Hagræði af flakki á íslensku sumargotssíldinni
Allt að sextíu prósent af síld sem berst Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði er nú íslensk sumargotssíld. Magnús Ásgrímsson verksmiðjustjóri segir vinnsluna ganga vel í nýju húsi.
Lesa greinina →Fréttir úr byggðunum á Austurlandi og af öllu sem varðar fjórðunginn. Uppfært daglega.
Allt að sextíu prósent af síld sem berst Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði er nú íslensk sumargotssíld. Magnús Ásgrímsson verksmiðjustjóri segir vinnsluna ganga vel í nýju húsi.
Lesa greinina →Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur á yfirstandandi vertíð tekið á móti 23 þúsund tonnum af síld. Fram kemur á vef Síldarvinnslunnar að enn séu fimm þúsund tonn eftir óveidd.
Um helgina hófst hátíðin Dagar myrkurs í Fjarðabyggð en sú stendur fram á Hrekkjavökuna á laugardaginn kemur. Yfir þennan tíma er tekið mót skammdeginu með ljósum, listum og lifandi sögum en í heild eru fimmtán viðburðir á dagskránni.
Fjórir strákar og allar stúlkurnar sóttu matreiðslunámskeið í Eskifjarðarskóla haustið 1953. Þorsteinn Skúlason hlaut verðlaun fyrir uppskriftabókina sína og verðlaunagripurinn prýðir enn borðstofuborð hans.
Guðröður Hákonarson, gjarnan þekktur sem Gurri, hjá Hildibrand í Neskaupstað, fékk afhent hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Austurlandi, Klettinn, á haustfundi samtakanna í síðustu viku. Það viðurkenning fyrir að hafa verið öflugur drifkraftur í uppbyggingu ferðaþjónustu í Neskaupstað.
Blængur NK kom með 620 tonn eftir 26 daga veiðiferð. Aflaverðmætið var 507 milljónir króna þrátt fyrir að haustbrælur trufluðu veiðarnar.
Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) krefst þess að stjórnvöld falli frá fyrirhuguðum breytingum á afsláttarkjörum Loftbrúarinnar og tryggi þess í stað nægilegt fjármagn til að efla stuðning við það kerfi.
Loftbrúin var sett á laggirnar árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu og efla byggðir.
Fyrstu boranir í tilraunaskyni eftir heitu vatni á Borgarfirði eystra um 50 ára skeið fóru fram af hálfu HEF-veitna fyrir skömmu en líkt og menn áttu frekar von á fyrirfram eru frumniðurstöður ekki að gefa tilefni til mikillar bjartsýni.
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna aukinnar hættu á skriðum og grjóthruni á Austfjörðum, Austurlandi að Glettingi og á Tröllaskaga. Viðvörunin er í gildi til hádegis á morgun.
Samband sveitarfélaga á Austurlandi mótmælir fyrirhugaðri breytingu á fyrirkomulagi Loftbrúarinnar. Skerðingin sé aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.
Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og krefst þess að stjórnvöld falli frá áformum um að skipta núverandi hlutfallslegri niðurgreiðslu flugfargjalda út fyrir fasta krónutölu.
Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær eftir 26 daga veiðiferð. Afli skipsins var 620 tonn upp úr sjó. Á vef útgerðarinner er verðmæti aflans sagt vera 507 milljónir króna.
Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær að aflokinni 26 daga veiðiferð og það mestmegnis í brælu lungann af túrnum. Skipið landaði engu að síður 620 tonnum en aflaverðmæti þess afla reiknast vera um 507 milljónir króna.
Aukin hætta er á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu á Austfjörðum og hefur Vegagerðin tilkynnt um skriðu sem féll inn á veg á Njarðvíkurskriðum.
Veiðiferðin tók 26 daga og afli mest þorskur og ýsa en einnig gullkarfi, ufsi og fleiri tegundir
Tilkynnt var á vef Stjórnarráðsins 23. október að frá og með 1. janúar 2027 yrði afsláttur Loftbrúar föst krónutala, 7.000 krónur á hvern fluglegg, í stað 40% af fargjaldi. Samkvæmt þessu lækkar meðalniðurgreiðsla á hvern fluglegg um tæpan fjórðung og heildarniðurgreiðslur ríkisins til verkefnisins lækka úr um 740 milljónum í um 560 milljónir.
Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og skorar á stjórnvöld að falla frá áformunum. Bæjarráðið segir skerðingu niðurgreiðslna á flugfargjöldum óásættanlega aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.
Lánveitendur Kaldvíkur hafa framlengt undanþágu frá lánaskilmálum til klukkan 15 miðvikudaginn 28. október. Viðræður um fjármögnun félagsins halda áfram.
Þann 6. febrúar 2024 gekk óveður yfir Austfirði og urðu bændurnir á Vattarnesi sérstaklega illa úti, en á litlum bletti magnaðist vindurinn upp og olli stórtjóni á íbúðarhúsi og fjárhúsum. Þak útihúsanna fauk af í heilu lagi og splundraðist svo í annarri ...
Það hvessir um klukkan 19 í kvöld úr norðvestri á Austfjörðum og geta vindhviður náð allt að 35 m/s í vindstrengjum við fjöll, t.d. í Hamarfirði.
Stefán Skafti Steinólfsson. Góðir lesendur. Hernaðurinn gegn Hamarsdal í gamla Djúpavogshreppi, nú Múlaþingi, heldur áfram. Dapurleg var ákvörðun orku- og umhverfisráðherra og Alþingis að færa fyrirhugaðar virkjunarhugmyndir í Hamarsdal úr verndarflokki í ...
Starfsfólk Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) hefur um hríð unnið að því að áætla eignamörk jarða í landinu þar sem hnitsett afmörkun liggur ekki fyrir. Nú hefur stofnunin birt drög að eignamörkum alls 1.160 jarða á Norðaustur- og Austurlandi.
Þær rafhleðslustöðvar sem sveitarfélagið Fjarðabyggð setti upp á sínum tíma og hefur rekið síðan verða aflagðar samkvæmt ákvörðun skipulags- og framkvæmdanefndar. Búnaður þeirra stöðva orðinn úreltur og þær að mestu hættar að virka og skila tekjum.
Lánveitendur fiskeldisfyrirtækisins Kaldvíkur hafa framlengt tímabundna undanþágu félagsins frá tilteknum lánaskilmálum enn frekar, en til stóð að frestur rynni út í dag.
Lánveitendur sjókvíeldisfyrirtækisins Kaldvíkur framlengdu enn frekar frest tímabundinnar undanþágu félagsins frá lánaskilmálum. Stóð til að frestur rynni út í dag en hefur hann verið framlengdur til miðvikudags.
KFA (Knattspyrnufélag Austfjarða) hefur sent frá sér tilkynningu í kjölfar þess að Höttur sleit sig frá samstarfi undir merkjum FHL í kvennaknattspyrnu.
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum á Íslandi í september. Deildarstjóri segir mikinn meirihluta hafa drepist á Reyðarfirði, vegna marglytta sem herji á þá.
Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segir Loftbrú snúast um að jafna stöðuna milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Áhyggjuefni sé að ákvörðunum sé slengt fram án aðkomu sveitarfélaganna og landsbyggðarinnar. Hún vilji sjá innviðaráðherra „bakka með þessa ákvörðun“ um krónutölu í stað prósentuhlutfalls.
Stjórn og framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags Austfjarða í Fjarðabyggð hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem ákvörðun Hattar á Egilsstöðum um að slíta samstarfinu um kvennalið FHL er hörmuð.
Boðuð skerðing á Loftbrúnni er óásættanleg aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni að mati bæjarráðs Fjarðabyggðar. Skorað er á stjórnvöld að falla frá áformunum þegar í stað og efla þess í stað stuðning við flugfarþega sem neyðast til að sækja nauðsynlega þjónustu í höfuðborgina.
Menningarstofa Fjarðabyggðar og nýstofnuð Þjóðaróperan hafa undirritað viljayfirlýsingu til þriggja ára um áframhaldandi samstarf um óperusýningar, fræðslu og þróun tónlistarstarfs á Austurlandi. Með því megi auka aðgengi íbúa að óperulist og skapa fleiri tækifæri fyrir tónlistarfólk á svæðinu.
Lánveitendur fiskeldisfyrirtækisins Kaldvíkur framlengdu tímabundna undanþágu félagsins frá tilteknum lánaskilmálum til og með dagsins í dag.