæti þrátt fyrir „alvöru haustbrælur“

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær að aflokinni 26 daga veiðiferð og það mestmegnis í brælu lungann af túrnum. Skipið landaði engu að síður 620 tonnum en aflaverðmæti þess afla reiknast vera um 507 milljónir króna.

Samgöngur 27. okt. Austurland mbl.is

Skriða féll inn á veg á Njarðvíkurskriðum

Aukin hætta er á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu á Austfjörðum og hefur Vegagerðin tilkynnt um skriðu sem féll inn á veg á Njarðvíkurskriðum.

Atvinnulíf 27. okt. Neskaupstaður Viðskiptablaðið

Blængur NK heim með hálfan milljarð

Veiðiferðin tók 26 daga og afli mest þorskur og ýsa en einnig gullkarfi, ufsi og fleiri tegundir

Samgöngur 27. okt. Austurland Austurfrétt

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Tilkynnt var á vef Stjórnarráðsins 23. október að frá og með 1. janúar 2027 yrði afsláttur Loftbrúar föst krónutala, 7.000 krónur á hvern fluglegg, í stað 40% af fargjaldi. Samkvæmt þessu lækkar meðalniðurgreiðsla á hvern fluglegg um tæpan fjórðung og heildarniðurgreiðslur ríkisins til verkefnisins lækka úr um 740 milljónum í um 560 milljónir.

Samgöngur 27. okt. Austurland mbl.is

Segja vegið að búsetuskilyrðum

Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og skorar á stjórnvöld að falla frá áformunum. Bæjarráðið segir skerðingu niðurgreiðslna á flugfargjöldum óásættanlega aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.

Atvinnulíf 27. okt. Austurland Auðlindin

Kaldvík fær frest til miðvikudags

Lánveitendur Kaldvíkur hafa framlengt undanþágu frá lánaskilmálum til klukkan 15 miðvikudaginn 28. október. Viðræður um fjármögnun félagsins halda áfram.

Samfélag 27. okt. Austurland Bændablaðið

Breyttust í byggingastjóra á einni nóttu

Þann 6. febrúar 2024 gekk óveður yfir Austfirði og urðu bændurnir á Vattarnesi sérstaklega illa úti, en á litlum bletti magnaðist vindurinn upp og olli stórtjóni á íbúðarhúsi og fjárhúsum. Þak útihúsanna fauk af í heilu lagi og splundraðist svo í annarri ...

Samfélag 27. okt. Austurland mbl.is

Varað við hvassviðri á Austfjörðum í kvöld

Það hvessir um klukkan 19 í kvöld úr norðvestri á Austfjörðum og geta vindhviður náð allt að 35 m/s í vindstrengjum við fjöll, t.d. í Hamarfirði.

Atvinnulíf 27. okt. Austurland Bændablaðið

Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá

Stefán Skafti Steinólfsson. Góðir lesendur. Hernaðurinn gegn Hamarsdal í gamla Djúpavogshreppi, nú Múlaþingi, heldur áfram. Dapurleg var ákvörðun orku- og umhverfisráðherra og Alþingis að færa fyrirhugaðar virkjunarhugmyndir í Hamarsdal úr verndarflokki í ...

Samgöngur 27. okt. Austurland Austurfrétt

Fjarðabyggð hættir rekstri eigin rafhleðslustöðva

Þær rafhleðslustöðvar sem sveitarfélagið Fjarðabyggð setti upp á sínum tíma og hefur rekið síðan verða aflagðar samkvæmt ákvörðun skipulags- og framkvæmdanefndar. Búnaður þeirra stöðva orðinn úreltur og þær að mestu hættar að virka og skila tekjum.

Atvinnulíf 26. okt. Austurland mbl.is

Kaldvík fær frestinn framlengdan

Lánveitendur fiskeldisfyrirtækisins Kaldvíkur hafa framlengt tímabundna undanþágu félagsins frá tilteknum lánaskilmálum enn frekar, en til stóð að frestur rynni út í dag.

Atvinnulíf 26. okt. Austurland Vísir

Kaldvík fær enn frekari frest

Lánveitendur sjókvíeldisfyrirtækisins Kaldvíkur framlengdu enn frekar frest tímabundinnar undanþágu félagsins frá lánaskilmálum. Stóð til að frestur rynni út í dag en hefur hann verið framlengdur til miðvikudags.

Samgöngur 26. okt. Austurland Vísir

„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segir Loftbrú snúast um að jafna stöðuna milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Áhyggjuefni sé að ákvörðunum sé slengt fram án aðkomu sveitarfélaganna og landsbyggðarinnar. Hún vilji sjá innviðaráðherra „bakka með þessa ákvörðun“ um krónutölu í stað prósentuhlutfalls.

Íþróttir 26. okt. Austurland Vísir

Harma ákvörðun Hattar

Stjórn og framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags Austfjarða í Fjarðabyggð hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem ákvörðun Hattar á Egilsstöðum um að slíta samstarfinu um kvennalið FHL er hörmuð.

Samgöngur 26. okt. Austurland Austurfrétt

Skerðing á Loftbrú „aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni“

Boðuð skerðing á Loftbrúnni er óásættanleg aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni að mati bæjarráðs Fjarðabyggðar. Skorað er á stjórnvöld að falla frá áformunum þegar í stað og efla þess í stað stuðning við flugfarþega sem neyðast til að sækja nauðsynlega þjónustu í höfuðborgina.

Menning 26. okt. Austurland Austurfrétt

Menningarstofa Fjarðabyggðar og Þjóðaróperan vilja efla óperustarf á Austurlandi

Menningarstofa Fjarðabyggðar og nýstofnuð Þjóðaróperan hafa undirritað viljayfirlýsingu til þriggja ára um áframhaldandi samstarf um óperusýningar, fræðslu og þróun tónlistarstarfs á Austurlandi. Með því megi auka aðgengi íbúa að óperulist og skapa fleiri tækifæri fyrir tónlistarfólk á svæðinu.

Atvinnulíf 26. okt. Austurland mbl.is

Sólarhringsfrestur Kaldvíkur senn á enda

Lánveitendur fiskeldisfyrirtækisins Kaldvíkur framlengdu tímabundna undanþágu félagsins frá tilteknum lánaskilmálum til og með dagsins í dag.

Samgöngur 26. okt. Austurland Austurfrétt

Íhugar að hækka flugafslátt landsbyggðarfólks úr sjö í níu þúsund

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur gefið til kynna að fyrirhuguð lækkun á niðurgreiðslu flugfargjalda til landsbyggðarfólks niður í sjö þúsund krónur per fluglegg verði endurskoðuð og hækki hugsanlega í níu þúsund krónur. Þung gagnrýni á þessar hugmyndir ráðherrans hafa heyrst víða en hækkun um tvö þúsund krónur frá fyrri hugmynd þykir mörgum ekki merkilegt útspil.

Samgöngur 26. okt. Austurland mbl.is

„Hugnast mér alls ekki“

Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings, fagnar því að til standi að auka fjárveitingar til Loftbrúar en segir fyrirhugaðar breytingar á niðurgreiðslukerfinu ekki hugnast henni. Hún telur núverandi fyrirkomulag, þar sem ríkið niðurgreiðir 40% af flugfargjöldum, mun skynsamlegra en fasta krónutölu.

Samfélag 26. okt. Egilsstaðir Austurfrétt

Birtir til í leikskólamálum í Múlaþingi

Tveir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa í leikskólann Tjarnarskóg á Egilsstöðum en mikil mannekla þar í byrjun skólaársins takmarkaði verulega hve mörg börn komust þar að. Það lítur nú allt til betri vegar þó áfram þurfi að auglýsa eftir starfsfólki.

Atvinnulíf 26. okt. Austurland Vísir

Staða Kaldvíkur „þung“ og verðmatið komið undir markaðsgengi

Verðmat á fiskeldisfyrirtækinu Kaldvík hefur verið lækkað um liðlega þriðjung í kjölfar erfiðleika í rekstri, versnandi sjóðsstöðu og hækkandi fjármagnskostnaðar. Greinendur telja fjárhagsstöðu félagsins þunga eftir mikil áföll síðustu misseri en gera ráð fyrir að reksturinn fari að rétta úr kútnum á næsta ári.

Samfélag 26. okt. Austurland Vísir

„Við getum ekki öll búið í Reykjavík“

Sveitarstjóri Múlaþings segir að viðbót við Loftbrú, sem innviðaráðherra greindi frá í gær, sé ekki það sem verið sé að kalla eftir. Ekki geti allir búið í Reykjavík og jafna verði aðgengi íbúa landsbyggðar að þjónustu.

Samfélag 26. okt. Austurland Vísir

Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum

Við sem búum á Austurlandi tökum þátt í að fjármagna sameiginlega þjónustu landsmanna rétt eins og aðrir. Stór hluti þeirrar þjónustu og starfsemi er á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru margar helstu stofnanir ríkisins og þangað liggur leið okkar til að sækja fjölbreytta þjónustu, menningarviðburði og íþróttastarf. Sambærileg staða blasir við íbúum annarra landshluta sem búa fjarri Reykjavík.

Samfélag 26. okt. Austurland Austurfrétt

Jóna Árný nýr formaður Hafnarsambands Íslands

Bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, Jóna Árný Þórðardóttir, var á föstudaginn kjörin nýr formaður Hafnarsambands Íslands. Tekur hún við embættinu af Lúðvík Geirssyni og er allra fyrsta konan til að gegna þessu embætti.

Samgöngur 26. okt. Austurland mbl.is

Vanhugsaðar breytingar fyrir lága upphæð

„Mér finnst þetta bara mjög sorglegt mál og ég hvet innviðaráðherra til að draga þessar hugmyndir til baka,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, um fyrirhugaðar breytingar Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra á Loftbrú.

Samgöngur 26. okt. Austurland RÚV

Ekki hissa á viðbrögðum ráðherra við gagnrýninni

Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður flokksins í Norðausturkjördæmi, segir að það hafi ekki komið sér á óvart að innviðaráðherra sé strax byrjaður að íhuga endurskoðun á breyttum reglum um Loftbrú.

Atvinnulíf 26. okt. Neskaupstaður Austurfrétt

Allt á helmings afslætti í Kjörbúðinni í Neskaupstað fyrir lokun

Eins og komið hefur fram stendur til að opna nýja SPAR-verslun í húsnæði Kjörbúðarinnar í Neskaupstað um miðjan næsta mánuð. Til að það gangi sem best þarf þó að tæma þann lager sem fyrir er og þess vegna eru nú allar vörur verslunarinnar á 50% afslætti næstu dagana.

Samgöngur 26. okt. Austurland Austurfrétt

Enn ein aðför ríkisstjórnarinnar að landsbyggðinni

Það er með ólíkindum að fylgjast með því hvernig ríkisstjórnin virðist ganga markvisst fram í því að gera fólki erfiðara og dýrara að búa á landsbyggðinni. Nú á að skerða Loftbrúna og láta íbúa landsbyggðarinnar sitja uppi með fastan afslátt upp á 7.000 krónur fyrir hvern fluglegg í stað 40% afsláttar. Þetta kallar ríkisstjórnin breytingu á fyrirkomulagi. Við hin köllum þetta einfaldlega það sem…

Samgöngur 26. okt. Austurland mbl.is

„Galin vegferð“ innviðaráðherra

„Þetta breytir engu. Ég fagna því auðvitað að hann sé að endurskoða þessa ákvörðun en áfram er þetta skerðing á Loftbrúnni og okkur finnst þetta bara galin vegferð hjá honum að vera í samhliða hækkun á kílómetragjaldinu. Hlutfallslega verða Austfirðingar langverst úti í þessu og þarna er bara gríðarleg afturför.“

Atvinnulíf 24. okt. Reyðarfjörður RÚV

Brenna viðarperlur til að kynda „Klakahöllina“

Skólatorfan á Reyðarfirði, knattspyrnuhöll, íþróttahús og skólamannvirki verða kynt með brennslu á viðarperlum. Framkvæmdir eru langt komnar við nýja kyndistöð Tandraorku.

Samgöngur 24. okt. Austurland mbl.is

Svik Eyjólfs: Íbúar reiðir og vonsviknir

Mikil reiði ríkir á Austurlandi vegna fyrirhugaðra breytinga á Loftbrú, sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti í gær.

Samgöngur 24. okt. Austurland Vísir

„Ég er bara svolítið sár“

Sveitarstjóri Múlaþings segist vonsvikin og sár vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Hún gagnrýnir skort á samráði og segir þetta enn eitt áfallið fyrir landsbyggðina.

Samgöngur 24. okt. Austurland Vísir

„Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal

Sveitarstjóri Múlaþings segist vonsvikin og sár vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Hún gagnrýnir skort á samráði og segir þetta enn eitt áfallið fyrir landsbyggðina.

Samgöngur 24. okt. Austurland RÚV

Ingvar mótfallinn breytingum á Loftbrú

Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, er mótfallinn breytingu ríkisstjórnarinnar á fyrirkomulagi Loftbrúar eins og hún var kynnt í gær. Mbl.is greinir frá .

Samfélag 23. okt. Austurland mbl.is

Eignarmörk kortlögð á yfir 80% landsins

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur lokið við að áætla eignarmörk um 1.150 jarða á Norðausturlandi og Austurlandi. Jarðirnar ná yfir um 20 þúsund ferkílómetra og með nýju gögnunum hafa eignarmörk verið áætluð á svæðum sem samsvara um 83% af flatarmáli Íslands.

Samgöngur 23. okt. Austurland Austurfrétt

Loftbrúin má ekki missa flugið

Fyrir okkur sem búum fjarri höfuðborginni skiptir máli að við getum greiðlega sótt þangað þjónustu án þess að slíkar ferðir valdi óþarfa fjárhagsáhyggjum. Það er grundvallaratriði að búseta ráði ekki möguleikum fólks til að nýta þá þjónustu sem byggð hefur verið upp fyrir alla landsmenn í höfuðborginni. Þar spilar innanlandsflugið lykilhlutverk. Boðaðar breytingar innviðaráðherra í tengslum við…

Samfélag 23. okt. Austurland mbl.is

Fyrsta konan í embætti formanns

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, er fyrsta konan til að gegna embætti formanns Hafnarsambands Íslands. Hún var kjörin formaður á ársþingi sambandsins sem lauk í dag.

Atvinnulíf 23. okt. Neskaupstaður mbl.is

Láta ekki smá bræluskít hafa áhrif

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir í Neskaupstað í gær að loknum stuttum veiðiferðum. Bæði skip voru með tæplega 50 tonn eftir að hafa verið rúma tvo sólarhringa að veiðum.

Menning 23. okt. Eskifjörður Austurfrétt

Stórviðburður í tónlistarlífi Austurlands með fyrstu sýningu Þjóðaróperunnar

Það gengur mikið á í dag, á morgun og á sunnudag í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði en þar er starfsfólk nýrrar Þjóðaróperu Íslendinga að setja upp sinn opnunarviðburð, verkið Undir sömu stjörnu, sem sýna skal klukkan 15 á sunnudaginn kemur. Vel yfir hundrað manns koma að viðamikilli uppsetningunni með einum eða öðrum hætti.

Íþróttir 23. okt. Austurland mbl.is

FHL lagt niður - Höttur tekur sætið

Samstarf Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis F., FHL, í meistaraflokki kvenna í fótbolta heyrir nú sögunni til en Höttur óskaði eftir slitum á samstarfinu.

Samfélag 23. okt. Austurland Vísir

Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, var kjörin formaður Hafnarsambands Íslands á ársþingi sambandsins sem lauk í dag. Hún er jafnframt fyrsta konan til að gegna embætti formanns Hafnarsambandsins.

Íþróttir 23. okt. Egilsstaðir Vísir

Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til

Höttur frá Egilsstöðum mun tefla fram liði undir sínu nafni í Lengjudeild kvenna í fótbolta á næstu leiktíð eftir að hafa slitið samstarfi við Fjarðabyggð og Leikni Fáskrúðsfirði.

Íþróttir 23. okt. Austurland Austurfrétt

Höttur kemur í stað FHL

Höttur rekstrarfélag, sem stendur að baki meistaraflokkum karla og kvenna félagsins í knattspyrnu, hefur óskað eftir því að slíta samstarfi við Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) um samstarf um FHL, sem spilar í Lengjudeild kvenna.

Samfélag 23. okt. Stöðvarfjörður Bændablaðið

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arnardóttur, eiganda jarðarinnar Óseyrar í Stöðvarfirði, um viðurkenningu á skaðabótaábyrgð sveitarfélagsins vegna ágangs búfjár á jörðina. Málskostnaður féll niður. Hrefna krafði ...

Samfélag 22. okt. Austurland RÚV

Áfram engir dýralæknar á stóru svæði

Lítið hefur breyst í mönnun dýralækna á suðausturhorni landsins. Ekki hefur tekist að manna vaktir frá því 16. ágúst allt frá Kirkjubæjarklaustri að Breiðdalsvík. Stjórnvöld hafa ekkert gert, segir formaður dýralæknafélagsins.

Samgöngur 22. okt. Austurland Austurfrétt

Krónutala í stað prósentu í Loftbrúnni

Breytingar verða á Loftbrú frá næstu áramótum þegar tekinn verður upp fastur afsláttur af flugfargjaldi í krónum í stað prósenta eins og til þessa. Innviðaráðherra segist vilja tryggja fyrirsjáanleika og halda verkefninu innan fjárheimilda.

Íþróttir 22. okt. Austurland mbl.is

Sigþóra og Arnar Íslandsmeistarar

Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir úr UFA og Arnar Pétursson úr Breiðabliki urðu Íslandsmeistarar í víðavangshlaupi 2026.

Samfélag 22. okt. Austurland RÚV

Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun

Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun í öllum landshlutum. Veiðar eru leyfðar frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum í tæpan mánuð eða allt til jóla þar sem tímabilið er lengst. Á Suðurlandi og Norðvesturlandi má veiða til 17. nóvember, á Vestfjörðum viku lengur, til 1. desember á Vesturlandi og Norðvesturlandi og til 22. desember á Austurlandi. Þar þykir rjúpnastofninn sterkastur. Veiðar…

Íþróttir 22. okt. Austurland Vísir

Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt

Höttur vann mikilvægan sigur á Stjörnunni í annarri umferð Bónus-deildar karla í körfubolta en þar var nýtt met sett. Obie Trotter varð elsti leikmaðurinn til þess að skora þriggja stiga körfu í efstu deild á Íslandi.

Húsnæði 22. okt. Neskaupstaður Austurfrétt

Óánægja með úthlutun lóðar við Kvíabólsfjöru til nýs aðila

Óánægja ríkir hjá mörgum vegna þeirrar ákvörðunar skipulags- og framkvæmdanefndar Fjarðabyggðar að úthluta lóð við Kvíabólsfjöru í Neskaupstað til nýs aðila eftir að hópurinn Bærinn okkar hafði töluvert áður fengið vilyrði fyrir þeirri sömu lóð og eytt verulegum tíma til að hanna þar fallega baðstofu og skapa góðar aðstæður fyrir alla sem stunda sjósport af einhverju tagi.

Atvinnulíf 22. okt. Neskaupstaður mbl.is

Síldin sögð brellin um þessar mundir

Beitir NK kom með 800 tonn af síld til Neskaupstaðar í gærkvöldi. Gert er ráð fyrir að vinnslu aflans ljúki í kvöld.

Menning 22. okt. Neskaupstaður Austurfrétt

Kvikmyndakvöld bætast við fjölbreytta dagskrá Norðfjarðarkirkju

Mikið líf hefur verið í starfi Norðfjarðarkirkju síðustu daga og vikur og þar verður ekkert lát á því í kvöld hefst nýr viðburður sem sóknarpresturinn kallar Guð á Hvíta tjaldinu - áhrifasögur biblíunnar. Allra fyrsta kvikmyndin sem sjá skal og ræða er hin vinsæla en umdeilda Monty Python´s Life of Brian.

Menning 22. okt. Austurland RÚV

Nýdönsk stal bíl fyrir mistök

Hljómsveitin Nýdönsk lenti í því óheppilega atviki að taka bíl í misgripum á Egilsstaðaflugvelli fyrr í mánuðinum. Sveitin var komin austur til að halda tónleika á Breiðdalsvík og taka upp lög.

Atvinnulíf 22. okt. Djúpivogur Auðlindin

Sighvatur með 75 tonn eftir fjórar lagnir

Sighvatur GK landaði um 75 tonnum á Djúpavogi eftir veiðiferð í erfiðu veðri. Aflinn fékkst í fjórum lögnum og var mest þorskur.

Samfélag 22. okt. Austurland Austurfrétt

Risastökk Samfylkingarinnar á milli mánaða

Fylgi Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi tekur kipp í nýrri skoðanakönnun. Fylgi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur bætt við sig í sumar gengur til baka. Fjórir flokkar mælast með þingmenn í kjördæminu.

Samfélag 22. okt. Austurland Austurfrétt

Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki

Áform um að sameina lögregluembættin á Austurlandi, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum vekja alvarlegar spurningar um öryggi íbúa og stjórnun löggæslu. Áður en lengra er haldið verður ríkisstjórnin að sýna fram á hvernig breytingarnar eiga að bæta þjónustuna hér fyrir austan. Stærra umdæmi er engin trygging fyrir öflugri löggæslu.

Íþróttir 22. okt. Austurland Austurfrétt

Blak: Kvennalið Þróttar sótti sigur í oddahrinu

Kvennalið Þróttar í blaki vann sinn fyrsta sigur í úrvalsdeildinni í vetur þegar liðið lagði Þrótt Reykjavík/Blakfélag Hafnarfjarðar í leik sem fór í oddahrinu á laugardag. Liðið sneri erfiðri stöðu í oddahrinunni sér í vil.

Íþróttir 22. okt. Austurland Austurfrétt

Aukinn stuðningur Fjarðabyggðar við íþrótta- og tómstundastarf milli ára

Öll sautján íþrótta- eða tómstundafélögin sem sóttu um styrki til Fjarðabyggðar til starfsemi sinnar hafa nú fengið úthlutun upp á alls 32,5 milljónir króna sem skiptist á milli félaganna. Alls hefur heildarstuðningur sveitarfélagsins til íþrótta- og tómstundastarfs aukist um 8,4% frá síðasta ári og nemur alls tæpum 80 milljónum króna í ár.

Samfélag 21. okt. Seyðisfjörður Austurfrétt

Kom af fjöllum um þau 43 kíló kókaíns sem fundust í bíl hans

Einstaklingurinn sem ákærður er fyrir smygl á tæplega 43 kílóum kókaíns sem fannst í bíl hans við komu til Seyðisfjarðar í marsmánuði sagðist við aðalmeðferð málsins í dag vera engu nær um efnin sem fundust. Gat hann engar skýringar gefið á hvernig svo mikið magn var kyrfilega falið í sendibíl hans. Þetta var á þessum tíma langmesta magn kókaíns sem hald hefur verið lagt á hérlendis en styrkleiki…

Íþróttir 21. okt. Reyðarfjörður Austurfrétt

Fleiri tugir fögnuðu nýjum Íslandsmeistara í Bakgarðshlaupi á Reyðarfirði

Gunnar Lárus Karlsson sem um helgina setti nýtt glæsilegt Íslandsmet í Bakgarðshlaupinu fékk höfðinglegar móttökur þegar hann snéri til síns heima á Reyðarfirði snemma í morgun eftir að hafa tekið þátt fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti í bakgarðshlaupi en hlaup íslenska hópsins fór fram í Elliðaárdalnum.

Samgöngur 21. okt. Austurland Austurfrétt

Auglýsa þarf skólaakstur í Fjarðabyggð að nýju frá áramótum vegna mistaka

Náðst hefur samkomulag á milli Fjarðabyggðar og fyrirtækisins Tanni ferðaþjónusta að rifta samningi þessara aðila um að Tanni sinni akstri skólabarna sveitarfélagsins út þetta skólaár. Ástæðan að Fjarðabyggð framlengdi samning sinn við Tanna í góðri trú þegar í raun hefði reglum samkvæmt þurft að fara fram útboð á skólaakstrinum yfirstandandi skólaár.

Atvinnulíf 21. okt. Seyðisfjörður Bændablaðið

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði

Pétur Kristjánsson. Öldum saman hafa íbúar fjarðarins búið við margs konar hættur sem náið sambýli við náttúruna býður upp á. Hætturnar einskorðast þó ekki við þennan fjörð og eru til staðar á heimsvísu. Sagt hefur verið að nóg sé til handa öllum í heimin ...

Samgöngur 21. okt. Seyðisfjörður Vísir

Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands

Til skoðunar er að hefja ferjusiglingar milli Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarstjóri Múlaþings segir þó langt í að hugmyndin verði að veruleika gangi allt eftir.

Samfélag 21. okt. Stöðvarfjörður Vísir

Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi

Eigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð segir allt ógirt land á Íslandi virðast hafa verið tekið einhvers konar eignarnámi með dómi í máli hans gegn Fjarðabyggð. Dómstóll taldi sveitarfélagið ekki hafa skyldu til að smala ágangsfé af jörðinni því féð hefði komið úr sameiginlegum bithaga.

Samfélag 20. okt. Egilsstaðir Austurfrétt

Hvetja fólk til að hlusta á eigin líkama í Bleikum október

Krabbameinsfélag Austurlands stendur fyrir bleikum viðburði á Egilsstöðum annað kvöld í tilefni af árvekniátaki Krabbameinsfélags Íslands. Krabbameinsfélag Austurlands hefur fengið góð viðbrögð við átakinu.

Samfélag 20. okt. Stöðvarfjörður Austurfrétt

Fjarðabyggð sýkn af kröfu um að smala fé af skógarjörð

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu skógarbónda í Stöðvarfirði sem taldi sveitarfélaginu skylt að smala fé sem gekk í ógirtu landi hans. Eitt af lykilatriðunum í málinu er hvaðan féð kom í land skógarbóndans.

Atvinnulíf 20. okt. Austurland Viðskiptablaðið

Innan við þriðjungur síldarkvótans óveiddur

Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar hefur tekið á móti 21.200 tonnum af síld á vertíðinni. Um 70 prósent er norsk – íslensk vorgotssíld en um 30 prósent er íslensk sumargotssíld. Níu þúsund tonn eru óveidd.

Húsnæði 20. okt. Austurland Austurfrétt

Viljayfirlýsing um byggingu nýrra íbúða fyrir eldri borgara í Fjarðabyggð

Sex til átta hentugar, smærri íbúðir ætlaðar 60 ára og eldri munu að öllum líkindum rísa miðsvæðis bæði á Eskifirði og Fáskrúðsfirði á næstu misserum. Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt drög að viljayfirlýsingu bæjarfélagsins um slíka íbúðauppbyggingu við fyrirtækið R101 og verður formlega skrifað undir það plaggið í dag.

Atvinnulíf 20. okt. Neskaupstaður mbl.is

Vetrarbragur kominn á brælurnar

Ísfisktogararnir Birtingur, Vestmannaey og Bergey lönduðu allir í Neskaupstað sunnudaginn 18. október. Allir styttu veiðiferðir sínar vegna óhagstæðs veðurs.

Samfélag 20. okt. Austurland Austurfrétt

Austfirskir kennarar ósáttir við breytingar á einkunnagjöf

Stjórn Kennarasambands Austurlands gagnrýnir breytingar á einkunnakerfi grunnskólanna sem snúast um að tölustafir eru teknir upp í stað bókstafa. Fræðslunefndir á Austurlandi lýsa áhyggjum af því hversu hratt umskiptin eiga að verða.

Atvinnulíf 20. okt. Neskaupstaður Auðlindin

Bræla stytti veiðiferðir þriggja togara

Birtingur, Vestmannaey og Bergey lönduðu í Neskaupstað á sunnudag eftir að hafa stytt veiðiferðir vegna óhagstæðs veðurs.

Samfélag 20. okt. Austurland RÚV

Útsendingar eystra hljóðna um stund

Útsendingar Rásar 1 og Rásar 2 um loftnet falla niður á hluta Austurlands og Austfjarða um stund upp úr klukkan ellefu. Það gerðist meðan Rarik skiptir út mæli á Gagnheiði. Skiptin hafa áhrif á 14 endurvarpa.

Húsnæði 20. okt. Austurland Austurfrétt

Nýtt svæðisráð um strandsvæðisskipulag Austfjarða skipað

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, staðfesti í gær skipan nýs svæðisráðs um strandsvæðisskipulags Austfjarða. Guðjón Bragason, fyrrum lögfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga, er formaður ráðsins.

Samfélag 19. okt. Stöðvarfjörður Vísir

Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi

Sveitarfélaginu Fjarðabyggð bar ekki lagaskylda til þess að smala fé sem gekk í einkaland og olli tjóni á skógrækt í Stöðvarfirði. Héraðsdómur Austurlands sýknaði sveitarfélagið af kröfu landeiganda um að skaðabótaskylda þess yrði viðurkennd.

Samgöngur 19. okt. Austurland Austurfrétt

Miðar vel í vegagerð á Jökuldal

Rúmir tveir mánuðir eru síðan starfsmenn Héraðsverks hófu vinnu við næsta áfanga í vegagerð inn að Stuðlagili. Veðuraðstæður hafa verið góðar og því gengur verkið vel.

Atvinnulíf 19. okt. Austurland mbl.is

Skipar ráð um strandsvæði Austfjarða

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði. Skipunartími er þar til að loknum næstu alþingiskosningum.

Íþróttir 19. okt. Austurland Austurfrétt

Körfubolti: Útisigur á Stjörnunni í deild og áfram í bikar

Höttur landaði fyrsta sigri sínum í úrvalsdeild karla í körfuknattleik á þessari leiktíð þegar liðið lagði Stjörnuna á útivelli á föstudagskvöld. Liðið fylgdi sigrinum eftir með því að slá Fjölni út úr bikarkeppninni í gær.

Samfélag 19. okt. Austurland Vísir

Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe

Mikil umræða kviknaði á Facebook um helgina um ítök og áhrif breska auðjöfursins Jims Ratcliffe sem hefur keypt tugi jarða á Norðausturlandi á síðustu áratugum. Sló í brýnu milli veiði- og tónlistarmannanna Bubba Morthens og Pálma Gunnarssonar sem voru ósammála um Ratcliffe og áætlanir hans.

Samfélag 18. okt. Austurland RÚV

Tólf banaslys í ám eða vötnum á tíu árum

Samvinna björgunarsveitarmanna og sérsveitar lögreglu varð til þess að leit að manni sem féll í Stuðlagil í ágúst bar árangur. Maðurinn fannst á botni árinnar með aðstoð myndavélar. Björgunarsveitarmaður sem sérhæfir sig í straumvatnsbjörgun segir skipta máli að fólk finnist, hvort sem það er lífs eða liðið.

Samgöngur 18. okt. Djúpivogur mbl.is

Hringveginum lokað vegna hvassviðris og sandroks

Hringveginum hefur verið lokað á milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs vegna hvassviðris og sandroks. Lokunin gildir þar til veður gengur niður og aðstæður á veginum batna.

Samgöngur 18. okt. Austurland Vísir

Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að sérlega varasamar aðstæður verði í kvöld milli Hafnar og Djúpavogs vegna hvassviðris. Leiðin sé þekkt fyrir algenga og skeinuhætta sviptivinda.

Atvinnulíf 18. okt. Seyðisfjörður DV

Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir

Það hafði legið fyrir frá upphafi að klár meirihluti Seyðfirðinga var harðlega á móti því að sjókvíaeldi yrði leyft í Seyðisfirði. Í bænum er mikil gróska á mörgum sviðum, t.d. mikil og vaxandi ferðaþjónusta, og sjókvíaeldi myndi skaða aðra atvinnugreinar í bænum.

Samgöngur 18. okt. Austurland Vísir

Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum

Í dag er spáð sunnan og suðvestan stormi og eru líkur á mikilli ölduhæð nærri ströndum sunnan og vestan til á landinu. Gular viðvaranir eru ýmist í gildi eða taka gildi síðar í dag. Varað er við vegalokunum eftir hádegi á milli Hafnar og Reyðarfjarðar.

Íþróttir 17. okt. Austurland mbl.is

Jökluævintýrið gæti orðið enn stærra

Veiðin í Jöklu í sumar sló öll met. Áin gaf ríflega 2.300 laxa. Sigurður Guðjónsson sérfræðingur hjá Landsvirkjun og fyrrum forstöðumaður Veiðimálastofnunar segir að veiðin geti orðið enn meiri á komandi árum.

Íþróttir 16. okt. Egilsstaðir Vísir

„Þetta er keppni í því að vinna“

Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, var afar sáttur eftir 103-98 sigur á Stjörnunni í Bónus-deild karla í kvöld. Hann var sérstaklega sáttur með hvernig liðið brást við þegar Stjörnumönnum tókst að vinna sig aftur inn í leikinn í fjórða leikhluta.

Íþróttir 16. okt. Austurland RÚV

Valur lagði Íslandsmeistarana - Höttur vann í Garðabæ

Tveir leikir voru í Bónusdeild karla í körfubolta í kvöld. Valur tók á móti Íslandsmeisturunum úr Grindavík. Grindavík var sterkara liðið í 3 leikhluta en Valur sneri leiknum í fjórða leikhluta og vann 81-74. Valur hefur unnið báða leiki sína í haust en Grindavík er stigalaust.

Íþróttir 16. okt. Austurland mbl.is

Höttur gerði góða ferð í Garðabæinn

Höttur vann góðan útisigur á Stjörnunni, 193:98, í 2. umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta í Garðabænum í kvöld.

Samfélag 16. okt. Vopnafjörður Austurfrétt

Stendur fyllilega fyrir sínu þrátt fyrir 42 ára notkun

Í tengslum við ráðstefnuna Björgun 2026 sem nú fer fram í Hörpu í Reykjavík hafa margar björgunarsveitir landsins mætt sérstaklega með sína elstu bíla á staðinn. Einn þeirra sem sérstaka athygli hefur vakið er elsti bíll Björgunarsveitarinnar Vopna á Vopnafirði. Sá hefur verið í notkun hjá sveitinni í heil 42 ár.

Atvinnulíf 16. okt. Seyðisfjörður Austurfrétt

Á lokametrunum að klára bílastæði og göngustíga við Baug Bjólfs

Þó engir séu fólksfjöldamælarnir til staðar við nýjasta aðdráttarafl Austurlands, sem er útsýnispallurinn Baugur Bjólfs hátt yfir Seyðisfirði, leikur enginn vafi á miklu aðdráttarafli þess staðar. Þar verið fjöldi fólks nánast daglega í allt sumar. Nú er verið að vinna lokafrágang á bílstæði og göngustíg upp að útsýnispallinum

Samgöngur 16. okt. Austurland Austurfrétt

Austfirðingar margir íhuga rafbílakaup áður en styrkir lækka um mánaðarmótin

Um mánaðarmótin lækka styrkir sem íslensk stjórnvöld hafa veitt þeim sem keypt hafa rafbíl síðastliðin ár en þeim styrkjum ætlað að flýta þróun úr bensín- eða dísilbílum í rafbíla. Bílasalar á Austurlandi segja flesta meðvitaða um að styrkirnir lækka þann 1. nóvember.

Samfélag 16. okt. Austurland Austurfrétt

Varað við stormi á sunnudag

Veðurstofan hefur gefið út viðvörun vegna lægðar sem gengur hratt yfir landið á sunnudag. Henni fylgir mikið hvassviðri. Á Austurlandi gæti þó hvesst strax á morgun.

Sjá fleiri fréttir