01 - Fréttir

Allt úr fjórðungnum

Fréttir úr byggðunum á Austurlandi og af öllu sem varðar fjórðunginn. Uppfært daglega.

230 fréttir
Atvinnulíf 28. okt. Neskaupstaður mbl.is

Fimm þúsund tonn enn óveidd af síld

Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur á yfirstandandi vertíð tekið á móti 23 þúsund tonnum af síld. Fram kemur á vef Síldarvinnslunnar að enn séu fimm þúsund tonn eftir óveidd.

Lesa greinina →
Samfélag 28. okt. Eskifjörður mbl.is

Matreiðslunámskeið í Eskifjarðarskóla 1953

Fjórir strákar og allar stúlkurnar sóttu matreiðslunámskeið í Eskifjarðarskóla haustið 1953. Þorsteinn Skúlason hlaut verðlaun fyrir uppskriftabókina sína og verðlaunagripurinn prýðir enn borðstofuborð hans.

Atvinnulíf 28. okt. Neskaupstaður Austurfrétt

Guðröður og Árni Magnús heiðraðir fyrir framlag til ferðaþjónustu á Austurlandi

Guðröður Hákonarson, gjarnan þekktur sem Gurri, hjá Hildibrand í Neskaupstað, fékk afhent hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Austurlandi, Klettinn, á haustfundi samtakanna í síðustu viku. Það viðurkenning fyrir að hafa verið öflugur drifkraftur í uppbyggingu ferðaþjónustu í Neskaupstað.

Atvinnulíf 28. okt. Austurland Auðlindin

Blængur með afla fyrir 507 milljónir

Blængur NK kom með 620 tonn eftir 26 daga veiðiferð. Aflaverðmætið var 507 milljónir króna þrátt fyrir að haustbrælur trufluðu veiðarnar.

Samgöngur 28. okt. Austurland Austurfrétt

SSA krefst þess að stjórnvöld falli frá breytingum á Loftbrúnni

Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) krefst þess að stjórnvöld falli frá fyrirhuguðum breytingum á afsláttarkjörum Loftbrúarinnar og tryggi þess í stað nægilegt fjármagn til að efla stuðning við það kerfi.

Samgöngur 28. okt. Austurland Austurfrétt

Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina

Loftbrúin var sett á laggirnar árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu og efla byggðir.

Atvinnulíf 28. okt. Borgarfjörður eystri Austurfrétt

Litlar vísbendingar um að heitt vatn sé að finna á Borgarfirði eystra

Fyrstu boranir í tilraunaskyni eftir heitu vatni á Borgarfirði eystra um 50 ára skeið fóru fram af hálfu HEF-veitna fyrir skömmu en líkt og menn áttu frekar von á fyrirfram eru frumniðurstöður ekki að gefa tilefni til mikillar bjartsýni.

Samfélag 27. okt. Austurland RÚV

Aukin hætta á skriðum og grjóthruni vegna úrkomu

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna aukinnar hættu á skriðum og grjóthruni á Austfjörðum, Austurlandi að Glettingi og á Tröllaskaga. Viðvörunin er í gildi til hádegis á morgun.

Samgöngur 27. okt. Austurland mbl.is

Vilja hærri afslátt í stað fastrar upphæðar

Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og krefst þess að stjórnvöld falli frá áformum um að skipta núverandi hlutfallslegri niðurgreiðslu flugfargjalda út fyrir fasta krónutölu.

Atvinnulíf 27. okt. Neskaupstaður mbl.is

Hálfs milljarðs verðmæti á 26 dögum

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær eftir 26 daga veiðiferð. Afli skipsins var 620 tonn upp úr sjó. Á vef útgerðarinner er verðmæti aflans sagt vera 507 milljónir króna.

Atvinnulíf 27. okt. Neskaupstaður Austurfrétt

507 milljóna króna aflaverðmæti þrátt fyrir „alvöru haustbrælur“

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær að aflokinni 26 daga veiðiferð og það mestmegnis í brælu lungann af túrnum. Skipið landaði engu að síður 620 tonnum en aflaverðmæti þess afla reiknast vera um 507 milljónir króna.

Samgöngur 27. okt. Austurland mbl.is

Skriða féll inn á veg á Njarðvíkurskriðum

Aukin hætta er á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu á Austfjörðum og hefur Vegagerðin tilkynnt um skriðu sem féll inn á veg á Njarðvíkurskriðum.

Atvinnulíf 27. okt. Neskaupstaður Viðskiptablaðið

Blængur NK heim með hálfan milljarð

Veiðiferðin tók 26 daga og afli mest þorskur og ýsa en einnig gullkarfi, ufsi og fleiri tegundir

Samgöngur 27. okt. Austurland Austurfrétt

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Tilkynnt var á vef Stjórnarráðsins 23. október að frá og með 1. janúar 2027 yrði afsláttur Loftbrúar föst krónutala, 7.000 krónur á hvern fluglegg, í stað 40% af fargjaldi. Samkvæmt þessu lækkar meðalniðurgreiðsla á hvern fluglegg um tæpan fjórðung og heildarniðurgreiðslur ríkisins til verkefnisins lækka úr um 740 milljónum í um 560 milljónir.

Samgöngur 27. okt. Austurland mbl.is

Segja vegið að búsetuskilyrðum

Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og skorar á stjórnvöld að falla frá áformunum. Bæjarráðið segir skerðingu niðurgreiðslna á flugfargjöldum óásættanlega aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.

Sjá fleiri fréttir